Ægir - 01.01.2012, Side 30
30
ið þátt í leiðöngrum á Dönu,
hinu þekkta danska hafrann-
sóknaskipi, á árunum 1938
og 1939. Hann var nýlega
kominn heim og byrjaður að
vinna á fiskideild Atvinnu-
deildar háskólans þegar
Morgunblaðsgreinarnar birt-
ust. Fyrri greinin hefst á
þessa leið: „Íslendingar eru
meðal mestu fiskveiðiþjóða í
Evrópu, en sú eina, sem
aldrei hefur starfrækt haf-
rannsóknaskip, eigum við þó
meira undir sjávarafla en
nokkur önnur Evrópuþjóð.
Virðist augljóst að erlendis er
nú að hefjast nýtt tímabil í
fiskirannsóknum, markað
dýpri skilningi þjóðanna á
nauðsyn vísindalegrar þekk-
ingar á hafinu, svo og lifnað-
arháttum fiskanna og lífsskil-
yrðum.“ Þá gerir hann grein
fyrir því að allar helstu fisk-
veiðiþjóðir eru að efla haf-
og fiskirannsóknir, meðal
annars með því að undirbúa
smíði á nýjum rannsókna-
skipum. Um fyrirætlanir
Norðmanna benti hann á að
ákveðið hefði verið að hval-
veiðiskipi sem var í smíðum
skyldi breytt í nýtísku haf-
rannsóknaskip og hafin væri
athugun á nothæfni asdik-
tækis til síldarleitar en eins og
kunnugt er var það notað við
kafbátaleit á stríðsárunum.
Í síðari greininni bendir
Hermann meðal annars á að
Ísland sé orðið eitt af þátt-
tökuríkjum Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins og hefur þar
sömu réttindi og skyldur sem
aðrar fullvalda þjóðir. Her-
mann heldur áfram: „Réttind-
in eru þau að við getum skot-
ið aðkallandi friðunarmálum
til úrskurðar ráðsins, eins og
við gerum nú um friðun
Faxaflóa. Ennfremur, að við
getum borið fram tillögur um
rannsóknir við Ísland, í sam-
ræmi við þær sem við höfum
sjálfir í hyggju að framkvæma
þannig að gagnkvæmur
hagnaður verði af starfinu. Á
fundum ráðsins eru ræddar
tillögur um rannsóknir ákveð-
inna svæða. Þar fáum við
upplýsingar um fyrirætlanir
erlendra vísindamanna að því
er snertir rannsóknir á ís-
lenskum fiskistofnum og eðli
hafsins kringum Ísland og
getum sett fram óskir okkar í
því sambandi. Á hinn bóginn
er til þess ætlast að við grein-
um frá fyrirætlunum okkar.
Er það eins og stendur heldur
óskemmtilegt hlutverk að
koma fram sem fulltrúi Ís-
lands á fundum sérfræðinga
þar sem fulltrúar annara
þjóða ráðgast um framhald
rannsókna sinna við Ísland
en við verðum að segja að
þessum og þessum þætti get-
um við engin skil gert af því
að við eigum ekkert rann-
sóknaskip og getum engum
getum að því leitt hvenær
það muni smíðað“.
Hermann Einarsson og
Árni Friðriksson áttu það
sameiginlegt að vera við nám
í Danmörku á gullaldartíma
danskra hafrannsókna, Árni á
árunum 1924-1930 og Her-
mann 1935-1945. Þeim fannst
því erfitt að sætta sig við
tómlæti Íslendinga þegar
heim kom. Um það leyti sem
grein Hermanns birtist voru
Vestfirðingar að safna fé til
smíði á björgunarskipi sem
einkum átti að sinna björgun-
arstörfum á Vestfjarðamiðum.
Skipið var smíðað í Dan-
mörku og var tekið í notkun
hér heima árið 1950. Þetta
var björgunarskipið María
Júlía, 138 tonna tréskip.
Landhelgisgæslan annaðist
rekstur Maríu Júlíu frá upp-
hafi. Við smíði hennar hafði
verið gert ráð fyrir nokkurri
aðstöðu fyrir fiskirannsóknir.
Á skipinu var togvinda og
annar búnaður til togveiða.
Þá var einnig aðstaða til að
setja út háfa, botngreipar og
sjótaka. Sömuleiðis var inn-
réttuð lítil rannsóknarstofa og
svefnklefi fyrir rannsóknar-
menn.
