Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2012, Page 23

Ægir - 01.01.2012, Page 23
23 ingar á fiskveiðistjórnuninni. Sævar segir óþolandi hvernig tíminn hafi liðið, þrjú ár í röð, án niðurstöðu. „Stjórn- málamenn geta haldið því fram að þrátt fyrir þetta gangi vel í sjávarútvegi. En það er hreint ekki þeim að þakka. Við höfum verið svo heppin að vel hefur fiskast og á sama tíma hefur afurðaverð verið hátt og það hjálpar auðvitað þjóðfélaginu öllu. Yfirlýsing- arnar eru það versta þegar ekki fylgja á eftir aðgerðir og niðurstaða. Þá er allt í óvissu – eins og raunin hefur orðið. Slík vinnubrögð gagnrýni ég,“ segir Sævar og bendir á að í átakaumræðunni um sjávarút- vegsmálin gleymist yfirleitt hagsmunir stórra hópa á borð við sjómenn og fiskverkafólk. „Hvað sem segja má um verðmyndunarkerfið, sem ég er ósáttur við, þá má ljóst vera að minna verður til skipta fyrir útgerðina eftir því sem stjórnvöld sauma meira að henni. Og blasir þá við öllum að fyrir því verður starfsfólkið í greininni – sjó- menn, fiskverkafólk og aðrir.“ Sævar segir vissulega hægt að halda því fram að aðilar í sjávarútvegi hafi getað brugð- ist á annan hátt við áformum stjórnvalda en bendir jafn- Æ G I S V I Ð T A L I Ð Sjómenn hvetja til þyrlukaupa Á formannafundi Sjómannasambands Íslands í Stykkishólmi í október síð- astliðnum var samþykkt ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að fá nú þegar að minnsta kosti tvær stórar björgunarþyrlur til landsins. „Megin verkefni þyrlanna er að annast leit og björgun, en einnig sinna þær brýnum sjúkraflutningum og öðrum öryggistengdum verkefnum. Á 17 ára tímabili frá 1994 – 2010 hefur alls 1513 einstaklingum verið bjargað með þyrlum Landhelgisgæslunnar. Þar af voru bjarganir á sjó alls 361 og um helmingur þeirra utan 20 sjómílna. Í um 71% tilvika er talið að notkun björgunarþyrlu hafi skipt sköpum við björgunina. Það er því lífsspursmál fyrir sjómenn að alltaf séu tiltækar þyrlur til björgunar þegar óhöpp verða. Formannafundur SSÍ haldinn í Stykkishólmi dagana 21. og 22. okt. 2011 skorar því á innanríkisráðherra að tryggja að Landhelgisgæslan fái nú þeg- ar a.m.k. tvær stórar þyrlur til viðbótar núverandi þyrluflota sínum til að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki við eftirlits og björgunarstörf.“ Hagsmunir sjómanna og fiskverkafólks vilja um of gleymast í umræðunni, að mati formanns Sjómannasambandsins.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.