Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 40
USD 132,02 GBP 207,16 DKK 19,89 EUR 148,40 NOK 17,66 SEK 15,90 CHF 142,29 JPY 1,10 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla FTSE 100 6.933,80 -96,05 (1,37%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti STJÓRNAR - MAÐURINN @stjornarmadur 11.05.2015 Það er ekkert afgangs fyrir utan launin og húsnæðið. Og menn eru svolítið við frumstæðar aðstæður við þetta. Þú þarft að treysta því að fá gott fólk í þetta. Það er ekki sama hver vinnur þetta. Og þetta er auðvitað alveg gífurlega mikilvægt. En samt eru menn alltaf á horriminni og rúm- lega það. Brynjar Níelsson alþingismaður Tækninýjungum fylgja gjarnan dómsdagsspár um að það sem fyrir er á fleti hljóti að hverfa snarlega. Þannig spáðu menn að útvarpið myndi líða undir lok þegar sjónvarpið kom á vettvang og margir hafa keppst við að spá endalokum hins eða þessa eftir tilkomu internetsins – hvort sem það er verslun upp á gamla mátann, dagblöð eða mannleg samskipti án tilstuðl- anar samfélagsmiðla. STJÓRNARMAÐURINN las því af nokkurri athygli fréttir af bóksölu frá Bretlandi. Sala á fýsískum bókum er þar nokkuð stöðug, og hefur verið undan- farin ár. Sérstaka athygli vekur hins vegar að sala á barnabók- um er í mikilli sókn og hefur aukist um 11% milli ára. Hefur salan ekki verið meiri frá árinu 2007, þegar síðasta bókin um Harry Potter kom út. VIÐ ÞETTA MÁ BÆTA að veru- lega hefur hægst á vexti í sölu á rafbókum. Salan jókst um 11% í fyrra, 19% árið áður og 65% árið þar á undan. Nú er staðan sú að þriðja hver bók sem seld er í Bretlandi er rafbók. SÚ STAÐREYND að hægst hefur á vexti í sölu rafbóka bendir til þess að jafnvægi sé að nást milli slíkra bóka og fýsískra bóka. ÞETTA ER HIÐ SAMA og smám saman hefur gerst varðandi sölu á netinu. Rótgrónir smá- salar geta ekki lengur komið með bjartsýnisspár um að brátt verði sala á netinu stærstur hluti heildarsölu og vöxturinn eftir því. Netið er ekki lengur nýtt, heldur nokkurn veginn föst stærð. Fyrir rótgróið vöru- merki sem stundað hefur við- skipti upp á gamla mátann, þykir gott ef í mesta lagi þriðj- ungur sölu fer fram gegnum netið. Þetta vita fjárfestar og aðrir þátttakendur á markaðn- um. VIÐ ÞETTA MÁ BÆTA að tals- verð aukning hefur orðið á lestri tímarita í heiminum eftir til- komu internetsins. EN SVO VIÐ VÍKJUM AFTUR að tölunum frá Bretlandi þá er önnur athyglisverð staðreynd þessi mikli vöxtur í sölu barna- bóka. Þetta bendir til þess að foreldrar sem ólust upp við bækur, en urðu fullorðnir með snjallsíma í lófanum vilji að börnin deili þeirri upplifun að halda á bók upp á gamla mátann. BÓKSALAR Á ÍSLANDI og ann- ars staðar skulu því ekki missa móðinn. Bókin er ekki á leiðinni út heldur mun hún vonandi lifa í sátt og samlyndi við rafbókina. SPURNINGIN er bara hvar jafn- vægið liggur. Endurkoma bókarinnar ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook Kynnum Mercedes-Benz CLA Shooting Brake, hlaðbak sem myndar nútímatengsl milli bíls og ökumanns. Mikið rými og framúrskarandi hönnun CLA Shooting Brake styður þinn lífsstíl og gerir hverja ökuferð að upplifun. Komdu í Öskju og reynsluaktu – við tökum vel á móti þér. Nýr og stórglæsilegur CLA Shooting Brake CLA Shooting Brake 250 með 7 þrepa sjálfskiptingu og 4MATIC fjórhjóladrifi. Verð frá 7.490.000 kr. CLA Shooting Brake 180 með 7 þrepa sjálfskiptingu. Verð frá 5.790.000 kr. 4 SINNUM Í VIKU Hyggjast fljúga til Chicago Icelandair hefur ákveðið að hefja áætl- unarflug til O‘Hare-flugvallar í Chicago í Bandaríkjunum í mars á næsta ári og verður flogið til og frá borginni allt árið um kring. Fyrst um sinn verður flogið fjórum sinnum í viku, á mánu- dögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Chicago verður fimmtándi áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu. 20 SINNUM MEIRA Dýrt að virkja sjávarorku Kostnaður við virkjun sjávarorku er um 20 sinnum hærri en við hefðbundna vatnsaflsvirkjun. Þetta er niðurstaða sérfræðingahóps sem var falið að meta umfang og nýtingarmöguleika sjávar- orku við strendur Íslands. Hópurinn hefur skilað iðnaðar- og viðskiptaráðherra skýrslunni. Þar kemur fram að reikna má með að á næstu 30 árum verði miklar framfarir á þessu sviði. 3.500 TONN Unnið á fullum vöktum „Við erum búnir að vinna úr um 11.500 tonnum af kolmunna á vertíðinni og nú eru tvö skip í höfn með samtals 3.500 tonn þannig að það er nóg að gera,“ segir Sveinbjörn Sigmundsson, verksmiðjustjóri fiskmjölsverk- smiðju HB Granda á Vopnafirði. Unnið er á fullum vöktum í verk- smiðjunni allan sólarhringinn. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 9 -5 0 F C 1 6 3 9 -4 F C 0 1 6 3 9 -4 E 8 4 1 6 3 9 -4 D 4 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.