Á sjötta og sjöunda áratug
20. aldar leigði fiskideild At-
vinnudeildar háskólans Maríu
Júlíu öðru hverju til botnfisk-
rannsókna á grunnmiðum.
Sumarið 1962 skipulagði Al-
þjóðahafrannsóknaráðið
rannsóknir á áhrifum mis-
munandi möskvastærðar á
fiskistofna við Ísland. Sjö er-
lend rannsóknaskip tóku þátt
í þessum rannsóknum. Í
þessum glæsilega hópi fór
heldur lítið fyrir Maríu Júlíu,
aðeins 138 tonn að stærð.
Flest hinna skipanna voru
400-500 tonn en stærst þeirra
var 3000 tonna skip frá Sovét-
ríkjunum.
Fljótlega eftir að síldar-
merkingar leiddu í ljós að
kenningar Árna Friðrikssonar
um síldargöngur milli Íslands
og Noregs ættu við rök að
styðjast var að frumkvæði
Árna komið á sameiginlegum
síldar- og hafrannsóknum
Dana, Íslendinga og Norð-
manna að vorlagi til að
kanna útbreiðslu- og göngu-
leiðir síldarinnar frá Noregi til
Íslands. Vorið 1952 má segja
að þessar sameiginlegu rann-
sóknir hafi komist í fastar
skorður og að sjálfsögðu
voru stórauknar sjórannsókn-
ir mjög mikilvægar til að fá
nánari skilning á hegðun síld-
arinnar. Af hálfu Íslendinga
var María Júlía því send til
sjórannsókna út af Norður-
og Norðausturlandi og þaðan
allt til Jan Mayen árin 1952
og 1953. Enn kom María Júlía
við sögu alþjóðlegra hafrann-
sókna árið 1960. Þá hafði Al-
þjóðahafrannsóknaráðið
skipulagt umfangsmiklar
rannsóknir á rennsli djúpsjáv-
ar yfir Færeyjahrygg. Alls
tóku níu rannsóknarskip frá
sjö þjóðum þátt í verkefninu
að Maríu Júlíu meðtalinni
sem skilaði hlutverki sínu
með sóma. Þetta mun hafa
verið síðasta sjórannsókna-
ferðin á Maríu Júlíu en hún
var áfram notuð við fiski- og
veiðarfærarannsóknir á
grunnslóð fram eftir sjöunda
áratug 20. aldar. Við leit að
nýjum fiskimiðum á djúpsjóð
voru leigðir togarar en vel
búnir vélbátar til síldarleitar
og sjórannsókna.
Vorið 1951 var fiskideild
Atvinnudeildar háskólans gert
kleift að kaupa bát sem hent-
aði við síldarmerkingar. Fyrir
valinu varð 15 tonna bátur,
Svanhólm. Svo hörmulega
vildi til að Svanhólm fórst í
ofviðri á leið frá Siglufirði til
Reykjavíkur eftir að merking-
um lauk í byrjun september
og með honum allir þrír skip-
verjarnir. Á árunum 1952-
1966 var vélbáturinn Auð-
björg leigð til síldarmerkinga
eftir því sem þurfa þótti.
Árið 1965 fékk Hafrann-
sóknastofnunin Hafþór NK til
fullra afnota (1. mynd). Þetta
var 250 tonna fiskiskip og var
það nýtt til síldarleitar og síð-
ar fiskirannsókna á grunnslóð
til ársins 1978. Árið 1973 var
75 tonna eikarbátur, Pól-
stjarnan KE, keypt til rann-
sókna og rækjuleitar og hlaut
nafnið Dröfn RE (2. mynd).
Síðla árs 1984 eignaðist Haf-
rannsóknastofnunin 105
tonna skuttogara, Ottó
Wathne NS, sem kom í stað
gömlu Drafnar og hlaut hið
sama nafn (3. mynd). Loks
ber að geta þess að á árunum
1980-1983 hafði stofnunin af-
not af 800 tonna skuttogara,
Baldri EA, sem nefndist eftir
það Hafþór RE (4. mynd).
Þótt miklar vonir væru
bundnar við að fá þetta öfl-
uga skip nýttist það ekki sem
skyldi við hafrannsóknir,
meðal annars vegna fjárskorts
S A G A H A F R A N N S Ó K N A S K I P A N N A
3. mynd Dröfn yngri. Ljósm. Snorri Snorrason.