Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 28
| 4 13. maí 2015 | miðvikudagur
Íslenska fyrirtækið AwareGO býst
við því að geta á næstunni samið
við tvo stóra erlenda banka um
að selja þeim öryggisþjálfunar-
myndbönd sem fyrirtækið fram-
leiðir. Nú þegar hefur fyrirtæk-
ið selt CreditSuisse vöru sína. Þá
hafa margar íslenskar stofnanir
keypt hana, þar á meðal Icelandair
Group, Landsvirkjun, Íslandsbanki
og Landsbankinn.
„Við erum að framleiða stutt
öryggisþjálfunarmyndbönd fyrir
tölvuöryggi. Hvert myndband er
í kringum eina mínútu og þetta
er svona meira eins og auglýsing-
ar heldur en þjálfun. En í staðinn
fyrir að vera með merkjavitund
eins og er í auglýsingum þá erum
við með öryggisvitund,“ segir
Ragnar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Myndbönd-
in snúast um að koma ákveðnum
skilaboðum til starfsmanna, til
dæmis að hleypa ókunnugu fólki
ekki inn á lokuð svæði, að vera
ekki með trúnaðargögn óvarin á
færanlegum miðlum, að skilja ekki
eftir útprentuð trúnaðargögn á
glámbekk, þá eru upplýsingar um
þráðlaus net, um njósnabúnað og
svo framvegis.
Þetta byrjaði árið 2007 þegar
fyrirtækið gaf út frumgerð af
einum þætti. „Árið 2008 létum við
framleiða fyrir okkur tólf þætti.
Hver þáttur var svolítið langur,
hann var sex til átta mínútur, og
svo unnum við með þetta,“ segir
Ragnar. Hann segir að það hafi
verið töluvert gagnrýnt hvað þætt-
irnir voru langir og þeir ákváðu
því að stytta þá. „Þegar við vorum
komnir með þá niður í eina og
hálfa mínútu þá var loksins farinn
að kvikna áhugi á þessu. Þannig
að við ákváðum að þegar næsta
útgáfa kæmi þá yrði hún að vera
í kringum ein mínúta.
Útgáfa-2 af myndböndunum
kom út í september. „Það er búið
að ganga mjög vel að selja hana.
Ég held að það séu í kringum tíu
prósent starfsmanna í stórum og
meðalstórum fyrirtækjum að læra
af þessu,“ segir Ragnar.
Ragnar segir að þeir félagarn-
ir hafi farið mikið með gömlu
útgáfuna á sýningar erlendis og
kynnst þar mörgum. En þeir séu
ekki byrjaðir að markaðssetja
nýju útgáfuna að neinu ráði. Það
sem hafi selst til útlanda hafi selst
í gegnum LinkedIn, meðal ann-
ars salan til CreditSuisse. „Það
var maður sem ég hitti á sýningu
árið 2010. Hann vildi ekki kaupa
útgáfuna sem við vorum með þá
en ég tengdist honum á Linked-
In. Og svo er ég búinn að vera að
láta hann vita reglulega hvað við
höfum verið að gera. Um leið og
við komum með nýju útgáfuna þá
lét ég hann vita og hann var svona
rosalega hrifinn að þetta gekk í
gegn á einum mánuði.“
Ragnar segir að AwareGO sé
með nokkra viðskiptavini í pípun-
um. „Við erum með tvo risastóra
banka. Annar þeirra er einn af
tíu stærstu í heiminum og hinn er
einn af 25 stærstu. Ég á bara fast-
lega von á að það gangi í gegn bráð-
lega, allavega annar þeirra,“ segir
hann. Þá sé einnig verið að semja
við dómsmálaráðuneyti í einu ríki
Bandaríkjanna. „Þeir eru svo rosa-
lega hrifnir að þeir ætla að taka
sex aðrar stofnanir með sér,“ segir
hann. jonhakon@frettabladid.is
Selur stórfyrirtækjum
í gegnum LinkedIn
AwareGO framleiðir myndbönd um upplýsingaöryggi sem hafa selst
víða hérlendis og erlendis. CreditSuisse er í hópi viðskiptavinanna.
AWAREGO Fyrirtækið framleiðir öryggismyndskeið sem hafa verið seld til stórra og meðalstórra fyrirtækja. Salan gengur vel.
Þeir eru svo
rosalega
hrifnir að þeir ætla
að taka sex
aðrar stofn-
anir með
sér.
Ragnar Sigurðsson
Stjórn Haga leggur til við aðalfund félags-
ins að fyrirtækið greiði hluthöfum sínum
1.992 milljónir króna í arð vegna rekstrar-
ársins 2014/2015. Ársreikningur félagsins
var birtur í gær. Samkvæmt arðgreiðslu-
stefnu er stefnt að því að Hagar greiði hlut-
höfum sínum árlegan arð, sem nemi að
lágmarki 50% hagnaðar næstliðins rekstr-
arárs. Að auki mun félagið, ef tækifæri gef-
ast, kaupa fasteignir á hagstæðu verði sem
nýtast félaginu í starfsemi sinni. Ef fjárfest
er í fasteignum er stefnt að því að eiginfjár-
framlag félagsins verði að lágmarki 30% af
kaupverði.
Samkvæmt uppgjöri nam hagnaður
rekstrarársins 3,8 milljörðum króna eða
5,0% af veltu. Vörusala rekstrarársins nam
77 milljörðum króna og framlegð var 24
prósent. Hagnaður fyrir afskriftir, fjár-
magnsliði og skatta nam 5,6 milljörðum
króna. Heildareignir samstæðunnar námu
27,6 milljörðum króna í lok rekstrarársins
og eiginfjárhlutfallið er 53,5 prósent.
Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður
fyrirtækisins, segir að minni skuldsetning
og þar með vaxtagreiðslur hafi nú skapað
svigrúm til þess að hluthafar njóti aukins
arðs af rekstri félagsins. „Á árunum 2008-
2011 greiddi félagið árlega að meðaltali
rúmlega 2,1 milljarð króna í vexti og verð-
bætur. Á rekstrarárinu sem var að líða voru
nettó fjármagnsgjöld félagsins 147 milljónir
króna, þökk sé minni skuldsetningu. Það er
ánægjulegt að sjá þessa jákvæðu breytingu
í ráðstöfun þeirra fjármuna sem skapast í
rekstri félagsins á sama tíma og félagið er
ódýrasti valkosturinn á markaði og berst
ötullega fyrir bættum hag viðskiptavina
sinna,“ segir Kristín.
Fjárfestingar Haga á liðnu rekstrarári
námu 2,1 milljarði króna en þar af fjárfesti
félagið 1,37 milljarða króna í fasteigna-
verkefnum. Hafi n er vinna við byggingu nýs
vöruhúss Banana við Korngarða í Reykjavík
og fellur hluti þeirrar fjárfestingar á nýliðið
rekstrarár. Þungi fjárfestingarinnar mun þó
falla á rekstrarárið 2015/16 en áætlanir gera
ráð fyrir að starfsemi Banana verði fl utt í
hið nýja húsnæði fyrir lok rekstrarársins.
Auk verkefnisins við Korngarða fjárfesti
félagið í fasteigninni við Stekkjarbakka 4-6.
Þar verður reist Bónusverslun - jhh
Stjórnarformaður Haga segir að minni skuldsetning og vaxtagreiðslur skapi svigrúm til aukinna arðgreiðslna. Hagnaði verður einnig varið í fjárfestingar í fasteignum:
Stjórn Haga vill greiða tæpa tvo milljarða í arð
BÓNUS Ráðgert er að opna Bónusverslun í Mjóddinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hagnaður Arion banka á fyrstu
þremur mánuðum ársins nam
14,9 milljörðum króna, en var 2,9
milljarðar á sama tíma í fyrra. Í
afkomutilkynningu segir að hagn-
aðurinn markist mjög mikið af
óreglulegum liðum. Þar hafa mest
áhrif einskiptisatburðir eins og
skráning og sala bankans á hlut-
um í fasteignafélaginu Reitum og
alþjóðlega drykkjaframleiðandan-
um Refresco Gerber.
Höskuldur Ólafsson, forstjóri
Arion, segir að regluleg starf-
semi bankans hafi líka gengið vel.
„Arðsemi reglulegrar starfsemi
er tæplega 10% á tímabilinu. Við
höldum áfram að vinna að því að
styrkja grunnrekstur bankans.
Við höfum þar lagt mikla áherslu
á að auka hlutdeild þóknanatekna
í heildartekjum bankans og juk-
ust þær um 19% miðað við sama
tímabil fyrir ári. Af þóknana-
tekjum bankans koma rúm 80%
frá fyrirtækjum en tæp 20% úr
þjónustu við einstaklinga í við-
skiptabankanum,“ segir Hösk-
uldur.
Arðsemi eigin fjár bankans var
35,1 prósent á fjórðungnum sam-
anborið við 7,8 prósent á sama
tímabili árið 2014. Hagnaður af
reglulegri starfsemi á tímabilinu
nam 4,0 milljörðum króna sam-
anborið við 1,7 milljarða á sama
tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár
af reglulegri starfsemi nam 9,8
prósentum á fyrsta ársfjórðungi
samanborið við 4,6 prósent á
sama tímabili 2014. Heildareign-
ir námu 1.004,3 milljörðum króna
samanborið við 933,7 milljarða
króna í árslok 2014. - jhh
Óreglulegir liðir setja stórt strik í reikninginn á fyrsta ársfjórðungi:
Hagnaður Arion banka
fimmfaldast milli ára
GÓÐUR
REKSTUR
Höskuldur
Ólafsson segir
að regluleg
starfsemi hafi
gengið vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tap Sinnum eftir skatta á síðasta
ári nam 15,1 milljón króna. Það
er heldur lakari afkoma en var á
félaginu árið áður, þegar hagnað-
urinn nam 4,7 milljónum króna.
Rekstrartap fyrir fjármagnsliði
í ár var 18,4 milljónir króna en
rekstrarhagnaður 5,5 milljónir
árið á undan.
Sinnum er fyrirtæki sem sinn-
ir félagsþjónustu án dvalar fyrir
aldraða og fatlaða. Fyrirtækið er
í 100 prósent eigu Evu Con sortiu.
Eigendur Consortiu eru svo þrír,
það er Gekka ehf., félag í eigu
Ásdísar Höllu Bragadóttur og
Aðalsteins Jónassonar, sem á 43
prósenta hlut. Flösin ehf., félag
Ástu Þórarinsdóttur og Gunnars
Viðar á 27 prósenta hlut. Kjölfesta
G á svo 30 prósenta hlut, en Kjöl-
festa er í eigu Virðingar og ALM
fjármálaráðgjafar. - jhh
Rekstur Sinnum skilaði heldur lakari afkomu í fyrra en árið á undan:
15 milljóna króna
tap hjá Sinnum
FRAMKVÆMDASTJÓRINN Stella Víðisdóttir er
framkvæmdastjóri Sinnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
27,6
milljarðar voru heildareignir Haga í
lok rekstrarársins.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
8
-B
7
E
C
1
6
3
8
-B
6
B
0
1
6
3
8
-B
5
7
4
1
6
3
8
-B
4
3
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K