Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 131
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 131
KVIKMYNDIR
hann var kærður fyrir að hafa myrt eiginkonu sína. Var
hann ekki sakfelldur þótt flest bendi til þess að hann hafi
framið verknaðinn. 1996 var síðan gerð sjónvarpsmynd
eftir sömu bók.
Óreyndur leikstjóri Capote er fyrsta leikna kvikmynd
leikstjórans Bennett Miller, en hann hafði áður gert heim-
ildamyndina The Cruise, sem fjallar um lífið í New York.
Sú mynd var gerð 1998. Í millitíðinni gerði Miller aðra
heimildarmynd, sem hann hefur ekki fullklárað og hefur
lítið viljað tjá sig um. Handritið að Capote er skrifað af
Dan Futterman og er hann að stíga sín fyrstu skref á
þeirri braut. Futterman er leikari sem hefur leikið í átján
kvikmyndum.
Philip Seymour Hoffman hefur allt frá því hann lék í
hinni umtöluðu Happiness (1998) hvað eftir annað sýnt
afburðaleik í erfiðum hlutverkum. Meðal kvikmynda
sem hann hefur sett mark sitt á eru Flawless (1999), The
Talented Mr. Ripley (1999), Magnolia, (1999), Almost
Famous (2000), State and Main (2000), Punch-Drunk
Love (2002) og 25th Hour (2002). Næst sjáum við
Hoffman leika skúrk á móti Tom Cruise í Mission
Impossible III.
Þess má svo að lokum geta að Bennett Miller, Dan
Futterman og Philip Seymour Hoffman eiga það sameig-
inlegt að vera allir fæddir 1967.
verið aðgerðalaus. Síðustu þrjú ár
hefur hann verið að vinna að kvik-
mynd sem ber heitið Inland Empire
og er hann að leggja lokahöndina
á eftirvinnsluna. Inland Empire var
kvikmynduð í Póllandi og Banda-
ríkjunum. Ekkert er vitað um hvað
myndin er, það eina sem Lynch
hefur látið fara frá sér er að myndin
fjallar um konu í vandræðum (þessi
víðtæka lýsing gæti alveg eins átt
við Mulholland Drive). Í hlutverki
konunnar er Laura Dern. Aðrir leik-
arar eru Jeremy Irons, Justin Ther-
oux, Harry Dean Stanton og Julia
Ormond.
Nútímavestri Wenders
Wim Wenders hafa verið mislagðar
hendur í síðustu kvikmyndum sínum
og ekkert merkilegt komið frá
honum síðan hann leikstýrði Buena
Vista Social Club (1999). Hann
þykir þó aðeins hafa náð fótfestu
aftur með nýjustu mynd sinni, Don’t
Come Knocking, þar sem hann end-
urnýjar kynni sín við Sam Shepard,
sem skrifar handritið og leikur aðal-
hlutverkið. Þeir gerðu saman hina
ágætu Paris, Texas (1984). Don’t
Come Knocking er nútímavestri þar
sem Shepard leikur útbrunna vestra-
stjörnu sem er orðinn hundleiður
á sjálfum sér. Þegar hann fréttir
að líklegt sé að hann eigi barn ein-
hvers staðar vaknar lífsviljinn á ný.
Mótleikarar Shepards eru eiginkona
hans, Jessica Lange, Tim Roth,
Sarah Polley og Eva Marie Saint.
Hjónin Sam Shepard og Jessica
Lange í hlutverkum sínum í Don’t
Come Knocking.
Óþekktur leikari, Brandon Routh,
leikur Superman.
Superman snýr aftur
Minnkandi aðsókn að kvikmynda-
húsum í Bandaríkjunum á síðasta
ári gerir það að verkum að dýrar
kvikmyndir verða færri í fram-
tíðinni. Afleiðingarnar koma þó
ekki í ljós á þessu ári þar sem
of langt er á veg komið með
nokkrar rándýrar kvikmyndir.
Ein þeirra sem verður að setja
spurningarmerki við hvað varðar
aðsókn er Superman Returns,
sem á að vera einn helsti sum-
arsmellurinn. Henni verður beint
að 15-25 ára aldurshópnum,
sem er einmitt sá aldurshópur
sem dregið hefur hvað mest úr
bíósókn vestanhafs. Þarf ekki
að leita langt að skýringunni,
sem liggur í tölvutækninni og
hvað auðvelt er að niðurhala
kvikmyndir fyrir sæmilega færa
tölvustráka. Búast má við því að
Superman Returns verði í hæsta
gæðaflokki ævintýrakvikmynda,
þar sem leikstjórinn Bryan Sin-
ger (Usual Suspect, X Men, X
Men 2), hefur ekki tekið feilspor
hingað til. Í hlutverk Supermans
var valinn óþekktur leikari,
Brandon Routh. Í öðrum hlut-
verkum má nefna Kevin Spacey,
sem leikur Lex Luther og Kate
Bosworth, sem leikur Lois Lane.
Kona í vandræðum
Lítið hefur frést af David Lynch
frá því hann gerði hina rómuðu
Mulholland Drive fyrir tæpum
fimm árum. Hann hefur þó ekki
BÍÓMOLAR
Philip Seymour Hoffman í hlutverki Trumans Capote.