Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 128

Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 128
128 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 KYNNING HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Erlendir sérfræðingar auka fjölbreytni í stjórnendanámi Stjórnendaskóli Háskólans í Reykjavík stendur fyrir ráðstefnu í samstarfi við KB banka í byrjun mars. Markmiðið með ráðstefnunni er að veita stjórnendum fyrirtækja og stofnana innsýn í framsæknar hugmyndir Dave Ulrich við stjórnun starfs- fólks, en Ulrich er einn virtasti sérfræðingur heims á því sviði,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Stjórnenda- skólans og forstöðumaður MBA-náms Háskólans í Reykjavík. Ráðstefnan er liður í því starfi HR að nýta erlenda sérfræðinga til kennslu, bæði í hefðbundnu háskólanámi og stjórnendaþjálfun. Finnur segir að þótt við eigum hæfa sérfræðinga hér á landi, þá anni þeir ekki þeirri stjórnendafræðslu sem nauðsynleg er í okkar litla samfélagi, sem í æ ríkara mæli státar af viðskiptalífi með alþjóðlegum brag. Annars vegar sé það vegna þess að íslenskir sérfræðingar, sem leggi slíka þjálfun fyrir sig, séu hreinlega of fáir og hins vegar skorti stundum á reynslu eða dýpt til að gagnast fyrirtækjum eins og best verður á kosið. Kennarar frá virtum háskólum... „Hjá Háskólanum í Reykjavík er mikil áhersla lögð á að fá erlenda sérfræðinga til kennslu í grunn- og framhaldsnámi við skólann. Til að mynda má segja frá því að í MBA-námi HR koma kennarar í meirihluta námskeiða frá virtum erlendum háskólum á borð við IESE í Barcelona eða Columbia University í New York. Ekki aðeins setur þetta námið á sérstakan stall hér á landi, heldur er aðkoma erlendra sérfræðinga mjög mikil- væg til að auka fjölbreytni í stjórnendanámi á Íslandi. Það sem við höfum svo lagt áherslu á að undanförnu er að leyfa samstarfs- aðilum okkar í atvinnulífinu að njóta krafta þessara sérfræðinga, til dæmis í starfsemi Stjórnendaskóla HR.“ Finnur bætir við: „Það er hins vegar rétt að ítreka að oft, og sem betur fer, kemur frumkvæði að því að fá ákveðna sérfræðinga beint frá fyrirtækjum. Þau krefjast þjónustu sem erfitt getur reynst að veita með íslenskum mannafla. Þetta frumkvæði ýtir við okkur, við finnum sérfræðingana og komum þeim á framfæri við íslenska stjórnendur. Samstarf sem þetta, líkt og við erum í með KB banka, gerir okkur kleift að fá til okkar sérfræðinga á borð við Dave Ulrich, sem við alla jafna hefðum ekki tök á að fá. Útrásarfyrirtækin efla þá sem þau vinna með... Það má kannski segja að frumkvæði og kraftur ákveðinna íslenskra fyrirtækja hreyfi við okkur öllum. Lýsandi dæmi um þetta eru þjónustufyrirtæki á borð við auglýsingastofur eða lögfræðifyrir- tæki, sem fyrir um áratug sinntu eingöngu verkefnum hér á landi. Þessi fyrirtæki eru núna farin að veita þjónustu í fjölda annarra landa, einfaldlega vegna þess að viðskiptavinirnir krefjast þess. Þannig efla íslensku útrásarfyrirtækin þá sem þau vinna með. Það sama er uppi á teningnum í stjórnendaþjálfun. Krafa íslenskra fyrirtækja um sérþekkingu gerir það að verkum að við höfum hreinlega ekki ráð á því að vera heimóttarleg í nálgun okkar. Við verðum því að geta veitt aðgang að framúrskarandi fræðslu á sviði reksturs og stjórnunar en það gerum við ekki á annan hátt en að líta öðru hverju til útlanda. Þetta er keppikefli í öllu okkar starfi hjá Háskólanum í Reykjavík, hvort sem um er að ræða í almennri kennslu eða í þjónustu Stjórnendaskóla HR.“ Frumkvæði og kraftur ákveðinna íslenskra fyrir- tækja hreyfir við okkur öllum. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Stjórnendaskólans og forstöðumaður MBA- náms Háskólans í Reykjavík. RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR Dave Ulrich er einn virtasti sérfræ›ingur heims á svi›i mannau›s- og breytingastjórnunar. Hann hefur starfa› sem rá›gjafi og stunda› rannsóknir hjá ríflega helmingi fyrirtækjanna á Fortune 200 listanum. Ulrich er prófessor vi› University of Michigan School of Business og hefur skrifa› 12 bækur um stjórnun. Sú n‡jasta heitir: The HR Value Proposition. Sætafjöldi er takmarka›ur og er skráning flegar hafin. Ver› 45.000 kr. Skrá›u flig á vef Háskólans í Reykjavík, www.ru.is, e›a hringdu í síma 599 6200. ,,Stjórnendur eru yfir sig hrifnir af Ulrich. fiú hlustar, flví hann talar um mannau›s- og breytingastjórnun á nótum sem flú hefur aldrei heyrt á›ur.'' Dave Ulrich var valinn fremsti stjórnunarsérfræ›ingur heims af Business Week. STJÓRNA‹U MASTER CLASSBETUR Taktu frá daginn og heyr›u hva› einn virtasti rá›gjafi heims hefur a› segja um stjórnun. Rá›stefnan er samstarfsverkefni KB banka og Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík. The Top Management Gurus 1.  Dave Ulrich 2.  Ram Charan 3.  John P. Kotter 4.  Gary Hamel 5.  Jay Conger 6.  Peter F. Drucker / Michael E. Porter 7.  Peter M. Senge 8.  Stephen R. Covey 9.  Noel Tichy 10.  C.K. Prahalad / Tom Peters Dave Ulrich á Íslandi. Rá›stefna á Nordica hotel 2. mars 2006 kl. 13-18 Henry Mintzberg Rá›gjafi og prófessor
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.