Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 26
| 2 13. maí 2015 | miðvikudagur
Í NÝJASTA hefti Frjálsrar verslunar
er áhugavert viðtal við Herdísi Dröfn
Fjeld sted, framkvæmdastjóra Fram-
takssjóðs Íslands (FSI), en heimild hans
til nýfjárfestinga rann út í lok febrúar.
Þau fi mm ár sem sjóðurinn hefur starf-
að hafa 43 milljarða fjárfestingar skilað
40 milljarða bókfærðum hagnaði. Her-
dís hefur stýrt FSI frá því í fyrra.
FSI hefur legið undir margvíslegri gagn-
rýni. Talað hefur verið um lítið gegnsæi
og gagnrýnt að afnot af vörumerkinu
Icelandic í Bandaríkjunum voru leigð
til erlendra aðila til margra ára. Þá
hefur ævintýralegur gróði FSI af
sumum fjárfestingum sínum, á
borð við Icelandair, verið gagnrýndur
og talinn til marks um að FSI hafi fengið
eignirnar á óeðlilega lágu verði og jafn-
vel að fyrirtækin hafi að ósekju verið
tekin af fyrri eigendum.
EIGNARHALD FSI hefur verið til
umræðu í tengslum við ráðstöfun eigna
en helstu kaupendur margra eigna FSI
eru lífeyrissjóðirnir sem eiga FSI.
EINN tilgangur með stofnun FSI á sínum
tíma var að gefa lífeyrissjóðum landsins
færi á að vinna til baka mikið tap á fjár-
festingum sem þeir urðu fyrir í hruninu
2008. Í gegnum FSI sameinuðu þeir
fjárfestingarkrafta sína í öfl ugum sjóði
til að njóta góðs af endurreisn íslenskra
fyrirtækja og efnahagslífs.
ÁRANGURINN talar sínu máli og 43
milljarða fjárfesting hefur skilað endur-
heimtum og eignum, sem nú eru metnar
á 83 milljarða. Eftir stendur spurningin
hvort ekki hafi verið of hart gengið að
fyrri eigendum fyrirtækjanna sem FSI
eignaðist. Hefðu bankar fremur átt að
styðja fyrri eigendur í tímabundnum
erfi ðleikum eftir allsherjar fjármála-
hrun en að ganga milli bols og höfuðs á
þeim? Margföldun á verðmæti fyrir-
tækja á örfáum árum gefur slíkum
vangaveltum vængi.
EINNIG má spyrja hvort hin ríkulega
ávöxtun eignanna hafi verið raunveru-
leg fyrir eigendur FSI. Í mjög mörgum
tilfellum hefur hagnaður FSI mynd-
ast við það að eigendur FSI hafa keypt
hlutabréf af FSI við skráningu fyrir-
tækja á markað. Áhættan af bréfunum
hefur einungis fl ust frá FSI til eigenda
FSI.
HVAÐ verður um hlutabréfaverð á
Íslandi þegar, og ef, tekin verða stór
skref til afnáms fjármagnshafta? Er
ekki hagnaður lífeyrissjóða af FSI sýnd-
argróði, þar til búið er að selja eignirnar
út úr lífeyrissjóðakerfi nu?
Sýndargróði eða raunverulegur?
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 119,00 14,4% 0,0%
Eik fasteignafélag* 6,46 -5,0% -1,7%
Eimskipafélag Íslands 225,00 -5,1% 2,4%
Fjarskipti (Vodafone) 38,70 10,6% 0,4%
Hagar 43,40 7,3% 3,3%
HB Grandi 37,30 10,4% 2,3%
Icelandair Group 22,25 4,0% 2,8%
Marel 182,00 31,9% 2,0%
N1 33,85 45,9% 30,4%
Nýherji 8,45 63,1% -3,4%
Reginn 14,15 4,4% -0,7%
Reitir* 62,40 -1,7% 1,5%
Sjóvá 10,01 -16,2% 0,1%
Tryggingamiðstöðin 20,70 -21,3% 2,0%
Vátryggingafélag Íslands 7,86 -13,1% -0,3%
Össur 440,00 21,9% 2,3%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1.419,75 8,3% 2,4%
First North Iceland
Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 25,30 11,9% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,85 0,0% 0,0%
*Skráð á árinu (þróun frá útboðsgengi).
