Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2013, Qupperneq 15

Ægir - 01.02.2013, Qupperneq 15
15 F I S K I Ð N A Ð U R alla leið í gegnum ferilinn. Þannig er til að mynda notað kælt vatn á flökunarvélum og vinnslulínum og nýjasta gerð af frysti sem kemur frá Frigor Scandia er bæði búinn frysti- línu og í kælihluta eru afurð- irnar yfirborðsfrystar sem gef- ur þeim aukinn „líftíma“ á leið til neytenda. „Þessi tækni gefur okkur færi á að sækja á nýja og fjarlægari markaði með fersku afurðirnar eða nýta skipaflutninga í meira mæli í útflutningnum. En um- fram allt er markmið okkar að tryggja stöðu fyrirtækisins með hágæða afurðum, byggð- um á hátæknivinnslu,“ segir Rúnar. Aðal verktaki við byggingu vinnsluhúss Marmetis var Bragi Guðmundsson ehf. í Garði en húsið er steypt með límtrésþaki frá Límtré hf. Fyr- irtækið SI raflagnir í Reykja- nesbæ annaðist raflagnir og OSN ehf. í Reykjanesbæ hafði með pípulagnir að gera. Flæðilína, flokkari, handflök- unarkerfi og Innova hugbún- aður eru frá Marel hf., flökun- arvélar frá Gullmolum ehf. í Hafnarfirði og frystikerfi frá Kælismiðjunni Frosti hf. Frá fyrirtækinu DIS var keypt sjálfvirkt sótthreinsikerfi fyrir vinnslusalinn. Hönnun húss- ins og verkeftirlit var í hönd- um verkfræðistofunnar Verk- máttar í Garði. Marmeti mun bæði nýta sér flug og skip til flutnings afurða á erlenda markaði. Mynd: Axel Jón Fjeldsted Lausnin er hjá okkur Frá veiðum til neytanda marel.is Til hamingju Marmeti og Sandgerði Við óskum Marmeti og Sandgerði til hamingju með nýtt hátæknifrystihús og vinnslukerfi samsett af m.a flæðilínu, flokkurum og Innova framleiðsluhugbúnaði frá Marel. Við hönnun vinnslukerfisins var hagkvæmni og skilvirkni í vinnslu á sjávarafurðum höfð að leiðarljósi – með það að markmiði að skila auknum verðmætum til neytenda og samfélagsins.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.