Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 10
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Katmandú Everest NEPAL KÍNA INDLAND 25. APRÍL 11:56 að staðartíma, Stærð skjálftans 7,8 25. APRÍL 12:30 að staðartíma Stærð skjálftans 6,6 26. APRÍL 12:54 að staðartíma Stærð skjálftans 6,7 12. MAÍ 12:50 að staðartíma Stærð skjálftans 7,3 12. MAÍ 13:21 að staðar- tíma Stærð skjálftans 6,3 FIMM STÓRIR SKJÁLFTAR 25 ára ábyrgð gegn ryði og tæringu Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is 25 ára ábyrgð gegn ryði og tæringu Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Avalon gasgrill 5 brennara Orka 22,8 KW = 78.000 BTU 4 brennarar úr ryðfríu stáli Innrauður ofurbrennari fyrir fullkomna Nautasteik Triton gasgrill 3ja brennara Niðurfellanleg NEPAL Jarðskjálftinn í Nepal í gær mældist 7,3 stig og reið yfir skammt frá hlíðum Everestfjalls- ins. Meira en þúsund manns urðu fyrir meiðslum og tugir manna létust. Mikil skelfing braust út og öng- þveiti ríkti í borgum og bæjum landsins. Aðeins átján dagar eru frá því enn stærri skjálfti reið þar yfir og kostaði þúsundir manna lífið. Hundruð þúsunda heimila eyðilögðust í skjálftanum 25. apríl og í gær eyðilögðust fjölmörg hús til viðbótar. Skjálftinn í gær varð 150 kíló- metrum austar en skjálftinn fyrir hálfum mánuði. Nokkru minni eftirskjálfti varð svo enn austar og óttast er að keðjuverk- un geti leitt af sér fleiri stóra jarðskjálfta áfram austur eftir flekaskilunum næstu mánuðina og árin. Bandaríska landfræðistofnun- in USGS telur líklegt að hundruð manna hafi látist í skjálftanum í gær. Stofnunin styðst við tölur um íbúafjölda á hamfarasvæðunum og reiknar út líkur á mannfalli. Þegar skjálftinn mikli reið yfir 25. apríl spáði stofnunin því að hann myndi hafa kostað meira en tíu þúsund manns lífið. Í gær var tala látinna komin yfir átta þúsund. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur sérstakar áhyggj- ur af örlögum barna á hamfara- svæðunum, en þau verða jafnan berskjaldaðri en aðrir íbúar þegar hamfarir af þessu tagi ríða yfir. Að sögn UNICEF á Íslandi hafa góðar viðtökur verið við neyðar- söfnun fyrir börn í Nepal. Í gær höfðu 14,5 milljónir króna safnast. Söfnunin er enn í fullum gangi og UNICEF hefur aukið dag frá degi við aðgerðir sínar á skjálfta- svæðinu. Stærstu skjálftar hér á landi hafa mælst um 7 stig, en stóru skjálftarnir undanfarna áratugi hafa allir verið um 6,5 stig. gudsteinn@frettabladid.is Aftur skalf í Nepal Tugir manna létust í Nepal, Indlandi og Tíbet. Óttast að tala látinna eigi enn eftir að hækka. Skjálftinn fyrir rúmlega hálfum mánuði var fimm sinnum stærri. HLUPU ÚT ÚR HÚSUM Íbúar í Katmandú héldu út á opin svæði milli húsa þegar skjálftinn reið yfir í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA BJARGAR BÓKUNUM SÍNUM Drengur þessi leitaði í rústum heimilis síns að skóla- bókunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 14,5 milljónir króna hafa nú safnast hér á landi í söfnun UNICEF fyrir börn í Nepal. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is BANDARÍKIN Mikil fækkun hefur orðið á kristnum Bandaríkja- mönnum á síðustu sjö árum. Þetta kemur fram í nýrri könnun bandarísku rannsóknarmiðstöðv- arinnar Pew Research Center. Nú eru 71 prósent Bandaríkjamanna kristin, en fyrir sjö árum voru 78 prósent kristin. Ástæður þessa eru aðallega taldar þær, að yngri kynslóðir eru ekki eins trúaðar og tíðkaðist áður. 51 prósent af ungu kynslóðinni telur sig krist- innar trúar. - ngy Sjötíu og eitt prósent kristin: Kristnum fækkar í Bandaríkjunum KJARAMÁL Viðskiptaráð fagnar því að stjórn- völd líti til skattalækkana til að leysa núverandi kjaradeilur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðinu í kjölfar hugmynda stjórnvalda um breyt- ingar á skattakerfinu til að liðka fyrir lausn kjaradeilna. Í breytingunum felst meðal annars fækkun skattþrepa úr þremur í tvö og veruleg hækkun persónuafsláttar. Þá kemur fram í tilkynningunni að fækkun skattþrepa væri framfaraskref sem myndi draga úr neikvæðum áhrifum skattkerfisins á vinnu- framlag og hvata til menntunar. Það er þó mat ráðsins að mikil hækkun persónuafsláttar sé ekki heppileg leið til lausnar á núverandi deilum. Ráðið telur að slík breyting myndi fjölga þeim sem greiða enga skatta og færa tekjuskattkerfið lengra í átt til aukinnar stigvaxandi skattbyrðar. Viðskiptaráð telur að við lausn núverandi kjaradeilna sé brýnt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar missi ekki sjónar á því að hag- felld skilyrði fyrir aukinni verðmætasköpum séu best til þess fallin að bæta kjör launþega. Hluti af slíkum skilyrðum sé að einstaklingar hafi hvata til að auka við þekkingu sína og skapa þannig aukin samfélagsleg verðmæti. Almenn lækkun tekjuskattshlutfalla eða fækkun skattþrepa væri heppilegri leið til að að ná slíku markmiði. - ngy Ráðið telur mikla hækkun persónuafsláttar ekki heppilega leið til lausnar á núverandi kjaradeilum: Viðskiptaráð hlynnt breytingum á skattakerfinu FAGNA SKATTALÆKKUNUM Frosti Ólafsson er fram- kvæmdastjóri VÍ sem fagnar fækkun skattþrepa. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 8 -F D 0 C 1 6 3 8 -F B D 0 1 6 3 8 -F A 9 4 1 6 3 8 -F 9 5 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.