Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.2012, Side 13

Ægir - 01.01.2012, Side 13
13 B L E I K J U R A N N S Ó K N I R „Í NordChar verkefninu erum við að horfa til breytinga sem verða á lífríkinu á Norður- heimskautssvæðinu samhliða sveiflum í hitafari og við horf- um sérstaklega til bleikjunnar í þessari rannsókn. Fyrst og fremst erum við að skoða villta bleikju, áhrif veðurfars- breytinga á náttúruleg heim- kynni hennar en jafnframt er- um við að skoða hvaða afleið- ingar þetta hefur á náttúrufar og veiðar. Liður í þessu er einnig að horfa til þróunar í eldi á bleikju,“ segir Ragnar Jóhannsson, fagstjóri hjá Matís um NordChar verkefnið sem Matís tekur nú þátt í ásamt aðilum í Kanada, Nor- egi og Skotlandi og beinist að bleikju á Norður-Atlantshafs- svæðinu. Ragnar stýrir verk- efninu fyrir hönd Matís en þátttakendur eru bæði há- skólar og rannsóknafyrirtæki. Auk Matís frá Íslandi tekur Veiðimálastofnun einnig þátt í NordChar. „Þetta er erfðafræðiverk- efni þar sem við komum okkur upp genabanka fyrir bleikju, kortleggjum þannig erfðir og eðliseiginleika hennar á mismunandi svæð- um. Með því að safna saman erfðaupplýsingum í miðlægan gagnagrunn getum við nýtt þær upplýsingar til að skoða þróun og jafnvel spá fyrir um hana,“ segir Ragnar en í verk- efninu eru raðgreind hvat- beragen úr sýnum fiska sem tekin eru í ám á mjög stóru svæði. Sýni eru fengin úr ám á meginlandi Evrópu, í Skandinavíu, Íslandi, Skot- landi, Grænlandi, Kanada og Rússlandi. Upplýsingar úr fortíðinni nýtast framtíðinni „Hvatberaerfðaefni erfist frá móður til afkvæmis og þann- ig fáum við fram móðurættar- tréð fyrir bleikjuna í kringum Norðurheimskautið. Með það í höndum getum við síðan í framtíðinni tengt alls kyns upplýsingar, svo sem um vaxtarhraða, sjúkdóma og slíkt, við upplýsingar úr erfðaefni bleikjunnar og kall- að þannig fram mikilsverð gögn sem til að mynda geta nýst í bleikjueldi í framtíð- inni. Erfðafræðilegar upplýs- ingar er hægt að nota með beinum hætti til að ná fram þeim eiginleikum í fiskinum sem framleiðandinn óskar. En fyrsta skrefið, og það sem NordChar snýst um, er að búa til þetta erfðafræðilega tré og leggja þannig grunninn til framtíðar. Við erum í raun að afla upplýsinga úr fortíð- inni til að geta spáð fyrir um framtíðina og jafnvel haft áhrif á þróunina í þágu eldis eða veiða á villtri bleikju,“ segir Ragnar. Í verkefninu nýtist vel sú raðgreiningartækni sem Matís hefur yfir að ráða til erfða- rannsókna. Fyrsta áfanga í verkefninu verður lokið í árs- byrjun 2012 og segja má að þá hefjist hin eiginlega vinna við að byggja genabankann upp, ásamt því að skrá þær víðtæku upplýsingar sem að- gengilegar verða á bak við hvert sýni. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í árslok 2012. Segja má að heimur bleikjunnar á Norðurheimskautssvæðinu sé viðfangsefni NordChar verkefnisins. Erfðaupplýsingar bleikjunnar á Norðurheimskauts- svæðinu kortlagðar Ragnar Jóhannsson, fagstjóri hjá Mat- ís.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.