Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. maí 2015 | SKOÐUN | 19 Nú hefur verkfall BHM staðið í fimm vikur og sér ekki fyrir endann á því. Við sem stöndum að mæðravernd í heilsugæslunni höfum af þessu verulegar og vax- andi áhyggjur. Verkfall ljósmæðra sem starfa á Kvennadeild LSH hefur orðið til þess að fresta hefur þurft ómskoðunum, framköllunum fæð- inga og fyrirfram ákveðnum keis- araskurðum. Þetta veldur skjól- stæðingum okkar óþægindum og áhyggjum. Ljósmæður í heilsu- gæslunni hafa hingað til aðeins farið í hálfsdags verkfall en fari þær í frekara verkfall versnar ástandið enn. Í verkfalli lífeindafræðinga hefur ekki verið skimað fyrir sýk- ingum í upphafi meðgöngu eins og venja er. Ekki hefur heldur verið skimað fyrir meðgöngu sykursýki eða vanstarfsemi skjaldkirtils hjá konum í áhættuhópum en grein- ing og meðferð þessara sjúk- dóma snemma á meðgöngutíma geta komið í veg fyrir alvarleg áhrif þeirra á heilsu og þroska ófædda barnsins. Þessar skiman- ir eru brýnar fyrir heilsu barns- hafandi kvenna og ófæddra barna þeirra og eru einn af hornsteinum mæðraverndar. Afleiðingar þess að ekki er skimað fyrir ákveðn- um sjúkdómum á meðgöngu geta verið ófyrirséðar og jafnvel valdið óaftur kræfum skaða með tilheyr- andi kostnaði fyrir samfélagið. Á Íslandi hefur heilsufar barns- hafandi kvenna og ungbarna verið með því besta sem þekkist í heiminum. Má í því sambandi benda á nýjustu skýrslu „Save the Children“ en þar kemur fram að Ísland er í þriðja sæti yfir þau lönd þar sem best er að vera móðir. Það er afleitt að starfsfólk mæðraverndar í heilsugæslu geti ekki fylgt þeim klínísku tilmæl- um og verklagsreglum sem byggð- ar hafa verið upp á síðastliðnum árum og hafa m.a. stuðlað að því að árangur í mæðravernd er eins góður og raun ber vitni. Leggjum ekki heilsu barnshafandi kvenna og ófæddra barna í hættu með því að draga verkfallið á langinn. Við skorum á deiluaðila að ná samn- ingi sem fyrst. Glötum ekki þeim góða árangri í mæðravernd sem við höfum státað af hér á landi. Verndum heilsu barnshafandi kvenna og ófæddra barna Fregnir um að lífi sjúklinga sé stefnt í hættu vegna þess að þeir fá ekki viðeigandi með- ferð vegna verkfalla vekja óhug. Sérfræðingur í krabbameins- lækningum segir að fáist ekki nauðsynleg- ar undanþág- ur kunni svo að fara að það kosti manns- líf. Nauðsyn- legar undan- þágur hljóta því að verða veittar tafarlaust. Neyðarástand hefur ríkt á svínabúum því ekki er hægt að slátra dýrunum en þegar dýrin stækka og þyngjast leiðir það til svo mikilla þrengsla í stíum svo dýrin hafa ekki rými til að hreyfa sig. Það er óhæft. Þessi staða sýnir einnig glöggt hve þröngt er um eldisdýrin við venjulegar aðstæður sem veldur áhyggjum. Eðli verkfalla er því miður þannig að oft bitna þau ekki síður á öðrum en þeim sem vinnudeilan beinist að, auk þess sem verkföll ólíkra starfs- stétta hafa misalvarleg áhrif á gangverk samfélagsins. Þess vegna er verkfallsvopnið beitt og um leið vandmeðfarið. Auð- vitað eiga sjúkir og þurfandi að vera í algerum forgangi þegar verkfallsástand ríkir, eins og nú er. Yfirleitt sýna menn mannúð og skilning og veita nauðsyn- legustu undanþágur á meðan á verkföllum stendur, en núver- andi staða er þó þannig að ekki er hægt að halda uppi bráðnauð- synlegri heilbrigðisþjónustu. Sú staðreynd hlýtur einnig að taka mjög mikið á þá sem eru í verk- falli og vita af vaxandi vand- ræðum og neyð þeirra sem síst skyldi. Verkföll hljóta að vera þrauta- lending, þar sem svo mikið er lagt undir og svo miklu fórnað og þau verða að skila þeim sem hana heyja árangri. Um það er varla deilt lengur að það sem skiptir langmestu máli er að tryggja kaupmátt þeirra launa sem fólk aflar. Fjarstæða er að láta það henda að knýja fram „of miklar launahækkanir“ sem brenna samstundis upp á verðbólgubáli. Við Íslendingar þekkjum þannig „kjarabætur“ af biturri reynslu. Til að verja kaupmáttinn er því lykilatriði að þeir kjarasamningar sem nú er verið að reyna að ná verði gerðir með það að markmiði að halda þeim stöðugleika sem nú ríkir í efnahagskerfinu. Tvíeggjað sverð KJARAMÁL Karitas Ívarsdóttir ljósmóðir Ósk Ingvarsdóttir fæðingalæknir Ragnheiður Bachmann ljósmóðir Ragnheiður I. Bjarnadóttir fæðingalæknir Starfsfólk mæðraverndar, Þróunarsviði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins KJARAMÁL Elín Hirst alþingismaður bmvalla.is Ætlar þú að ráðast á garðinn? Yfir 30 ára gæðaframleiðsla BM Vallá býr að yfir 30 ára lu reynslu af framleiðs afyrir íslenskar aðstæður og nýtir í framleiðslun sterkustu fylliefni sem völ er á. BM Vallá er eina fyrirtækið í helluframleiðslu á Íslandi sem er með Iso 9001 gæðavottun. Terra Nýtt og fallegt verandarefni úr slípuðum hellum sem fást í hvítu, gráu og svörtu. Hagkvæm og endingargóð lausn, laus við umstang og viðhald sem fylgir öðrum pallaefnum. PIPA R\TBW A • SÍA • 152318 Frí ráðgjöf til 1. júní Hjá BM Vallá færðu ráðgjöf landslagsarkitekta sem aðstoða þig við efnisval og hjálpa þér að gera hugmyndir þínar um draumagarðinn að veruleika. Pantaðu tíma í ráðgjöf í síma 412 5050. ➜Afl eiðingar þess að ekki er skimað fyrir ákveðnum sjúkdómum á meðgöngu geta verið ófyrirséðar og jafnvel valdið óafturkræfum skaða með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið. ➜ Eðli verkfalla er því miður þannig að oft bitna þau ekki síður á öðrum en þeim sem vinnudeilan beinist að, auk þess sem verkföll ólíkra starfs- stétta hafa misalvarleg áhrif á gangverk samfélagsins. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 8 -2 3 C C 1 6 3 8 -2 2 9 0 1 6 3 8 -2 1 5 4 1 6 3 8 -2 0 1 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.