Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 117
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 117
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
Sveinn Sveinsson, veitingastjóri í Bláa lóninu.
Góður kokteill í fundarlok:
Lyftum léttvínsglösum!
„Á matseðlinum okkar hér í Bláa
lóninu leggjum við ekki síst áherslu
á sjávarfang, enda njóta slíkir réttir
mikilla vinsælda. Þar kemur bæði
til að gestir okkar erlendis frá vilja
gjarnan séríslenska rétti og þá er
fiskurinn nærtækur, þar sem við
erum í næsta nágrenni við Grinda-
vík, eina stærsta verstöð landsins,“
segir Sveinn Sveinsson, veitingastjóri
í Bláa lóninu.
Humar nýtur sífellt meiri vin-
sælda, hvort heldur sem aðal- eða
forréttur. Þessum krabbafiskur, sem
fyrir fáum áratugum þótti ekki nýt-
anlegur og var ævinlega hent, finnst
flestum nú vera lostæti og er dýr í
samræmi við það.
„Oft erum við með grillaðan
humar í aðalrétt en oftar lúðu eða
rauðsprettu, flatfisk sem er auðvelt
að fá úr sjávarplássunum hér á Suð-
urnesjum. Grindavík er samt þekkt-
ust fyrir saltfiskinn góða, löngum
hefur verið hermt að hvergi af land-
inu komi slíkur fiskur jafngóður.
Það sem hér hefur verið vinsælast
er saltfiskréttur, sem er beinlaust
hnakkastykki og meðlætið grænmet-
ismauk og tómatívaf að spænskum
hætti. Þetta er afar ljúffengur réttur;
íslenskur og alþjóðlegur í senn.“
Á hátíðarmatseðlinum skiptir eft-
irrétturinn ekki síst máli - og haldi
menn sig áfram við íslenska rétti í
því sambandi nefnir Sveinn að þar
gæti komið til greina ostakaka eða
skyrréttur einhvers konar. „Skyrið er
sífellt vinsælla, enda bæði ljúffengt
og hefur að sama skapi óendanlega
möguleika sem hráefni - rétt eins og
allar íslenskar mjólkurvörur.“
Góðir réttir á ráðstefnuborðið:
Fiskur er alltaf vinsæll
„Léttvín eða bjór eru mjög algengir
drykkir í lok fundar eða ráðstefnu.
Ekki er hins vegar langt síðan sjálf-
sagt þótti að enda fundahöld á því
að lyfta glösum með sterku áfengi.
Slíkt var siður sem mátti missa
sín, enda hefur þarna orðið ánægju-
leg breyting nú á tiltölulega fáum
árum,“ segir Hörður Sigurjónsson,
veitingamaður á Kaffi Reykjavík.
Ýmis fyrirtæki í miðborginni
halda fundi sína og ráðstefnur
gjarnan á Kaffi Reykjavík enda
henta salarkynni þar ágætlega til
slíks. „Eftir fund er til dæmis vin-
sælt að fara á Ísabarinn hér á jarð-
hæðinni sem er eins konar frysti-
klefi og hitastigið er sex gráður í
mínus. Að fara þangað og fá sér
vodka eða þá íslenskt brennivín er
nokkuð sem alltaf nýtur vinsælda.
Annars eru léttu drykkirnir að koma
sífellt meira inn, til dæmis freyðivín,
hvítvín, rauðvín eða þá bjórinn,“
segir Hörður sem starfað hefur við
veitingarekstur í um þrjátíu ár.
Ýmiss konar smáréttir þykja
ómissandi í lok fundar. Þar segir
Hörður að ýmiss konar spænskir
smáréttir séu að verða æ vinsælli -
og sömuleiðis standi ostapinnar eða
snittur með áleggi alltaf fyrir sínu.
Hörður Sigurjónsson,
veitingamaður
á Kaffi Reykjavík.