Ægir - 01.06.2007, Qupperneq 40
40
M E N N T U N
Ákveðið hefur verið að hefja
aftur stýrimannanám í Vest-
mannaeyjum og verður það
sjálfstæð eining innan Fram-
haldsskólans í Eyjum. Elliði
Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, fagnar því mjög
að ákveðið hafi verið að hefja
þetta nám á ný og segir það
mikilvægt fyrir samfélagið í
Eyjum og sjávarútveginn
almennt að styrkja stoðir
menntunar á þessu sviði. Gert
er ráð fyrir að 15-20 nemend-
ur stundi nám á fyrsta stigi
stýrimannanámsins í vetur og
eru þeir bæði úr Eyjum og af
fastalandinu.
„Þetta er mjög stórt mál
fyrir bæjarfélagið og ég tel að
það sé í raun stórt mál fyrir
landsbyggðina alla að ekki sé
lögð sú kvöð á landsbyggð-
arfólk sem vill stunda störf
um borð í fiskiskipum og vill
mennta sig á þessu sviði að
það þurfi ekki að búa í
Reykjavík í þrjú ár á meðan á
námi stendur. Hér er í það
minnsta kominn valkostur þar
sem húsnæðisverðið er mun
lægra en í Reykjavík. Hér er
fjölskylduvænt umhverfi og
samfélag sem lifir og hrærist í
sjávarútvegi. Í þessu umhverfi
fer vel á því að mennta skip-
stjórnarmenn,“ segir Elliði
Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum,
í samtali við Ægi.
Skipstjórnarnám var síðast
í boði í Eyjum árið 1999, en
þá voru gerðar breytingar á
skipstjórnarmenntun í landinu
og í kjölfarið lagðist skip-
stjórnarnámið í Eyjum af. Í
vetur verður sem sagt boðið
upp á fyrsta stig námsins og
þess er vænst að veturinn
2008-2009 verði boðið upp á
fyrsta og annað stig og síðan
koll af kolli. Elliði segir alveg
ljóst að nokkrir af þeim Eyja-
mönnum sem koma til með
að stunda þetta nám í Eyjum
í vetur hefðu ekki sótt sér
þessa menntun til Reykjavík-
ur og því sé afar mikilvægt að
geta boðið upp á námið í Eyj-
um. „Mér sýnist allt stefna í
að í vetur verði hér fleiri
nemendur til fyrsta stigs í
skipstjórn en í Fjöltækniskól-
anum í Reykjavík. Við finnum
það að margir landsbyggð-
armenn vilja frekar stunda
þetta nám hér en í höf-
uðborginni. Eins og ég segi
er húsnæðisverð hér lægra en
í Reykjavík og einnig hefur
það sitt að segja að hér geta
nemendur mjög auðveldlega
sótt sér aukatekjur með því
að fara í túr og tú – t.d. á ver-
tíðinni og fríum sem gefast.“
Þarf að efla menntun á þessu
sviði
Elliði segir mikla þörf á að
efla menntun á þessu sviði í
landinu. „Staðan í sjávarútvegi
hvað þetta varðar er graf-
alvarleg. Það er þegar orðin
vöntun á stýrimönnum og
vélstjórum og ég lít svo á að
ein af þeim leiðum sem færar
eru sé að gera menntunina
aðgengilegri. Sjávarútvegur er
stundaður á landbyggðinni og
við eigum að mínu mati að
vera þar með rannsóknir í
sjávarútvegi og sömuleiðis
menntun,“ segir Elliði, en
námið í Eyjum verður unnið í
nánu samstarfi við Fjöltækni-
skólann, sem verður Eyja-
mönnum innan handar með
faglega þróun og gæðavottun
á námið.
„Sjávarútvegur er lífæð
samfélagsins hér í Eyjum og
okkur ber að veita honum þá
þjónustu sem nauðsynleg er.
Menntunin er einn af þeim
þáttum. Það er ekki ofsögum
sagt að Vestmannaeyjar eru
lifandi kennslustofa í sjávarút-
vegi,“ segir Elliði Vignisson.
Skipstjórnarnám hefst aftur í Vestmannaeyjum í haust eftir átta ára hlé:
„Lifandi kennslustofa
í sjávarútvegi”
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Myndir: Óskar P. Friðriksson/Vestmannaeyjum.