Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 73

Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 73
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 73 K A U P Þ I N G S M E N N Í N O R E G I alltaf verið það. Ég er bara svona. Ef blaðamaður hringir þá svara ég því sem um er spurt á eins einfaldan og skýran hátt og mér er unnt.“ Og hann heldur áfram: „Ég hef ekkert á móti því að hjálpa blaða- mönnum við vinnu sína. En það verður að fara varlega í þetta. Það má aldrei láta annarleg sjónarmið ráða svarinu. Ég get ekki sagt eitthvað um tiltekið hlutabréf í von um að geta grætt á því sjálfur. Það kemur í bakið á mönnum. Þessa vegna hef ég þá reglu að svara einfaldlega og skýrt og hreinskilnislega þegar ég er spurður.“ Gleðimaður Jan Petter Sissener kom til Kaupþings í september á síðasta ári. Hann vill láta nota fornöfnin sín á skrifstofunni þótt hann sé þekktari í Noregi sem Sissener. Fyrri yfirmaður á skrifstofu Kaup- þings lenti í ónáð bæði hjá eigendum Kaupþings og hjá norska fjármálaeftirlitinu og var látinn hætta. Jan Petter varð um svipað leyti ósáttur við sína vinnuveitendur hjá verðbréfamiðlum Alfreds Berg í Ósló. Taldi sig ekki hafa svo frjálsar hendur sem honum bæri og fór yfir til Kaupþings. Hann er talinn einn sá litríkasti í norskum fjár- málaheimi. Það á bæði við um starf og einkalíf. Við spyrjum um það orð sem fer af honum sem gleðimanni: „Ha, ha, já, ég kann vel við mig í glöðum hópi félaga,“ svarar Sissener. „Ég er matmaður, sæki bæði veitingastaði og bý til mat heima. Og ég vil bara drekka góð vín. Lífið er of stutt til að eyða því í að drekka léleg vín og dansa við ljótar konur! Þú mátt kalla þetta hroka ef þú vilt en svona lít ég á málin!“ Auðugar ættir Sissener á til ríkra að telja. Móðir hans var einn erf- ingja að lyfjafyrirtækinu Alpharma, sem afi Jans Petters átti og rak. Það er móðurættin sem heitir Sissener og afabróðir Jans Petters var frægur gamanleikari og gekk undir nafninu Doffen. Upphaflega er ættin frönsk. Fyrstu Sissenerarnir komu til Noregs árið 1814 og voru í þjónustu Karls Jóhanns Svíakonungs. Það er konungurinn sem aðalgata Óslóar - Karl Jóhann - heitir eftir. Oft er fullyrt að Jan Petter hafi sömu leikarahæfi- leika og gamli frændi, hann Doffen. Því vísar hann þó algerlega á bug og segist ekki vera leikari. Faðir Jans Petters er vel stæður svissneskur lögfræðingur og þaðan er ættarnafnið Courvoisier komið. Jan Petter er fæddur í Sviss en foreldrar hans skildu þegar hann var tveggja ára og hann ólst upp í Vesturbæ Óslóar. Uppvöxtur í Vesturbænum - på Vestkanten - segir allt um þjóðfélagsstöðu manns í Noregi. Þar hefur yfirstétt landsins búið í tvær aldir og býr enn. Yfirstéttin talar sitt mál, hefur sína siði, sína framkomu og sín ættarnöfn, sem oft eru upphaflega erlend - eins og til dæmis Sissener. ,,Ég hef aldrei átt í erfiðleikum með að umgangast fólk hvaðan svo sem það er upprunnið. En það er rétt, ég er „Vestkant-gutt“ og ekkert breytir því héðan af,“ segir Sissener. „HEF ÁÐUR BYRJAÐ AFTASTUR OG TEKIÐ FRAM ÚR!“ Jan Petter Sissener birtist jafnan í fjölmiðlum með strákslegt glott á vör. Hann er ör í framkomu og sagður ör á fé. „Ég hef ekkert á móti því að hjálpa blaða- mönnum við vinnu sína. En það verður að fara varlega í þetta. Það má aldrei láta annarleg sjónar- mið ráða svarinu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.