Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 12
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
©
G
R
A
P
H
IC
N
E
W
S
„Ég hafði beðið í klukkutíma eftir
myndatöku en þegar röðin kom að
mér var ég send út til þess að sækja
gögn um trú mína.“
Hala bað vinkonu sína, Saida El
Bouazzati, um hjálp. Saida hefur
búið á Íslandi í nærri tvo áratugi og
þekkir samfélagið vel. „Hala grét af
áhyggjum og skildi ekki hvað var að
gerast. Ég sjálf ber hijab í vegabréfi
mínu og hef alltaf gert, ég hef aldrei
verið beðin um þessa staðfestingu
áður. Hvorki hér né annars staðar
svo ég ákvað að leita skýringa á
þessu. Ég hringdi til sýslumanns og
þar fékkst það staðfest að hún þyrfti
að skila inn gögnum um trú sína.
Mér var bent á að tala við Þjóðskrá
sem setur reglur um vegabréf og ég
gerði það,“ segir Saida.
Svörin þar voru á sömu leið. Hér
væru lög sem giltu um myndir í
vegabréfum sem við þyrftum að
fara eftir. En hvað þýða þessi lög
og reglur? Að við þurfum að reiða
okkur á utanaðkomandi staðfest-
ingu? Að við þurfum að skrá okkur í
trúfélag? Hvaða frelsi höfum við og
hvaða réttindi, við erum ekki viss-
ar lengur um það. Við höfum ekki
heyrt um þessa breytingu á lögum
og hefðum mótmælt þeim af krafti.
Hvað næst? Þurfum við leyfi eigin-
manna eða forsvarsmanna trúfélaga
til að ferðast?“
Tákn hógværðar og mildi
Hala segist stolt af því að búa á
Íslandi. „Ísland er besta land í
Skandinavíu og hér ríkir bæði trú-
og kvenfrelsi. Ég held að það hafi
gleymst að skoða réttindi múslima-
kvenna, það þarf að endurskoða
þetta ferli. Ég óska þess,“ segir hún
mildilega. Henni finnst óþægilegt
að standa á sínu hvað þetta varðar.
Hún ber hijab af mörgum ástæðum,
hún er tákn hógværðar og mildi
fyrir henni. „Hijab er alls staðar í
heiminum, þetta er bara slæða sem
er okkur mikilvægt trúartákn og
hluti menningar okkar, fyrir okkur
er þetta tákn um hógværð og við
berum hana af því við viljum það.“
Saida segir marga halda að konur
beri slæðuna til að hylja hár sitt.
„Ég hef búið annars staðar og þetta
hefur aldrei komið upp áður svo ég
muni eftir. Við erum ekki í búrku,
þetta er bara hijab og það sést mjög
vel í alla andlitsdrætti. Við höfum
aldrei heyrt um nokkuð svona áður.
Í mörgum arabalöndum þarf að
tiltaka trú í vegabréfi og í mörgum
arabalöndum er frelsi kvenna skert.
Vill Ísland líka vera þjóðfélag sem
krefst þess að aðrir tali fyrir hönd
kvenna? Megum við ekki bara stað-
festa okkar trú sjálfar? Vill íslenskt
þjóðfélag að konur skrái sig í trú-
félag án þess að vilja það? Megum
við ekki ráða því sjálfar?“ spyr
Saida.
Saida minnir á að þær eru Íslend-
ingar og njóti sömu mannréttinda og
aðrir. „Við erum Íslendingar líka.
Við stöndum ekki utan samfélags-
ins. Mér finnst ekki rétt að neita
okkur um vegabréf ef við viljum
við ekki að aðrir staðfesti trú okkar
fyrir okkur. “
Erfitt að ferðast
Hala er upprunalega frá Sýrlandi
og kom hingað fyrst árið 1996. Hún
hefur búið á landinu með hléum.
