Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 52
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 36 DÓMARARNIR Í fyrstu seríu voru það þau Randy Jackson, Paula Abdul og Simon Cowell sem sinntu hlutverki dómara í þáttunum. NORDICPHOTOS/GETTY Í fyrradag var tilkynnt að fimm- tánda sería af raunveruleikaþætt- inum American Idol yrði sú síðasta, en serían verður sýnd á næsta ári. Sjónvarpsþátturinn hóf göngu sína árið 2002 á sjónvarpsstöðinni FOX og er farsælasta sjónvarps- sería í bandarísku sjónvarpi. Í þátt- unum reyna söngvarar fyrir sér fyrir framan dómnefnd sem dæmir um hvort viðkomandi fái að halda áfram í næsta þátt eða ekki, en sigur vegari er kosinn með síma- kosningu. Sá sem stendur uppi sem sigurvegari hlýtur að laun- um plötusamning auk ýmissa annarra fríðinda. Í fyrstu þáttaröðinni voru þau Randy Jackson, Paula Abdul og Simon Cowell dómarar en einn- ig hafa Ellen DeGen- eres, Jennifer Lopez, Mariah Carey, Nicki Minaj og Keith Urban reynt fyrir sér í dómarasæt- inu. Kynn- irinn Ryan Seacrest hefur staðið vaktina frá því í fyrstu seríu. Sigur- vegarar American Idol hafa átt misgóðu gengi að fagna. Söngkonan Kelly Clarkson sigr- aði í fyrstu seríu og hefur gefið út sjö plötur á ferlinum og hlotið meðal annars þrenn Grammy-verðlaun, tvenn People’s Choice Awards og fimm Teen Choice Awards. Aðrir vinn- ingshafar sem farnast hefur vel eru meðal annars Jordin Sparks og Carrie Underwood. Auk þess eru nokkrir sem tekið hafa þátt og ekki borið sigur úr býtum en engu að síður farnast vel, sem dæmi má nefna Jennifer Hudson og Adam Lambert, einn- ig vöktu nokkrir keppendur mikla athygli í þættinum og hlutu sínar fimmtán mínútur af frægð, þótt ekki væri það fyrir sönghæfileika. Þar ber sjálfsagt hæst William Hung sem söng lagið She Bangs en Cowell var ekki par hrifinn af flutningi Hungs og sagði hann hvorki geta sungið né dansað. Þrátt fyrir að hljóta ekki náð fyrir augum dóm- aranna upp- skar Hung plötusamning og kom fram fyrir fram- an 25.0 0 0 manns. American Idol syngur brátt sitt síðasta Síðasta serían af raunveruleikaþættinum vinsæla fer í loft ið á næsta ári en hún er sú fi mmtánda í röðinni. Það vakti mikla athygli þegar leikarinn Channing Tatum kom til landsins á mánudaginn. Fjölmargir aðdáendur fengu mynd af sér með kappanum og birtu á netinu. Tatum reis til frægðar og frama árið 2006 þegar hann lék í myndinni Step Up. En hann hefur einnig leikið í G.I. Joe: The Rise of the Cobra og G.I. Joe: Retaliation, She’s the Man, Magic Mike, 21 Jump Street og framhaldsmyndinni 22 Jump Street. Tatum er ekki einungis leikari heldur einnig módel og dans- ari, sem líklega hefur ekki farið fram hjá þeim sem séð hafa Step Up. Hann hefur alltaf verið áhugasamur um íþróttir og spilaði fótbolta og hafna- bolta, hann æfði hlaup og bardagaíþróttir og fór á fótboltastyrk í háskóla en hætti í skólanum og fór að vinna ýmis störf, meðal annars sem strippari og notaði þá nafnið Chan Crawford og hefur sagt í við- tölum að sig langi til þess að gera bíómynd byggða á þeirri reynslu. Talsverða athygli vakti tölvupóstur sem leikarinn sendi á samstarfsmenn sína í 22 Jump Street á síðasta ári, en Tatum var himinlifandi yfir góðu gengi mynd- arinnar og skrifaði allan tölvupóstinn í hástöfum. FRÆGIR Í NÆRMYND CHANNING TATUM FYRSTI SIGUR- VEGARINN Söngkonan Kelly Clarkson var fyrsti sigur- vegari keppn- innar en hún hefur verið farsæl og hlotið fjölda verðlauna, meðal annars Grammy- verðlaun. ➜ Channing Matthew Tatum ● Fæddur 26. apríl árið 1980 ● Eiginkona Jenna Dewan- Tatum, gift 2009 ● Börn Ein dóttir, fædd 2013 ● Árið 2000 kom Tatum fram sem dansari í tónlistarmynd- bandi við lagið She Bangs með Ricky Martin. Áður en Tatum varð leikari starfaði hann meðal annars sem fyrirsæta og sat fyrir hjá Armani, Aber crombie & Fitch, Dolce & Gabbana og í tískutímaritinu Vogue. Aðalfundur Haga hf. 4. júní 2015 Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 4. júní 2015 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica (VOX Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samÞykktar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2014/15. 4. Tillaga að breytingu á samÞykktum félagsins. • Grein 7 um eigin hluti verði breytt Þar sem kveðið verður á um að heimild til handa félagsstjórn til kaupa á eigin hlutafé skuli tiltekin í samÞykktum hverju sinni með Þeim skilyrðum sem hluthafafundur ákveður. 5. Ákvörðun um Þóknun til stjórnarmanna. 6. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu. 7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda. 8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu félagsins, http://www.hagar.is/hluthafaupplysingar/adalfundur-/ Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum. Stjórn Haga hf. ÁRIÐ 2007 Maria Šerifović vann keppnina fyrir Serbíu. Varð hún fjórða Marían undir þrítugu til að vinna keppnina. Skyldi okkar María verða sú fimmta? 13. MAÍ Tveir sigur- vegarar Eurovision eiga afmæli í dag, þeir Alexander Ryback, sem sigraði fyrir Noreg árið 2009, og Johnny Logan, sem vann tvisvar, árin 1980 og 1987. 12. MAÍ 2001 Aldrei hafa verið fleiri áhorfendur á Eurovision-keppninni en þennan dag þegar hún var haldin á Parken í Kaupmannahöfn, 38.000 manns. ÁRIÐ 2004 Ákveðið var að taka upp forkeppni í Eurovision, enda hafði þátttökulöndum fjölgað mikið og voru þau alls 33 þetta árið. ÁRIÐ 1999 Tvær stórar breytingar voru gerðar á keppninni. Hætt var að hafa sinfóníuhljómsveit og var öll tónlist tekin upp fyrirfram og spiluð rafrænt og máttu keppendur syngja á hvaða tungumáli sem var. ÁRIÐ 1986 Yngsti Euro- vision-keppandinn er Sandra Kim, en hún var aðeins þrettán og hálfs árs þegar hún tók þátt. Sá elsti er hins vegar Engelbert Humperdinck sem keppti fyrir Bretland árið 2012. FÁNÝTUR EUROVISION FRÓÐLEIKUR 11 DAGAR Í EURO LÍFIÐ 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 8 -0 1 3 C 1 6 3 8 -0 0 0 0 1 6 3 7 -F E C 4 1 6 3 7 -F D 8 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.