Ægir - 01.06.2007, Page 15
15
A U S T U R L A N D
Sjóminjasafn Austurlands á
Eskifirði er í gömlu verslunar-
húsi sem verslunarfélagið
Örum & Wulff byggði á öðrum
áratug nítjándu aldar. Um
fjörutíu árum síðar keypti Carl
D. Tulinius, sem var starfs-
maður verslunarfélagsins,
verslunina og rak hana til
dauðadags árið 1905. Þá tóku
afkomendur hans við og ráku
verslunina til ársins 1912
undir nafninu C.D. Tulinius
efterfölgere. Þá var byggt nýtt
verslunarhús og festist þá
nafnið Gamla búð við þetta
fornfræga hús.
Á síðustu öld þjónaði hús-
ið, auk verslunar, sem pakk-
hús, fiskgeymsla, veiðarfæra-
geymsla o.fl. Endurbygging
hússins hófst árið 1968 og
1983 var því verki lokið og
sjóminjasafn opnað í húsinu.
Skemmtileg umgjörð
Þegar gengið er inn í safnið
er í raun komið inn í kram-
búð, ekki ósvipaðri þeirri sem
talið er að hafi verið hér á ár-
um áður í húsinu. Gaman er
að sjá hvernig miða- og
minjagripasala hefur í raun
verið felld inn í þessa
skemmtilegu leikmynd.
Inn af krambúðinni er svo
sjálft sýningarsvæðið á tveim-
ur hæðum. Á neðri hæð, þar
sem pakkhúsið var, er sjó-
minjunum gerð skil. Fjölmargt
áhugavert ber fyrir augu.
Nefna má ýmsa hluti frá upp-
hafi síldveiða hér við land,
líkön af landnót og stauranót
eða botnneti og líkan af síld-
arsjóhúsi eins og Norðmenn
byggðu þau hér á landi upp
úr 1880. Þarna má líka sjá lík-
an af hvalveiðistöð sem var í
Hellisfirði á árunum 1904 til
1913.
Safnið hefur að geyma lík-
ön af færeyskum árabáti og
Ásubergsskipinu svokallaða,
sem var grafið úr jörðu í Nor-
egi árið 1904 og mun vera frá
víkingatímanum.
Sjávarútvegi á Eskifirði er
að vonum gerð ítarleg skil.
Til dæmis eru í safninu líkön
af nokkrum skipum Eskfirð-
inga. Sýndar eru fjölmargar
myndir af skipstjórnarmönn-
um á Eskifirði, veiðarfæri af
ýmsum toga eru sýnd o.fl. Og
ekki má gleyma árabátnum,
sem þarna er. Tveggja manna
far frá 1916 og um borð eru
ýmiskonar veiðarfæri.
Á efri hæð safnsins er ýmsum
öðrum atvinnugreinum gerð
skil. Þar má sjá tæki og tól af
ólíkum toga – t.d. búnað til
brjóstsykurgerðar, skósmíða,
tannlækninga, járnsmíða,
framleiðslu á steinsteypurör-
um, trésmíða, vinnslu á ljós-
myndum, tóvinnu og svo
mætti lengi telja.
Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði:
Sjávarútvegssagan í tæplega
200 ára gömlu húsi
Sjóminjasafn Austurlands er í þessu fornfræga húsi – Gömlu búð á Eskifirði.
Sjávarútvegi á Austurlandi, ekki síst Eskifirði, eru gerð
skemmtileg skil í Gömlu búð.
Í safninu eru mörg líkön, m.a. af þekktum skipum frá Eski-
firði.
Þessi árabátur er frá 1916 og um borð
eru ýmis veiðitól.