Ægir - 01.07.2009, Blaðsíða 26
26
Þ J Ó N U S T A
2
L A X V E I Ð I
en aðrir sáralítið. Einnig að
minnka heildarveiðihlutfallið í
ánni og skilja meira eftir til
hrygningar. Ef aðeins einstaka
menn ná kvóta leiðir kvóta-
setningin ekki til lækkunar
veiðihlutfalls. Því hafði lækk-
un kvóta úr 12 löxum á dag í
8 (oftast var talað um lækkun
úr 6 í 4 en þá var miðað við
hálfsdagsleyfi) lítil áhrif. Við
lækkun úr 8 í 6 laxa á dag fór
kvótinn að verða til þess að
meira varð eftir í lok veiði-
tíma. Áhrif þess voru metin
að um 160 fleiri laxar hafi
orðið eftir í lok veiðitíma
heldur en að óbreyttu. Að
kvóti fari niður í 4 laxa á dag
á því að hafa enn frekari
áhrif. Stangarfjöldinn (sóknin)
er annað mál. Fjórar stangir
með 1 lax kvóta ættu að gefa
svipaða niðurstöðu og ein
stöng með 4 laxa kvóta. Fleiri
veiðistjórnunaraðferðir geta
komið til greina, s.s. að stytta
veiðitíma, friða svæði eða að
veiða og sleppa.”
Sjaldan eða aldrei sótt um
leyfi til að fækka stöngum
- Í Elliðaárskýrslunni kemur
fram að þumalfingurreglan
við setningu laga um lax- og
silungsveiði á sínum tíma
hafi verið sú að veiðin væri
um 1 lax á stöng á dag. Væri
þá hægt að fjölga stöngum
þar sem veiðin er mun meiri
og væri ráðlegt að fækka þeim
þar sem veiðin er minni? Að
því gefnu að veiðifélög væru
sammála slíku og nýtingará-
ætlanir fengjust samþykktar?
„Á sínum tíma var þetta
viðmiðun, 1 lax á stöng/dag
og hugsuð til þess að tak-
marka afla og tryggja við-
komu stofnanna. Þegar afli
jókst var tilhneiging til að sótt
væri um fjölgun stanga. Það
þurfti að bera undir Veiði-
málanefnd. Hins vegar hafa
veiðiréttarhafar sjaldan eða
aldrei sótt um fækkun stanga.
Og því má segja að það sé
brotalöm í kerfinu að stund-
um þyrfti að draga úr sókn
þegar stofnar eru í lægð. Því
hafa menn brugðist við með
öðrum hætti, svo sem kvóta-
setningu og sleppingum á
veiddum laxi. Í lögum um
lax- og silungsveiði frá 2006
er gert ráð fyrir því að veiði-
félög geri nýtingaráætlanir og
að markmið þeirra sé að
tryggja sjálfbæra nýtingu
stofnanna. Þar er ábyrgðin
því sett í hendur veiðifélag-
anna sjálfra þótt lögin geri
ráð fyrir því að nýtingaráætl-
anir þurfi samþykki Matvæla-
stofnunar eftir umsögn Veiði-
málastofnunar.”
Breytt fæðuskilyrði í hafinu
gætu skýrt fækkun stórlaxa
- Fram kemur að svo virðist
sem að samband smálaxa- og
stórlaxagangna raskist eftir
1983. Eru einhverjar nýjar
kenningar um ástæður þess?
Ég heyrði nýlega kenningu
um það hjá áhugamanni um
laxveiði að laxinn leiti fyrr í
árnar vegna meintrar laxa-
lúsaplágu í hafinu. Hann þoli
einfaldlega ekki við í tvö ár í
sjó. Hver er skoðun ykkar á
þessu?
„Það er staðreynd að
breytingar urðu á þessu hlut-
falli í kringum 1983-1985 og
það víða um Atlantshaf. Ef
þetta væri eingöngu veiðum
uppi í ánum að kenna (hærra
veiðihlutfall á stórlaxi) hefði
það varla gerst svo víða á
sama tíma. Helst hafa menn
beint augum að breyttum
fæðuskilyrðum í hafi og þá
að smálax og stórlax haldi sig
á mismunandi beitarsvæðum.
Rannsóknir hafa fremur stutt
þá tilgátu að hækkuð dánar-
tala á öðru ári í sjó tengist
fæðuframboði á beitarslóðum
stórlaxins. Aukin laxalús í
tengslum við fiskeldi er talin
hafa áhrif á aukin afföll
gönguseiða þegar þau eru að
halda til hafs. Það ætti þá að
ganga jafnt yfir gönguseiði
verðandi smálax og verðandi
stórlax.”
- Sjást einhver merki ár-
angurs af netaupptöku í sjó í
áföngum í veiðitölum/rann-
sóknum ykkar?
„Áhrif netaupptöku hafa
verið metin, sérstaklega í
þverám Hvítár í Borgarfirði.
Þar kom fram að um 30%
þess fisks sem annars hefði
verið veiddur í net skilaði sér
á öngul laxveiðimanna. Því
hefur netaupptaka í sjó stað-
bundin áhrif í ám landsins.”
Texti: Eiríkur St. Eiríksson.
MD vélar reka viðhalds-
og viðgerðarverkstæði:
Mikil ásókn í viðgerð-
arþjónustu í kjölfar
bankahrunsins
„Við bankahrunið varð mikil
br yting á starfseminni. Sala
á nýjum vélum dróst ikið
saman en að sama skapi stór-
jókst viðgerðaþjónusta á eldri
vé um,“ segir Hjalti Sigfússon
eigandi MD véla, sem sérhæfir
sig í sölu og þjónustu við Mit-
subishi vélbúnað, þ.e. vélum,
túrbínum og díselkerfum. MD
vélar settu eigið verkstæði á
fót fyrir hálfu öðru ári að
Vagnhöfða 12 í Reykjavík þar
s m veitt er viðgerða - og við-
haldsþjónusta við vélbúnað-
inn, bæði Mitsubishi, sem og
aðrar gerðir véla og tengds
búnaðar.
Markmið okkar er að
eita viðskiptavinum okkar
sem allra besta jónustu. Við
leggjum áherslu á sérhæfð
tæki og kunnáttu til viðhalds
á Mitsubishi vélum og búnaði
þeim tengdum en ei nig sér-
hæ um við að okkur í við
haldi á afgastúrbínum, hedd-
um, spíssum, gangráðum, gír-
um, dælum og fleiru af flest-
um gerðum dieselvéla,“ segir
Hjalti sem bý yfir meira en
40 ára reynslu í viðhaldi og
sölu á dieselvél m og tengd-
um búnaði. MD vélar eru
m.a. umboðsaðilar fyrir PJ
Diesel og PJ Woodward í
Erlingur Kristjánsson, sölustjóri MD véla, á viðgerðaverkstæði fyrirtækisins.