Ægir - 01.06.2007, Síða 29
29
S J Ó M Æ L I N G A R
Miðlun á ENC
Miðlun á rafrænum sjókortum
á sér aðallega stað í gegnum
svæðisbundnar miðstöðvar,
og var sú fyrsta, Primar, sett á
laggirnar í Noregi. Síðar var
önnur stofnsett í Bretlandi,
IC-ENC. Strangt gæðaeftirlit
og samvinna þessara aðila
tryggir gæði og samræmt útlit.
Landhelgisgæslan hefur samið
við bresku miðstöðina um að
miðla íslensku ENC kort-
unum.
Staðan á Íslandi
Fullyrða má að í flestum skip-
um og bátum á Íslandi séu
notuð einhverskonar stafræn
kort. Gæðin eru misjöfn. Sum
þeirra er erfitt eða ómögulegt
að uppfæra, þannig að segja
má að notendur séu oft og
tíðum með óuppfærð og
ótraust gögn. Sjómælingasvið
Landhelgisgæslunnar ber
enga ábyrgð á þeim stafrænu
kortum sem eru í notkun í
dag, utan þeirra sem gefin
eru út af Sjómælingum Ís-
lands.
Sjómælingasvið Landhelg-
isgæslunnar hefur hafið fram-
leiðslu á ENC kortum. Í árs-
byrjun 2006 var fyrsta íslenska
kortið gefið út. Núna eru
komin út fimm íslensk ENC
kort. Stefnt er að því að ljúka
þremur til viðbótar á árinu
2007.
Athugasemdir:
1. Sjómælingasvið er annað tveggja
kjarnasviða Landhelgisgæslu Íslands.
Allar útgáfur sviðsins eru gefnar út undir
nafni Sjómælinga Íslands.
2. Reglugerðir 122/2004 og 189/1994.
3. SOLAS-samþykktin frá 1974 er alþjóða-
samþykkt um öryggi mannslífa á hafinu.
Skammstafanir og tenglar:
AIS Automatic Identification System
– Sjálfvirkt auðkenniskerfi
ECDIS Electronic Chart Display & Inform-
ation System – Rafrænt sjókorta- og
upplýsingakerfi
ECS Electronic Chart Systems – Rafræn
sjókortakerfi
ENC Electronic Navigational Charts
– Rafræn sjókort
IC-ENC International Centre for ENCs – Al-
þjóðleg miðstöð fyrir rafræn sjókort
IHO International Hydrographic Organiza-
tion – Alþjóðasjómælingastofnunin
IMO International Maritime Organization
– Alþjóðasiglingamálastofnunin
Mynd 1. Þekja ENC korta. Heimild: www.primar-stavanger.org/
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga
• Ísnet Húsavík - Uggahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
www.isfell.is
Dragnótatógin, sem
þú getur treyst