Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 2
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 TRÚMÁL Kaþólikkar á Íslandi safna nú fyrir nýrri kirkju sem þeir hyggjast reisa á Selfossi. Að sögn Denis O’Leary, sóknarprests í Maríukirkju í Breiðholti, er gert ráð fyrir að um 200 kirkjugestir fái pláss í nýju kirkjunni. Nú eru um tólf þúsund manns skráðir í kaþólska söfnuðinn í Íslandi en vitað er að kaþólikkar hér eru enn fleiri. „Það hefur fjölgað mikið í kaþ- ólska söfnuðinum á Íslandi, sér- staklega Pólverjum og Filippsey- ingum. Fjölmargir kaþólikkar hafa einnig komið til Íslands frá Litháen og víðar að. Íslendingum í söfnuðinum hefur einnig fjölg- að. Fjölskyldurnar stækka og svo ganga alltaf nokkrir Íslendingar í söfnuðinn á hverju ári,“ greinir O’Leary frá. Kaþólsku kirkjunni er skipt niður í sex sóknir og fellur Suður- land undir St. Maríusókn. Að sögn O’Leary er messað reglulega á Sel- fossi og í nálægum sveitarfélögum og eru kirkjur þjóðkirkjunnar fengnar að láni til þess. Fyrstu drög að teikningu nýrr- ar kirkju eru tilbúin. Ekki liggur fyrir hvenær hægt verður að hefj- ast handa við framkvæmdir. Það fer eftir því hversu vel gengur að safna. „Þetta hefur gengið fremur hægt. Þetta er kannski ekki besti tíminn svona eftir kreppu. Við þurfum aðstoð utan frá til stórra framkvæmda,“ segir sóknarprest- urinn. Formaður Félags kaþólskra leikmanna, Gunnar Örn Ólafs- son, segir hjálparsamtök í Þýska- landi safna peningum fyrir kaþ- ólska söfnuði á Norðurlöndum. „Við höfum fengið styrki frá þeim til viðhalds á byggingum og til að reisa nýjar byggingar.“ Kaþólsku kirkjurnar á Íslandi eru Dómkirkja Krists konungs í Landakoti, Maríukirkja í Breið- holti, St. Jósefskirkja í Hafnar- firði, St. Péturskirkja á Akureyri, St. Þorlákskirkja á Kollaleiru, Reyðarfirði, og kirkja heilags Jóhannesar Páls II. á Ásbrú í Reykjanesbæ. Nokkrar kapellur eru einnig hér. ibs@frettabladid.is Kaþólikkar safna fyrir kirkju á Selfossi Um 12 þúsund manns eru skráðir í kaþólska söfnuðinn á Íslandi. Vitað er að kaþól- ikkar hér eru enn fleiri. Fyrstu drög að teikningu nýrrar kirkju á Selfossi tilbúin. Ekki liggur fyrir hvenær hægt verður að hefja framkvæmdir við kirkjusmíðina. NÝ KIRKJA Fyrirhugað er að kaþólska kirkjan á Selfossi verði á „Sýslumannstúninu“. Það hefur fjölgað mikið í kaþólska söfnuðinum á Íslandi, sérstak- lega Pólverjum og Filippsey- ingum. Fjölmargir kaþól- ikkar hafa einnig komið til Íslands frá Litháen. Denis O’Leary, sóknarprestur í Maríukirkju. BRYNDÍS KRIST- JÁNSDÓTTIR SKATTUR Skattrannsóknarstjóri hefur nú lokið rannsókn á gögn- unum úr stórbankanum HSBC sem komu til Íslands frá frönsk- um skattayfirvöldum. „Búið er að fara yfir gögnin frá HSBC. Þau gögn gefa ekki tilefni til frekari aðgerða af hálfu embættisins. Ástæðan er sú að þær upplýsingar er þar um ræðir varða ekki aðila sem eru íslenskir skattþegnar,“ greinir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri frá. Erlendir fjölmiðlar greindu í vetur frá rann- sókn á skjöl- um sem sýndu að HSBC-bank- inn hefði aðstoð- að viðskiptavini við að fela fé og komast hjá því að greiða skatta. S k j ö l i n u m skattaundan skot voru frá útibúi bankans í Sviss. Nokkrir bankareikningar voru sagð- ir í eigu aðila sem tengjast Íslandi. Leynigögnin sem ákveðið hefur verið að kaupa eru enn ekki komin til landsins. „Við erum ekki komin með gögnin í hús sem til stendur að kaupa. Til þess að unnt sé að ganga frá kaupunum eru okkur nauð- synlegar tilteknar upplýsing- ar frá viðsemjandanum sem við höfum nú beðið eftir um hríð. Ég á þó ekki von á öðru en af þessu verði innan skamms tíma,“ segir Bryndís. - ibs Skattrannsóknarstjóri bíður viðbótarupplýsinga frá seljanda leynigagna: Engar aðgerðir vegna HSBC MENNTAMÁL Nemendum á fram- haldsskólaskólastigi, sem læra erlend tungumál, hefur fækkað hlutfallslega úr sjötíu og fjórum prósentum skólaárið 2011 til 2012 í sjötíu og tvö prósent skólaárið 2013 til 2014. Þetta eru niður- stöður úr gagnasöfnun Hagstofu Íslands um nemendur í fram- haldsskólum sem lærðu erlend tungumál. Flestir