„Ég fæddi börnin mín þrjú hér á
landi. Sú elsta er átján ára og synir
mínir tveir eru 15 og 16 ára. Það
gengur vel hjá okkur. Það eru mikil
vandamál í heiminum í dag, litla
systir mín býr í Sýrlandi þar sem
ástandið er mjög ótryggt. Það er
langt síðan ég hef ferðast til Sýr-
lands, ég vil frekar að systir mín fái
að koma til mín. Ég sé fyrir henni,
fer í bankann í hverjum mánuði
og sendi henni peninga. Foreldr-
ar okkar eru látnir en ég fæ samt
ekki að óska þess að hún fái að koma
hingað til lands. Það verður sífellt
erfiðara að ferðast vegna ástands í
arabalöndunum.“
Saida útskýrir að konur geti vel
lent í erfiðleikum á ferðalögum án
hijab. „Þetta er ekki aðalatriði, í
langflestum tilvikum er auðvelt
að ferðast um. En það getur komið
fyrir að ef við erum með vegabréf
án hijab en það eru kannski myndir
af okkur í kerfinu með hijab að það
vakna spurningar. Hvers vegna er
hún ekki með hijab í vegabréfinu?
Er hún að villa á sér heimildir?
Þetta getur gerst.“
Saida hefur sjaldan lent í erfið-
leikum. Það var hins vegar í Leifs-
stöð sem henni sárnaði framkoma
í eftirliti gagnvart aldraðri móður
hennar. „Hún var með hijab og orðin
háöldruð. Þeir vildu leita á henni
og ég bað þá vinsamlegast að fara
með hana í annað herbergi. Þar var
hún látin fara úr öllu nema brjósta-
haldaranum. Greyið mamma, henni
sárnaði svo mikið að hún hefur
aldrei viljað koma til Íslands síðan.“
Erfitt að fá vinnu með hijab
Það er ekki eingöngu í stofnunum
ríkis sem þær finna fyrir fordóm-
um. Þær segja þekkt að konur með
hijab eigi erfitt með að fá vinnu.
„Við fáum síður vinnu með hijab.
Við erum beðnar um að taka niður
slæðuna ef við viljum fá vinnu.
En þetta er bara slæða. Íslenskar
verkakonur báru höfuðklúta við
vinnu í gamla daga. María mey er
með hijab!“ segir hún og skellir upp
úr. „Ég skil ekki hvers vegna þetta
þykir svona háalvarlegt. Mér finnst
skrítið hversu illa Íslendingum er
við höfuðklútana sem eru einstak-
lega hentug höfuðföt í svona köldu
veðri,“ segir Saida.
SAMFÉLAG „Ég óska þess að stofn-
anir á Íslandi hætti að biðja mús-
limakonur að sanna trú sína með
því að biðja aðra sem þekkja þær
ekki neitt um staðfestingu. Trú mín
kemur engum við nema hér. Hún er
persónuleg,“ segir Hala Fadlyeh,
sem var send frá Sýslumanninum
í Kópavogi og beðin um að skila
inn staðfestingu á að hún klæðist
hijab, höfuðklút, vegna trúar sinnar.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
Ísland er besta land í
Skandinavíu og hér ríkir
bæði trú- og kvenfrelsi.
Ég held að það hafi
gleymst að skoða réttindi
múslimakvenna, það þarf
að endurskoða þetta ferli.
Ég óska þess.
Hala Fadlyeh.
ALDREI LENT Í ERFIÐLEIKUM Saida hefur fengið að sitja fyrir með hijab án þess að
biðja um staðfestingu frá 2001. Vinkona hennar, Hala, var hins vegar beðin um slíka
staðfestingu. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJANA
Hijab: Arabic for veil.
Square scarf covering
head and neck is most
common style worn by
Muslim women in West
Niqab: Veil for face
that leaves only eyes
uncovered. Common
across much of Arabian
peninsula and Pakistan
Burqa: Most
concealing of all Islamic
veils, covering entire
body with only mesh
grille to see through
Fern ngslaga
slæða sem þekur
höfuð og háls. Andlit
kven a m ð hijab
sést vel.
