Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 58
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 42 OLÍS-DEILD KVENNA LOKAÚRSLIT KVENNA STJARNAN - GRÓTTA 23-24 (13-10) Stjarnan - Mörk (skot): Sólveig Lára Kjærnested 7/1 (14/1), Esther Viktoría Ragnarsdóttir 5 (8), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 4 (8), Þórhildur Gunnarsdóttir 3 (5), Stefanía Theodórsdóttir 1 (1), Sandra Sif Sigurjónsdóttir 1 (2), Guðrún Erla Bjarnadóttir 1 (3), Helena Rut Örvarsdóttir 1 (9), Varin skot: Florentina Stanciu 20/1 (44/3, 45%). Grótta - Mörk (skot): Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir 7 (10), Lovísa Thompson 4 (6), Eva Björk Davíðsdóttir 4 (12/1), Karólína Bæhrenz Lárudóttir 2 (2), Þórunn Friðriksdóttir 2 (3), Laufey Ásta Guðmundsdóttir 2/1 (4/2), Sunna María Einarsdóttir 2/1 (5/1), Arndís María Erlings- dóttir 1 (3), Eva Margrét Kristinsdóttir (1), Guðný Hjaltadóttir (2), Anett Köbli (3), Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 9 (27/1, 33%), Elín Jóna Þorsteinsdóttir 7 (12, 58%). MEISTARADEILDIN UNDANÚRSLIT BAYERN MÜNCHEN - BARCELONA 3-2 1-0 Mehdi Benatia (7.), 1-1 Neymar (15.), 1-2 Neymar (29.), 2-2 Robert Lewandowski (59.), Thomas Müller (74.). Barcelona mætir annaðhvort Real Madrid eða Juventus í úrslitaleiknum en seinni undanúrslitaleikur þeirra fer fram í kvöld. Grensásvegi 13 Árni Stefánsson Viðskiptafræðingur Sveinbjörn Halldórsson Löggiltur fasteignasali Stofnuð 1982 OPI Ð H ÚS VÍÐIMELUR 70 - TVÆR ÍBÚÐIR OPIÐ HÚS Í DAG MIÐVIKUDAG FRÁ KL. 17:00 – 17:30 Vorum að fá í sölu einstaklega glæsilega 157 fm hæð og 72 fm 2ja herbergja kjallaraíbúð við Víðimel, samtals 229 fm. Falleg eign sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Frábær staðsetning í fallegu og rólegu hverfi í Vesturbænum. Fimm svefnherbergi, þrjár stofur, tvö eldhús, auka- herbergi í risi, sérútbúnar svalir og gufubað. Íbúðirnar seljast saman eða í sitt hvoru lagi. Verð 77.8 millj. Mjög góð og einstaklega vel skipulögð 58,1 fm tveggja herbergja neðri sérhæð í góðu húsi í vesturbænum sem var byggt 1986. Sérinngangur, afgirt sérverönd. Sérbílastæði. Frábær staðsetning. Endurnýjað eldhús. Björt og góð íbúð. Verð 28,9 millj. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13.maí milli kl. 17:15 og kl. 17:45 Lágholtsvegur 12 – neðri hæð OP IÐ HÚ S mi ðvi ku da g Sala fasteigna frá 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík SPORT HANDBOLTI Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild karla í fyrrakvöld eftir þrjá sigra í röð á móti nýliðum Aftureldingar en þetta var fyrsti Íslandsmeist- aratitill Hauka í fimm ár og jafn- framt níundi titillinn hjá félaginu á þessari öld. Haukaliðið tapaði ekki leik alla úrslitakeppnina og vann liðin í 1. sæti (Valur), 2. sæti (Afturelding) og 4. sæti (FH) á leið sinni að titl- inum. Fimm af átta sigrum Hauka- liðsins í úrslitakeppninni komu því á útivelli. Haukar unnu ekki bara alla þrjá leikina á móti Mosfellingum, þeir voru líka með forystuna nær allan tímann í öllu einvíginu þrátt fyrir að spila tvo af leikjunum þrem- ur á heimavelli Aftureldingar að Varmá. Afturelding komst aðeins fjór- um sinnum yfir í leikjunum þrem- ur og aldrei meira en eitt mark yfir. Þegar tíminn er lagður saman kemur í ljós að Aftureldingarliðið var aðeins með forystuna í fjórar mínútur og 33 sekúndur í öllu ein- víginu. Þetta gerir bara 2,5 pró- sent af mínútunum 180. Haukaliðið var aftur á móti yfir í 154 mínútur og 31 sekúndu í leikj- unum þremur (85 prósent) og stór- an hluta þess tíma var Hafnar- fjarðarliðið með margra marka forystu. Haukar náðu fimm marka for- skoti í öllum þremur leikjunum og komust sex mörkum yfir í fyrri hálfleiknum á bæði leik eitt og tvö. Lokaleikurinn var „jafnast- ur“ en þar voru Haukarnir með forystuna í 44 mínútur og náðu bara mest þriggja marka forystu í fyrri hálfleiknum. Í fyrstu tveimur leikjunum leiddu Mosfellingar aðeins í 56 sekúndur samanlagt eða eftir að Jóhann Jóhannsson kom liðinu í 3-2 í byrjun leiks eitt. Ellefu mín- útum síðan var staðan hins vegar orðin 10-4 fyrir Haukaliðið. Afturelding var lengst með for- ystuna í einu í kringum hálfleik- inn í þriðja og síðasta leiknum. Árni Bragi Eyjólfsson kom þá lið- inu yfir í 11-10 þremur sekúndum fyrir hálfleik og Haukar náðu ekki að jafna metin fyrr en eftir einn- ar