Ægir - 01.06.2007, Qupperneq 25
25
A U S T U R L A N D
Egilsbraut 2 í Neskaupstað
var í eina tíð pakkhús - m.a.
nóta- og saltgeymsla - en nú
er það orðið Safnahúsið á
Norðfirði og hýsir þrjú afar
athyglisverð söfn, sem meira
en vert er að gefa sér tíma til
að skoða. Þetta eru Sjóminja-
og smiðjumunasafn Jósafats
Hinrikssonar, Náttúrugripa-
safn Austurlands og Tryggva-
safn – safn sem sýnir þver-
skurð af list Tryggva Ólafsson-
ar.
Jósafat heitinn Hinriksson,
sem var hvað þekktastur fyrir
smíði toghlera, safnaði mikl-
um fjölda sjávarútvegstengdra
muna og kom þeim fyrir í
safni sem hann sjálfur setti
upp í Reykjavík. Þegar Jósafat
féll frá gáfu afkomendur hans
safnið austur í Fjarðabyggð,
en Jósafat var Norðfirðingur.
Safninu, sem er afar fjölbreytt,
hefur haglega verið fyrir kom-
ið á miðhæð Safnahússins.
Á efstu hæð hússins hefur
Náttúrugripasafni Austurlands
verið komið mjög skemmti-
lega fyrir. Safnið, sem var áð-
ur í öðru óhentugra húsnæði
í Neskaupstað, var opnað á
þessum nýja stað á sjómanna-
daginn í vor. Sjón er sögu rík-
ari.
Þriðja safnið á jarðhæð
Safnahússins er Tryggvasafn,
sem geymir nokkur listaverka
Tryggva Ólafssonar, sem er
fæddur á Norðfirði árið 1940
en hefur lengi verið búsettur í
Danmörku. Þessi verk eru má
segja þverskurður af lista-
mannsferli Tryggva.
Safnahúsið á Norðfirði er
opið daglega í sumar kl. 13-
17.
Þriggja safna Safnhús í Neskaupstað
Þessa höggmynd af Jósafat Hinrikssyni
er að finna í safninu.
Safnahúsið er að Egilsbraut 2 í Neskaupstað.
Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar er á miðhæð Safnahússins á Norðfirði. Náttúrugripasafni Austurlands hefur verið komið fyrir á
skemmtilegan hátt á efstu hæð Safnahússins.
Jósafat heitinn Hinriksson var mikill áhugamaður um
söfnun sjávarútvegstengdra muna. Hann kom upp safni í
Reykjavík, en að honum látnum gáfu afkomendur hans
safnið austur í Fjarðabyggð, en Jósafat var fæddur og
uppalinn á Norðfirði.