Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 12
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 © G R A P H IC N E W S „Ég hafði beðið í klukkutíma eftir myndatöku en þegar röðin kom að mér var ég send út til þess að sækja gögn um trú mína.“ Hala bað vinkonu sína, Saida El Bouazzati, um hjálp. Saida hefur búið á Íslandi í nærri tvo áratugi og þekkir samfélagið vel. „Hala grét af áhyggjum og skildi ekki hvað var að gerast. Ég sjálf ber hijab í vegabréfi mínu og hef alltaf gert, ég hef aldrei verið beðin um þessa staðfestingu áður. Hvorki hér né annars staðar svo ég ákvað að leita skýringa á þessu. Ég hringdi til sýslumanns og þar fékkst það staðfest að hún þyrfti að skila inn gögnum um trú sína. Mér var bent á að tala við Þjóðskrá sem setur reglur um vegabréf og ég gerði það,“ segir Saida. Svörin þar voru á sömu leið. Hér væru lög sem giltu um myndir í vegabréfum sem við þyrftum að fara eftir. En hvað þýða þessi lög og reglur? Að við þurfum að reiða okkur á utanaðkomandi staðfest- ingu? Að við þurfum að skrá okkur í trúfélag? Hvaða frelsi höfum við og hvaða réttindi, við erum ekki viss- ar lengur um það. Við höfum ekki heyrt um þessa breytingu á lögum og hefðum mótmælt þeim af krafti. Hvað næst? Þurfum við leyfi eigin- manna eða forsvarsmanna trúfélaga til að ferðast?“ Tákn hógværðar og mildi Hala segist stolt af því að búa á Íslandi. „Ísland er besta land í Skandinavíu og hér ríkir bæði trú- og kvenfrelsi. Ég held að það hafi gleymst að skoða réttindi múslima- kvenna, það þarf að endurskoða þetta ferli. Ég óska þess,“ segir hún mildilega. Henni finnst óþægilegt að standa á sínu hvað þetta varðar. Hún ber hijab af mörgum ástæðum, hún er tákn hógværðar og mildi fyrir henni. „Hijab er alls staðar í heiminum, þetta er bara slæða sem er okkur mikilvægt trúartákn og hluti menningar okkar, fyrir okkur er þetta tákn um hógværð og við berum hana af því við viljum það.“ Saida segir marga halda að konur beri slæðuna til að hylja hár sitt. „Ég hef búið annars staðar og þetta hefur aldrei komið upp áður svo ég muni eftir. Við erum ekki í búrku, þetta er bara hijab og það sést mjög vel í alla andlitsdrætti. Við höfum aldrei heyrt um nokkuð svona áður. Í mörgum arabalöndum þarf að tiltaka trú í vegabréfi og í mörgum arabalöndum er frelsi kvenna skert. Vill Ísland líka vera þjóðfélag sem krefst þess að aðrir tali fyrir hönd kvenna? Megum við ekki bara stað- festa okkar trú sjálfar? Vill íslenskt þjóðfélag að konur skrái sig í trú- félag án þess að vilja það? Megum við ekki ráða því sjálfar?“ spyr Saida. Saida minnir á að þær eru Íslend- ingar og njóti sömu mannréttinda og aðrir. „Við erum Íslendingar líka. Við stöndum ekki utan samfélags- ins. Mér finnst ekki rétt að neita okkur um vegabréf ef við viljum við ekki að aðrir staðfesti trú okkar fyrir okkur. “ Erfitt að ferðast Hala er upprunalega frá Sýrlandi og kom hingað fyrst árið 1996. Hún hefur búið á landinu með hléum. „Ég fæddi börnin mín þrjú hér á landi. Sú elsta er átján ára og synir mínir tveir eru 15 og 16 ára. Það gengur vel hjá okkur. Það eru mikil vandamál í heiminum í dag, litla systir mín býr í Sýrlandi þar sem ástandið er mjög ótryggt. Það er langt síðan ég hef ferðast til Sýr- lands, ég vil frekar að systir mín fái að koma til mín. Ég sé fyrir henni, fer í bankann í hverjum mánuði og sendi henni peninga. Foreldr- ar okkar eru látnir en ég fæ samt ekki að óska þess að hún fái að koma hingað til lands. Það verður sífellt erfiðara að ferðast vegna ástands í arabalöndunum.“ Saida útskýrir að konur geti vel lent í erfiðleikum á ferðalögum án hijab. „Þetta er ekki aðalatriði, í langflestum tilvikum er auðvelt að ferðast um. En það getur komið fyrir að ef við erum með vegabréf án hijab en það eru kannski myndir af okkur í kerfinu með hijab að það vakna spurningar. Hvers vegna er hún ekki með hijab í vegabréfinu? Er hún að villa á sér heimildir? Þetta getur gerst.“ Saida hefur sjaldan lent í erfið- leikum. Það var hins vegar í Leifs- stöð sem henni sárnaði framkoma í eftirliti gagnvart aldraðri móður hennar. „Hún var með hijab og orðin háöldruð. Þeir vildu leita á henni og ég bað þá vinsamlegast að fara með hana í annað herbergi. Þar var hún látin fara úr öllu nema brjósta- haldaranum. Greyið mamma, henni sárnaði svo mikið að hún hefur aldrei viljað koma til Íslands síðan.“ Erfitt að fá vinnu með hijab Það er ekki eingöngu í stofnunum ríkis sem þær finna fyrir fordóm- um. Þær segja þekkt að konur með hijab eigi erfitt með að fá vinnu. „Við fáum síður vinnu með hijab. Við erum beðnar um að taka niður slæðuna ef við viljum fá vinnu. En þetta er bara slæða. Íslenskar verkakonur báru höfuðklúta við vinnu í gamla daga. María mey er með hijab!