Ægir - 01.02.2013, Blaðsíða 13
13
F I S K I Ð N A Ð U R
Ár og dagar eru síðan frysti-
hús, hannað og byggt frá upp-
hafi sem slíkt, hefur risið hér
á landi. Því urðu nokkur tíma-
mót þegar nýtt fyrirtæki, Mar-
meti ehf. í Sandgerði, hóf
framleiðslu á ferskum og
frosnum fiskafurðum þann 20.
febrúar síðastliðinn í nýju há-
tæknivæddu vinnsluhúsi sínu.
Hér er á ferðinni tæknivædd
fiskvinnsla í fremstu röð þar
sem markvisst er lagt upp
með að halda ferskleika hrá-
efnisins í gegnum alla vinnsl-
una, tryggja mestu mögulega
kælingu og opna þannig með
gæðum framleiðslunnar að-
gang að vel borgandi afurða-
mörkuðum erlendis.
„Við getum unnið úr um
8000 tonnum af fiski á ári og
miðum vinnsluna fyrst og
fremst úr frá vinnslu á þorski,
ýsu og kola en við getum í
raun tekið flestar afurðir í
vinnslu. Afurðirnar eru bæði
fersk og fryst flök og hnakkar
sem við seljum til að byrja
með til Bandaríkjanna og Evr-
ópu. Tæknibúnaður okkar við
kælingu skapar líka tækifæri á
að horfa til enn fjarlægari
markaða og það munum við
gera. Í þessu verkefni höfum
við frá upphafi hugsað út fyrir
kassann, ef svo má segja og
ætlum okkur að vera í
fremstu röð í hráefnismeð-
ferð, vinnslutækni og mark-
aðsmálum,“ segir Rúnar Sigur-
vinsson, framkvæmdastjóri
Marmetis.
Framkvæmdir við vinnslu-
hús Marmetis í Sandgerði hóf-
ust þann 13. apríl á síðasta ári
þegar barnabarn og alnafni
eigandans, Örn Erlingsson,
tók fyrstu skóflustunguna. Í
aðdraganda verkefnsins var
gerður var gerður svokallaður
ívilnunarsamningur við at-
vinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið en tilgangur slíkra
samninga er að liðka fyrir ný-
sköpun og uppbyggingu í at-
vinnulífinu. Marmeti er í eigu
sömu aðila og gera út bátinn
Örn KE en allur afli hans
verður unninn hjá fyrirtækinu.
Annað hráefni verður fengið
af fiskmörkuðum eða í bein-
um samningum við útgerðir.
„Markmiðið er að vinna
sem mest í ferskar afurðir en
hér erum við staðsettir rétt við
höfnina í Sandgerði, skammt
frá lönunaraðstöðu og fisk-
markaðnum. Stutt er á Kefla-
víkurflugvöll og við erum því
í kjöraðstöðu bæði gagnvart
hráefnisöflun og afsetningu
afurða á erlenda markaði,“
segir Rúnar.
Við hönnun vinnslunnar í
Marmeti og val á tæknibúnaði
var sérstaklega horft til mögu-
leika til kælingar á hráefninu
Marmeti í Sandgerði
tekur í notkun nýtt
fiskvinnsluhús
Mynd: Axel Jón Fjeldsted