mínútu og 43 sekúndna leik í seinni hálfleiknum. Forföll og reynsluleysi háði Aftur eldingu vissulega í þessum lokaúrslitum en þegar á hólminn var komið áttu nýliðarnir engin svör við hungri Haukanna, sem ætluðu ekki að tapa þriðja úrslita- einvíginu í röð. - óój Bara undir í tæpar fi mm mínútur Haukar voru með forystu í 85 prósentum af lokaúrslitum Olís-deildar karla 2015. ÓTRÚLEGAR TÖLUR Jóhann Jóhanns- son og félagar lentu á Haukavegg í lokaúrslitunum í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ Lið með forystuna í lokaúrslitum Olís- deildar karla 2015: Afturelding yfir 3 mínútur og 43 sekúndur Jafnt 22 mínútur og 6 sekúndur Haukar yfir 154 mínútur og 31 sekúnda HANDBOLTI Grótta braut blað í sögu félagsins er liðið varð Íslandsmeistari kvenna í hand- bolta eftir æsilegan sigur á Stjörn- unni í Garðabæ í gær, 24-23. Grótta vann úrslitaeinvígið þar með 3-1. Stjarnan var á góðri leið með að tryggja sér oddaleik í rimmunni þar til að Grótta kom sér aftur inn í leikinn með frábærum varnar- leik síðustu tíu mínútur leiksins. Liðið fékk svo síðustu sókn leiksins þegar nítján sekúndur voru eftir og ákvað Kári Garðars- son, þjálfari Gróttu, að stilla upp í kerfi fyrir hina fimmtán ára gömlu Lovísu Thompson. Þrátt fyrir basl og þó svo að allt hafi ekki gengið upp samkvæmt uppskrift þjálfarans náði Lovísa að taka lokaskotið og skoraði hún fram hjá hinni frábæru Florentinu Stanciu, markverði Stjörnunnar. Gríðarlegur fögnuður braust út hjá Seltirningum sem höfðu beðið lengi eftir jafn stórum titli og þessum. Grótta vann því þrjá stærstu titla tímabilsins því liðið varð einnig deildarmeistari sem og bikar meistari. Sannarlega glæsi- legur árangri hjá Kára og leik- mönnum hans. „Þetta er ótrúlegt að vera með lið sem er með uppalda leikmenn í nánast hverri stöðu. Þetta er ólýsan leg tilfinning, að vinna bæði þennan titil og bikarinn í vetur, og hrikalega skemmtilegt fyrir mig að fá að vinna með þessum hópi,“ sagði Kári sem óttaðist ekki að setja þá ábyrgð á herðar Lovísu að taka lokaskotið. „Hún hefur axlað ábyrgð í allan vetur og staðið sig frábærlega. Þetta er bara í beinu framhaldi af því. Hún er bara í stóru hlutverki hjá okkur.“ Sjálf sagði Lovísa að hún hefði ekki hugsað um neitt annað en að tryggja sínu liði sigur. „Ég hugsaði ekki um neitt annað en að ég ætlaði bara að skora. Það var það eina sem ég hugsaði um,“ sagði hin hógværa Lovísa. Hún er greinilega með stálaga þar að auki því hún fagnaði sigrinum með mölbrotnu páskaeggi sem var enn í umbúðum sínum. „Ég ákvað að geyma páskaeggið þar til að úrslitakeppnin var búin,“ sagði hún skælbrosandi. Rakel Dögg Bragadóttir kom inn í þjálfarateymi Stjörnunnar eftir að hafa glímt við afleiðingar höfuðhöggs sem batt enda á leik- mannsferil hennar, þrátt fyrir ungan aldur. Hún segir að það hafi verið erfitt að sætta sig við niður- stöðuna. „Auðvitað vildi ég taka gullið. Engu að síður eru margir nýir leikmenn að koma inn og þessi hópur hefur bætt sig á mörgum sviðum – ekki bara í handboltan- um. Það er ég mjög ánægð með,“ sagði hún um lið sitt. „Ég er mjög stolt af því að vera hér með þessu liði í úrslitum og hafa slegið út bæði Val og Fram, og svo að hafa náð alla vega einum sigri gegn Gróttu.“ eirikur@frettabladid.is Ísköld Lovísa hetjan Grótta varð Íslandsmeistari í hópíþrótt í fyrsta sinn í sögu félagsins er liðið vann sigur á Stjörnunni í Mýrinni í gær. Hin fi mmtán ára gamla Lovísa Thompson skoraði dramatískt sigurmark Gróttu. FYRSTI ÍSLANDSMEISTARATITILLINN Grótta hafði ekki unnið stóran titil fyrir tímabilið en er nú handhafi þriggja stærstu titlanna. Seltjarnarnesliðið er Íslands-, deildar- og bikarmeistari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI „Þetta var ætlunin með því að fara aftur í Gróttu. Engin spurning,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sem vann sinn fimmta Íslandsmeistara- titil í gær. Anna vann hina fjóra með Val en skipti yfir í uppeldis- félagið fyrir þetta tímabil: „Ég er helvíti góð að ná þessum titli í hús á undan áætlun og öllum þessum þremur í vetur,“ sagði Anna ennfremur. - esá Veturinn var stórkostlegur GLEÐI Grótta vann Stjörnuna í fjórum leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 8 -F D 0 C 1 6 3 8 -F B D 0 1 6 3 8 -F A 9 4 1 6 3 8 -F 9 5 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.