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
63,1% frá áramótum
N1
30,4% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TM
-21,3% frá áramótum
NÝHERJI
-3,4% í síðustu viku
10
5
1 Seðlabanki Íslands kynnir vaxta-
ákvörðun í dag og nýtt hefti Pen-
ingamála verður birt. Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri og
Þórarinn G. Pétursson aðalhag-
fræðingur munu svo rökstyðja
ákvörðunina á blaðamannafundi.
Greiningardeildir allra stóru
bankanna þriggja búast við því að
stýrivöxtum verði haldið óbreytt-
um. Nefna þær allar sömu ástæðuna
fyrir þeim spám; að Seðlabankinn
vilji bíða með stýrivaxtaákvarðanir
þar til niðurstöður kjaraviðræðna
liggja fyrir. - jhh
Stýrivaxtaákvörðun kynnt í dag:
Búast ekki við
breytingum
KYNNA STÖÐUNA Seðlabankastjóri og aðal-
hagfræðingur kynna vaxtaákvörðun.
„Merkjanleg neikvæð þróun öku-
tækjatjóna hefur átt sér stað það
sem af er ári. Þá þróun má að hluta
rekja til tíðarfarsins og ástands
vega en aukin tjónatíðni er einn-
ig þekktur fylgifiskur bættra
aðstæðna í efnahagslífi nu,“ segir
Hermann Björnsson, forstjóri Sjó-
vár.
Hann segir í afkomutilkynningu
sem send var fjölmiðlum í gær að
vonandi muni endurnýjun bílafl ot-
ans, aukið öryggi bíla og tvöföldun
vega og brúa draga úr þeirri þróun
að bætt efnahagsumhverfi leiði til
fjölgunar tjóna.
Hagnaður af rekstri Sjóvár á
fyrsta ársfjórðungi nam 624 millj-
ónum króna, samanborið við 124
milljóna króna tap á sama tíma
árið áður. Hagnaður af vátrygg-
ingastarfsemi nam 55 milljónum
króna, en var 318 milljónir króna á
sama tímabili árið á undan. Hagn-
aður af fjárfestingastarfsemi nam
aftur á móti 757 milljónum króna
en 347 milljóna króna tap var á
fjárfestingum á sama tíma í fyrra.
Eigið fé fyrirtækisins nam 14,4
milljörðum króna samanborið við
17,8 milljarða um áramót.
Sjóvá er þriðja og síðasta trygg-
ingafélagið í Kauphöll Íslands
sem skilar árshlutauppgjöri fyrir
fyrsta fjórðung. Arðsemi eigin
fjár á ársgrundvelli var 15,5%.
Bæði Vátryggingafélag Íslands
og Tryggingamiðstöðin birtu árs-
hlutauppgjör þann 30. apríl. Hjá
Vátryggingafélagi Íslands var
arðsemi eigin fjár 18,3% en hjá
Tryggingamiðstöðinni var arð-
semi eigin fjár 2,5 prósent. Hagn-
aður VÍS nam 733 milljónum
króna á fjórðungnum samanborið
við 14 milljóna króna tap á sama
tímabili í fyrra. Hagnaður TM
nam 72 milljónum samanborið við
700 milljóna króna hagnað á sama
tímabili í fyrra.
Forstjórar allra þriggja trygg-
ingafélaganna hafa sagt að vetur-
inn hafi verið óvenju tjónaþungur,
einkum vegna tíðra óveðra.
jonhakon@frettabladid.is
Tjón á ökutækjum
hafa aukist undanfarið
Forstjóri Sjóvár segir efnahagsaðstæður geta að hluta skýrt aukna
tjónatíðni. Tíðarfarið og ástand vega séu líka skýringar. Stærstu
þrjú tryggingafélögin hafa birt uppgjör fyrsta fjórðungs.
UMFERÐARTJÓN Forstjórar allra þriggja tryggingafélaganna hafa sagt að veturinn hafi verið
óvenju tjónaþungur, einkum vegna tíðra óveðra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NEIKVÆÐ ÞRÓUN Forstjóri Sjóvár vonar að
endurnýjun bílaflotans, aukið öryggi bíla
og tvöföldun vega og brúa dragi úr þeirri
þróun að bætt efnahagsumhverfi leiði til
fjölgunar tjóna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
9
-3
8
4
C
1
6
3
9
-3
7
1
0
1
6
3
9
-3
5
D
4
1
6
3
9
-3
4
9
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K