Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 8
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
FLUTTIR
Velkomin í einn stærsta sýningarsal
notaðra bíla á landinu að Kletthálsi 13.
Enn betri þjónusta í enn betra umhverfi.
HEKLA notaðir bílar.
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
ALÞINGI Seinni umræða um
umdeilda tillögu meirihluta
atvinnuveganefndar þingsins
um fjölgun virkjanakosta kom
til umræðu á Alþingi í gær.
Umhverfisráðuneyti Sigrúnar
Magnúsdóttur telur þingið ekki
geta gert breytingar á flokkun
virkjanakosta. Mikil átök voru á
Alþingi í gær þar sem Einar K.
Guðfinnsson, forseti Alþingis,
var sakaður um að brjóta þing-
sköp.
Stjórnarandstaðan telur breyt-
ingartillöguna brjóta gegn lögum
um rammaáætlun sem samþykkt
var með 63 samhljóða atkvæðum
á síðasta þingi. Forseti þingsins
taldi svo ekki vera og var hún
þess vegna tekin til umræðu í
gær. Jón Gunnarsson, formaður
atvinnuveganefndar, telur hreint
með ólíkindum ef það væri þann-
ig að tillaga sem kæmi frá ráð-
herra gæti ekki tekið breyting-
um í þinginu. „Til hvers var þá
verið að vísa málinu til þingsins
til þinglegrar meðferðar ef það
var vilji þingsins á sínum tíma
til að úrskurður ráðherra væri
endanlegur,“ sagði Jón í ræðu á
þingi í gær.
Umhverfis- og auðlindaráðu-
neytið telur hins vegar umrædda
breytingartillögu ganga gegn
lögum um rammaáætlun. Í
minnis blaði ráðuneytisins um til-
lögu atvinnuveganefndar kemur
fram að Alþingi geti ekki breytt
flokkun virkjanakosta. Verk-
efnis stjórn um virkjanakosti
hefur ekki skilað tillögu um
flokkun þessara kosta til ráð-
herra og þingsályktunin sem nú
liggur fyrir Alþingi tekur ekki
til þeirra kosta. „Það er því mat
umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins að lög nr. 48/2011 geri
ekki ráð fyrir að Alþingi geti
gert breytingar á flokkun þess-
ara kosta þar sem lögbundið ferli
verndar- og orkunýtingaráætlun-
ar hefur ekki farið fram hvað þá
varðar.“
Þrír þingmenn óskuðu í gær
eftir breytingum á dagskrá
þingsins. Þingsköp segja til um
að við upphaf þingfundar skuli
bera dagskrárbreytingartillögu
undir þingið. Tillagan var hins
vegar ekki borin undir þing-
ið fyrr en að loknum fyrsta lið
á dagskrá þingsins. „Við teljum
að þarna hafi þingsköp verið
brotin,“ segir Katrín Júlíusdótt-
ir. „Það eru fáir þingdagar eftir
samkvæmt dagskrá. Það eru
erfiðar deilur á vinnumarkaði
og þá telur þessi ríkisstjórn það
vera sitt forgangsmál að þjösna í
gegnum þingið svo umdeildri til-
lögu um vægast sagt vafasamar
ráðstafanir í auðlindamálum
þjóðarinnar.“
sveinn@frettabladid.is
Ráðuneyti
telur tillögu
Jóns ólöglega
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið segir í athugasemd
við endurmat þingsins á virkjunarkostum stangast á
við lög um rammaáætlun. Hörð átök á þingi í gær.
HÖRÐ ÁTÖK Hart var tekist á um umdeilda tillögu meirihluta atvinnuveganefndar
í gær. Minnisblað umhverfis- og auðlindaráðuneytisins telur hins vegar Alþingi ekki
geta breytt flokkun virkjanakosta.
JÓN GUNNARS-
SON formaður
atvinnuvega-
nefndar
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
þIngmaður Sam-
fylkingarinnar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Land-
verndar, telur breytingartillögu meirihluta atvinnuvega-
nefndar til þess fallna að eyðileggja rammaáætlun og fagleg
umfjöllun sé virt að vettugi.
„Þessu verður ekki tekið með þögninni. Tillagan brýtur
leikreglur og ráðuneytin sjálf efast um að hún sé í samræmi
við lög. Umræddar virkjanahugmyndir hafa ekki hlotið
fullnægjandi faglega umfjöllun, og tilraun til sátta um
orkunýtingu í landinu hangir á bláþráði. Ég fæ ekki betur
séð en þetta ráðabrugg alþingismannsins sé beinlínis til þess fallið að
eyðileggja rammaáætlun,“ segir Guðmundur Ingi.
„Verið að eyðileggja rammaáætlun“
Til hvers var þá verið
að vísa málinu til þingsins
til þinglegrar merðferðar ef
það var vilji þingsins á
sínum tíma til að úrskurð-
ur ráðherra væri endan-
legur?
Jón Gunnarsson.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
9
-1
A
A
C
1
6
3
9
-1
9
7
0
1
6
3
9
-1
8
3
4
1
6
3
9
-1
6
F
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K