framhaldsskólanemend- ur læra ensku og voru þeir tæp- lega fimmtán þúsund skólaárið 2013 til 2014 eða um sextíu pró- sent framhaldsskólanema. Næst- flestir nemendur læra dönsku eða rúmlega sjö þúsund talsins. Spænska er orðin þriðja algeng- asta erlenda málið og nemendur í spænsku urðu í fyrsta skipti fleiri en nemendur í þýsku skólaárið 2012 til 2013. Skólaárið 2013 til 2014 lærðu rúmlega 4.150 fram- haldsskólanemendur spænsku, 3.873 nemendur þýsku og 1.792 frönsku. Þá er tungumálanám vinsælla meðal stúlkna en pilta í fram- haldsskólum. Stúlkur sækja frekar í tungumálanám í fram- haldsskólum. Það er líka algeng- ara meðal stúlkna að læra mörg tungumál enda mun fleiri stúlk- ur en piltar á málabrautum fram- haldsskóla. - ngy Tungumálanám er vinsælla meðal stúlkna en pilta í framhaldsskólum: Færri læra erlend tungumál NEMENDUR Spænska er orðin þriðja algengasta erlenda málið meðal nemenda í framhaldsskólum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR JEMEN Margar fjölskyldur hafa flúið frá borginni Aden í Jemen vegna stríðsástands. Á myndinni, sem tekin var í vikunni, bíða börn eftir mat og drykk frá sjálfsboðaliðum hjálparsamtaka. Rúmlega hundrað börn hafa látið lífið í stríðsátökunum í Jemen undan- farnar vikur að sögn UNICEF. Níutíu manns voru drepnir í loftárás sádiarabíska hersins í Jemen í gær. Að sögn yfirvalda var ráðist á herstöð í höfuðborginni Sanaa. Loft- árásin er sú mannskæðasta í landinu síðan í byrjun aprílmánaðar og særðust þrjú hundruð manns í henni. Uppreisnarmenn Húta náðu höfuðborginni Sanaa á sitt vald í septem- ber síðastliðnum. Bandalag ríkja undir forystu Sádi-Arabíu hóf loftárás- ir á stöðvar uppreisnarmanna í lok mars. - ngy Rúmlega hundrað börn hafa látið lífið í Jemen: Flýja heimili sín í Jemen STRÍÐSÁSTAND Fjölskyldur í Jemen hafa þurft að flýja heimili sín undanfarnar vikur vegna loftárása. VEÐUR SJÁ SÍÐU 28 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Alicante frá kr. 14.900 Flugsæti aðra leið með sköttum. BRUSSEL Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ESB, hyggst leggja fram tillögu að nýrri stefnu í málefnum flóttamanna. Fram- kvæmdastjórnin vill koma upp kerfi sem þvingar öll lönd til að taka á móti flóttamönnum. Taka á tillit til vergrar þjóðarframleiðslu, íbúafjölda, atvinnuleysis og fjölda flóttamanna sem þegar hefur verið tekið á móti. Bretar, Írar og Danir þurfa bara að taka þátt ef þeir vilja, að því er segir í frétt sænska ríkis- útvarpsins. - ibs Framkvæmdastjórn ESB: Allir taki við flóttamönnum UTANRÍKISMÁL Forseti Íslands átti fund með Evrópuráðherra Þýska- lands, Michael Roth, í gær. Rætt var um margvísleg og langvar- andi tengsl Íslands og Þýskalands, samvinnu á sviði menningar og viðskipta, sem og aukið mikil- vægi norðurslóða en Þýskaland mun kynna stefnu og áherslur sínar í málefnum norðurslóða á þingi Arctic Circle í Reykjavík í október. Þá var rætt um nýtingu jarðhita víða í Evrópu og tengsl Íslands við Evrópusambandið, lærdómana af viðræðum um aðild sem og stöðu málsins um þessar mundir og á næstu árum. - ngy Fundur með Evrópuráðherra: Forseti fundar um Evrópumál SAMGÖNGUR Malbikunarvinna sumarsins í Reykjavík hefst í dag þegar fræst verður á Neshaga, Hofsvallagötu og Nesvegi. Mal- bik verður lagt á þessar götur á mánudag. Í sumar verða 111 þúsund fer- metrar af malbiki lagðir á rúma 16 kílómetra gatna í Reykjavík. Það er fyrir utan vinnu Vega- gerðarinnar við stofnbrautir og malbiksviðgerðir. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar gerir ráð fyrir 690 millj- ónum í malbikun nú í ár og er það 250 milljóna króna hækkun frá síðasta ári. - ibs Malbikunarvinna hafin: 16 km gatna malbikaðir Hlýtt loft úr suðri kemur að landi, með suðaustanátt. Þá þykknar heldur upp sunnanlands og skúrir suðaustanlands. Á Norður og Austurlandi hlýnar. Í kvöld hvessir á vestanverðu landinu og á Snæfellsnesi má búast við allt að 18 m/s. 7° 8° 3° 5° 5°2 4 6 3 1 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 7 -6 D 1 C 1 6 3 7 -6 B E 0 1 6 3 7 -6 A A 4 1 6 3 7 -6 9 6 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.