“ segir hún og skellir upp úr. „Ég skil ekki hvers vegna þetta þykir svona háalvarlegt. Mér finnst skrítið hversu illa Íslendingum er við höfuðklútana sem eru einstak- lega hentug höfuðföt í svona köldu veðri,“ segir Saida. SAMFÉLAG „Ég óska þess að stofn- anir á Íslandi hætti að biðja mús- limakonur að sanna trú sína með því að biðja aðra sem þekkja þær ekki neitt um staðfestingu. Trú mín kemur engum við nema hér. Hún er persónuleg,“ segir Hala Fadlyeh, sem var send frá Sýslumanninum í Kópavogi og beðin um að skila inn staðfestingu á að hún klæðist hijab, höfuðklút, vegna trúar sinnar. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is Ísland er besta land í Skandinavíu og hér ríkir bæði trú- og kvenfrelsi. Ég held að það hafi gleymst að skoða réttindi múslimakvenna, það þarf að endurskoða þetta ferli. Ég óska þess. Hala Fadlyeh. ALDREI LENT Í ERFIÐLEIKUM Saida hefur fengið að sitja fyrir með hijab án þess að biðja um staðfestingu frá 2001. Vinkona hennar, Hala, var hins vegar beðin um slíka staðfestingu. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJANA Hijab: Arabic for veil. Square scarf covering head and neck is most common style worn by Muslim women in West Niqab: Veil for face that leaves only eyes uncovered. Common across much of Arabian peninsula and Pakistan Burqa: Most concealing of all Islamic veils, covering entire body with only mesh grille to see through Fern ngslaga slæða sem þekur höfuð og háls. Andlit kven a m ð hijab sést vel. Blæja sem hylur líkamann, hárið, og allt nema augun kallast Niqab, sem á arabísku þýðir gríma. ú k klæði sem hylj ánast allan líkama kvenna einnig andlitið g augun. DÆMI UM HÖFUÐKLÚTA OG KLÆÐI MÚSLIMA- KVENNA SLÆÐUR, BLÆJUR OG BÚRKUR Made by Lavor Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is GOTT Í VORIÐ Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ 1400W, 360 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn 5 metra barki, sápubox Black&Decker háþrýstidæla max bar 110 14.990,- • 160 bar Max • 8,5 lítrar/mín. • 2500W • Pallabursti • 8 metra slanga • Turbo stútur • Slanga fyrir stíflulosun • Þvottabursti Lavor háþrýstidæla STM 160 27.990 Bíla & gluggaþvotta- kústur, gegn um rennandi 116>180cm, hraðtengi með lokun 2.690 Segja reglur Þjóðskrár brjóta í bága við trúfrelsi Tvær múslimskar konur mótmæla því að mega ekki fá vegabréfsmynd með hijab, höfuðklút, án utanaðkom- andi staðfestingar. Eiginmaður sótti staðfestingu fyrir konu sína. Sú hefði viljað votta sjálf um eigin trú. EIGINMAÐURINN SÓTTI STAÐFESTINGU Hala fékk að lokum staðfestingu frá trúfélagi hér á landi. Eigin- maðurinn sótti hana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMGÖNGUR Icelandair ætlar að hefja áætlunarflug til Chicago í Bandaríkjunum í mars 2016 og verður flogið til og frá borginni allt árið um kring. Borgin verður fimmtándi áfangastaðurinn í Norð- ur-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu. „Chicago- svæðið er rúmlega tíu milljóna manna markaður og með beinu flugi stefnum við að því að marg- falda ferðamannafjöldann frá svæðinu til Íslands,“ segir fram- kvæmdastjóri Icelandair. - ngy Nýr áfangastaður Icelandair: Hefja áætlunar- flug til Chicago CHICAGO Fimmtándi áfangastaður Ice- landair í Norður Ameríku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EFNAHAGSMÁL Ættu starfsmenn fyrirtækja aukinn hlut í þeim og fengju þeir stærri hlut af hagnað- inum gæti ójöfnuður í samfé- laginu minnkað. Þetta er mat hag- fræðingsins Richard B. Freemans sem starfar við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Freeman hefur gert skýrsluna Workers ownership and profit- sharing in að new capitalist model fyrir sænska alþýðusambandið. Greint er frá þessu á viðskiptavef Sænska Dagblaðsins. - ibs Ráð Harvard-hagfræðings: Auka þarf hlut starfsmanna ORKUMÁL „Í ljósi þess að skipt- ar skoðanir eru um uppbyggingu vindmyllugarðs í Grindavík, býður bæjarráð fulltrúum fyrirtækis- ins að halda opinn kynningar- fund og kynna verkefnið fyrir íbúum Grindavíkur áður en málið verður unnið lengra,“ segir bæjar- ráð Grindavíkur vegna máls þýska fyrirtækisins EAB. EAB vildi byrja á vindmælingum og bæjarráðið samþykkti í apríl að bæjarstjórinn myndi „vinna málið áfram“ en vísar nú til umhverfis- og ferðamálanefndar bæjarins sem „hugnast ekki að byggður verði vindmyllugarður“. - gar Skiptar skoðanir í Grindavík: Kynni íbúunum vindmyllugarð 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 8 -7 2 C C 1 6 3 8 -7 1 9 0 1 6 3 8 -7 0 5 4 1 6 3 8 -6 F 1 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.