Ægir - 01.06.2007, Page 20
20
A U S T U R L A N D
Þorsteinn Kristjánsson er sannkallaður
aflaskipstjóri. Ófá árin var hann á toppn-
um með skip sitt, Hólmaborgina, yfir
fengsælustu skip landsins. Þegar Eskja
keypti frystiskipið Aðalstein Jónsson
færði Þorsteinn sig yfir á það skip og fer
nú einn og einn túr, svona rétt til þess að
halda sér í góðum tengslum við sjó-
mennskuna. En eftir að Þorsteinn og eig-
inkona hans eignuðust drjúgan meirihluta
í Eskju og hann varð stjórnarformaður fyr-
irtækisins eru ný verkefni sem kalla og
því hefur sjómennskan eilítið þurft að
víkja.
„Eftir að ég fór að búa með eiginkonu
minni, Björk Aðalsteinsdóttur, hef ég
starfað hjá þessu fyrirtæki. Ég flutti hing-
að til Eskifjarðar árið 1973 og byrjaði
sem annar stýrimaður á Hólmanesinu ár-
ið eftir. Þá hafði ég lokið stýrimanns-
prófi. Ég er fæddur og uppalinn á Norð-
firði og hafði áður en ég kom hingað
verið á Bjarti NK. Það skip sótti ég til
Japans árið 1973.“
Stýrði síldarsöltun í landi um tíma
„Á Hólmanesinu var ég í þrjú til fjögur ár
Skrifstofur Eskju eru í þessu húsi á Eskifirði. Hinum megin við götuna er bolfiskvinnsluhús fyrirtækisins.
„Ég er
harðastur við
sjálfan mig”
- Þorsteinn Kristjánsson, aflaskipstjóri
og stjórnarformaður Eskju, í Ægisviðtali