Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
Ísland með augum útlendinga
Náttúran er
spennandi
„Í hugum nánast allra erlenda ferðamanna, sem hingað
koma, er náttúran bæði framandi og spennandi. Fyrir-
fram hefur fólk í afþreyingar- og hvataferðum yfirleitt
litlar væntingar um landið, nema hvað margir vita eitt-
hvað um til dæmis Bláa lónið, Þingvelli, Geysi og Gull-
foss. Þessir staðir eru auðvitað allir einstakir í sinni röð
og flestum þykir frábært að geta heimsótt þá flesta ef
ekki alla í einni stuttri dagsferð,“ segir Stefán Helgi Vals-
son, leiðsögumaður hjá Kynnisferðum.
Stefán hefur starfað sem leiðsögumaður ferðamanna
síðustu átján ár og segir ráðstefnugesti eða fólk í svo-
nefndum hvataferðum vera drjúgan hluta af þeim hópi
útlendinga sem hann ferðast með um landið.
„Fagmenntaðir íslenskir leiðsögumenn búa yfir þekk-
ingu á erlendum tungumálum sem þeir leiðsegja ferða-
mönnum á og eru gjörkunnugir öllum aðstæðum. Hafa
því góð tök á því að segja ferðamönnum frá landi og þjóð
á fræðandi og skemmtilegan hátt. Mikilvægt er að halda
í þessa sérþekkingu fólks í greininni, nú þegar sífellt
fjölgar erlendum fararstjórum sem hingað koma. Heim-
sókn til Íslands má ekki verða einsleit eins og heimsókn
á MacDonalds, þar sem hamborgararnir eru alltaf eins,
hvar sem er í heiminum,“ segir Stefán.
„Erlendir ferðamenn
tala margir um hve and-
rúmsloftið á Íslandi sé
streitulaust. Okkur Íslend-
ingum finnst þetta sjálfum
hljóma mjög einkennilega.
En líklega skapast þessi
tilfinning hvar sem er, svo
lengi sem fólk er í sjálft í
fríi. Sjálfur slappaði ég til
dæmis afar vel af í fríi í
New York, þótt það hljómi
þversagnakennt.“
Kynning funda:
Skýr markmið
eru mikilvæg
„Vel skipulagðir viðburðir eru afar góð leið til að ná til skil-
greindra aðila eða hópa, en í samskiptum og upplýsingagjöf
kemur fátt í stað þess að fólk hittist augliti til auglitis,“ segir
Áslaug Pálsdóttir hjá AP-almannatengslum sem leggur áherslu
á að viðburðir eins og fundir, málþing, blaðamannafundir,
ráðstefnur og sýningar séu hluti af samhæfðum markaðssam-
skiptum. Slíkt felst í heildstæðri notkun ólíkra aðferða við
upplýsingamiðlun eins og almannatengsla, auglýsinga, viðburða-
stjórnunar og fleiri leiða, allt eftir eðli og umfangi verkefna og
þeirra sem ætlunin er að ná til.
Áslaug segir vandaðan undirbúning vera lykilatriði. „Fyrsta
skrefið er að ákveða fyrir hverja fundurinn sé. Markmið eru sett
og skilaboð skilgeind. Ákveða þarf til hverra skilaboð fundarins
eiga að ná og ekki síst hvað viðburðurinn má kosta. Í þessu sam-
bandi er áríðandi að hafa í huga að viðburður verður aldrei betri
en innihald hans gefur tilefni til,“ segir Áslaug og bendir á mikil-
vægi þess að skilgreina viðburð vel í upphafi og að kynna hann
fyrir þeim sem eiga erindi á hann. Það sé í raun forsendan til að
ná árangri. Lokamarkmið með góðum viðburði hljóti að vera að
þátttakendum finnist tíma sínum hafi verið vel varið.
Í aðdraganda fundar eða ráðstefnu mælir Áslaug með að
setja mikilvæg atriði niður á blað. Það þarf að velja fundarstað
en þá koma til þættir eins og eðli og efni funda. Huga þarf að
nauðsynlegum tæknibúnaði, hvernig umgjörð fundarins eigi að
vera, til dæmis merkingar eða skreytingar, en þær þurfa að hæfa
tilefninu. Ekki má gleyma veitingum og þegar viðburðir standi
lengur sé vert að skoða hvort í boði skuli vera einhvers konar
afþreying.
Stefán Helgi Valsson,
leiðsögumaður hjá
Kynnisferðum.
Áslaug Pálsdóttir hjá AP almannatengslum.