Blæja sem
hylur líkamann, hárið,
og allt nema augun
kallast Niqab, sem á
arabísku þýðir gríma.
ú k klæði sem
hylj ánast allan
líkama kvenna einnig
andlitið g augun.
DÆMI UM HÖFUÐKLÚTA OG KLÆÐI MÚSLIMA-
KVENNA SLÆÐUR, BLÆJUR OG BÚRKUR
Made by Lavor
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
GOTT Í VORIÐ
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
1400W, 360 lítr./klst.
Þolir 50°C heitt vatn
5 metra barki, sápubox
Black&Decker
háþrýstidæla max bar 110
14.990,-
• 160 bar Max
• 8,5 lítrar/mín.
• 2500W
• Pallabursti
• 8 metra slanga
• Turbo stútur
• Slanga fyrir stíflulosun
• Þvottabursti
Lavor háþrýstidæla STM 160
27.990
Bíla & gluggaþvotta-
kústur, gegn um rennandi
116>180cm, hraðtengi
með lokun
2.690
Segja reglur Þjóðskrár
brjóta í bága við trúfrelsi
Tvær múslimskar konur mótmæla því að mega ekki fá vegabréfsmynd með hijab, höfuðklút, án utanaðkom-
andi staðfestingar. Eiginmaður sótti staðfestingu fyrir konu sína. Sú hefði viljað votta sjálf um eigin trú.
EIGINMAÐURINN SÓTTI
STAÐFESTINGU Hala fékk
að lokum staðfestingu frá
trúfélagi hér á landi. Eigin-
maðurinn sótti hana.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMGÖNGUR Icelandair ætlar að
hefja áætlunarflug til Chicago í
Bandaríkjunum í mars 2016 og
verður flogið til og frá borginni
allt árið um kring. Borgin verður
fimmtándi áfangastaðurinn í Norð-
ur-Ameríku sem Icelandair býður
upp á í leiðakerfi sínu. „Chicago-
svæðið er rúmlega tíu milljóna
manna markaður og með beinu
flugi stefnum við að því að marg-
falda ferðamannafjöldann frá
svæðinu til Íslands,“ segir fram-
kvæmdastjóri Icelandair. - ngy
Nýr áfangastaður Icelandair:
Hefja áætlunar-
flug til Chicago
CHICAGO Fimmtándi áfangastaður Ice-
landair í Norður Ameríku.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
EFNAHAGSMÁL Ættu starfsmenn
fyrirtækja aukinn hlut í þeim og
fengju þeir stærri hlut af hagnað-
inum gæti ójöfnuður í samfé-
laginu minnkað. Þetta er mat hag-
fræðingsins Richard B. Freemans
sem starfar við Harvard-háskóla í
Bandaríkjunum.
Freeman hefur gert skýrsluna
Workers ownership and profit-
sharing in að new capitalist model
fyrir sænska alþýðusambandið.
Greint er frá þessu á viðskiptavef
Sænska Dagblaðsins. - ibs
Ráð Harvard-hagfræðings:
Auka þarf hlut
starfsmanna
ORKUMÁL „Í ljósi þess að skipt-
ar skoðanir eru um uppbyggingu
vindmyllugarðs í Grindavík, býður
bæjarráð fulltrúum fyrirtækis-
ins að halda opinn kynningar-
fund og kynna verkefnið fyrir
íbúum Grindavíkur áður en málið
verður unnið lengra,“ segir bæjar-
ráð Grindavíkur vegna máls
þýska fyrirtækisins EAB. EAB
vildi byrja á vindmælingum og
bæjarráðið samþykkti í apríl að
bæjarstjórinn myndi „vinna málið
áfram“ en vísar nú til umhverfis-
og ferðamálanefndar bæjarins
sem „hugnast ekki að byggður
verði vindmyllugarður“. - gar
Skiptar skoðanir í Grindavík:
Kynni íbúunum
vindmyllugarð
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
8
-7
2
C
C
1
6
3
8
-7
1
9
0
1
6
3
8
-7
0
5
4
1
6
3
8
-6
F
1
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K