Frjáls verslun - 01.01.2006, Blaðsíða 89
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6 89
„Ætla má að um ein milljón manna erlendis eigi eða hafi einhver
tengsl við íslenska hestinn og hlutverk hans við að kynna land og
þjóð verður sífellt veigameira. Mörgum finnst beinlínis sjálfsagt
fara í útreiðatúr í upprunalandi hestsins, svona svipað og fara
til Indlands og komast þar á bak fíl,“ segir Einar Bollason fram-
kvæmdastjóri Íshesta.
Afþreying er mikilvægur þáttur í tengslum við allt ráðstefnu-
hald og stundum er sagt að bestur árangur náist þegar tekið er
upp léttara hjal. Við slíkar kringumstæður kynnist fólk og þegar
ísinn hefur verið brotinn í samskiptum komast mál gjarnan á
hreyfingu. „Á að giska helmingur allra þeirra hópa sem til okkar
koma eru ráðstefnugestir eða fólk í svonefndum hvataferðum.
Við bjóðum upp á lengri og skemmri ferðir bæði frá hestamiðstöð
okkar hér í Hafnarfirði og eins þeim stöðum úti á landi þar sem
við erum með aðstöðu. Ferðirnar eru sérsniðnar að þörfum hvers
og eins, oft eru þetta stuttar reiðtúrar og á eftir er síðan boðið upp
á þjóðlega hressingu.
Einar segir að í ferðum utan bæjarmarkanna sé gjarnan farið
í heimsókn á sveitabæi, þar sem fólki fái að kynnast bústörfum
og jafnvel taka þátt í þeim. Þar sé
einnig boðið upp á veitingar og séu
bændurnir lagvissir - eins og gjarnan
er - taki þeir jafnvel lagið fyrir gesti
sína. „Við vorum núna um áramótin
með stóran hóp af Rússum sem fengu
svona höfðinglegar móttökur hjá
bændunum Hjalta Gunnarssyni og Sig-
rúnu Bjarnadóttur í Fossnesi í Gnúp-
verjahreppi sem við erum í miklu sam-
starfi við. Þótti Rússunum mikið til
þessa koma og töluðu raunar um að
heimsókn á íslenskan sveitabæ hefði
verið hápunktur ferðarinnar.“
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
Einar Bollason,
framkvæmdastjóri Íshesta.
Útreiðatúr í ráðstefnuferð:
Þjóðleg hressing og
syngjandi bændur
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Dale Carnegie þjálfari
Námskeið Dale Carnegie reynast mörgum vel:
Árangur, áhugi
og ákafi
„Lokatímar allra þeirra Dale Carnegie námskeiða, sem ég hef
sótt, eru á sinn hátt ógleymanlegir. Samstarfsfólk mitt hefur
líka mikla hæfni til þess að fanga og halda athygli fólks með
frásögnum sínum og leiðbeiningum, og hefur það orðið mér
og öðrum þátttakendum hvatning og fyrirmynd,“ segir Unnur
Valborg Hilmarsdóttir, Dale Carnegie þjálfari.
„Ef ég á að nefna eitt afmarkað erindi á fundi stendur upp
úr erindi Birnu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra markaðs-
sviðs Íslandsbanka, sem hún flutti vestur í Kaliforníu í desem-
ber sl. Birna kynnti þar árangursríkt samstarf Íslandsbanka
og Dale Carnegie á Íslandi fyrir ráðstefnugestum á ógleym-
anlegan hátt enda Birna einstaklega skemmtilegur og lifandi
fyrirlesari. Hún sýndi í þessu erindi sínu alla þá eiginleika sem
góður fyrirlesari þarf að búa yfir: byrjaði á kraftmikinn hátt
og hélt honum allan tímann. Hafði yfirgripsmikla þekkingu
á umfjöllunarefninu og kom því frá sér á öruggan hátt, not-
aði glettni í máli sínu en var um leið mjög fagmannleg, nýtti
vandað stuðningsefni til að glæða frásögn sína lífi og hélt því
óskiptri athygli áheyrandans allan tímann. Allt þetta felst í
þeim þremur atriðum sem við kennum fólki að sé mikilvæg-
ast í því að koma frá sér efni á árangursríkan hátt: að hafa
áunnið sér rétt til að fjalla um efnið, hafa áhuga og að búa yfir
ákafa til að koma því frá sér.“