Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 24
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 24 Hjúkrunarfræðingarnir Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir, Kristín Rósa Ármannsdóttir og Hrönn Stefáns- dóttir ásamt Önnu Maríu Þórðardótt- ur, sérfræðingi í hjúkrun, unnu nýtt verklag varðandi móttöku á fólki í sjálfsvígshugleiðingum eða eftir sjálfs- vígstilraun. Verkferlið verður kynnt formlega í dag á hinni árlegu Viku hjúkrunar á Landspítalanum. „Þessi sjúklingahópur, sem kemur inn eftir sjálfsvígstilraun eða með and- lega vanlíðan, er mjög stór á bráðamót- tökunni. Bráðamóttaka geðdeildar er ekki opin á kvöldin og um helgar þann- ig að þessir sjúklingar þurfa að bíða á deildinni okkar þar til geðlæknir getur metið þá. Það er því mikilvægt að mót- takan sé góð og að fyrstu viðbrögð séu rétt,“ segir Hrönn Stefánsdóttir hjúkr- unarfræðingur. Nýtt verklag er nú í notkun og hefur að sögn Hrannar reynst vel. Hún segir að með nýju skipulögðu verklagi hafi einfaldlega orðið meiri vitund fyrir því hvernig ætti að nálgast einstaklinga í sjálfsvígshættu. „Tilgangurinn er að bæta móttökuna og tryggja öryggi sjúklinga. Nýjar verklagsreglur leggja áherslu á að hjúkrunarfræðingur meti sjálfsvígs- hættu sjúklings í samtali með ákveð- inn spurningalista til hliðsjónar. Ef einstaklingur er með virkar sjálfsvígs- hugsanir fer ákveðinn verkferill af stað með frekara eftirliti til að efla öryggi.“ Kynning á móttökunni er liður í Viku hjúkrunar sem fræðslunefnd hjúkrun- arráðs stendur fyrir á hverju ári í maí – í kringum alþjóðadag hjúkrunar- fræðinga sem var í gær, á afmælisdegi frumkvöðulsins Florence Nightingale. Að þessu sinni er þemað umbætur í hjúkrun. Þá er vísað til verkefna og breytinga sem hafa verið gerðar til að viðhalda öryggi sjúklinga og bæta þjónustu. Í boði verða fjölmargir fyrir- lestrar og vinnusmiðjur sem öllum er velkomið að taka þátt í. Nýtt verklag á bráðamóttökunni verður kynnt kl. 11 við Hringdal á Landspítalanum við Hringbraut og kl. 13 á 2. hæð í Fossvogi. erlabjorg@frettabladid.is TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Nýjar verklagsreglur leggja áherslu á að hjúkr- unarfræðingur meti sjálfs- vígshættu sjúklings í samtali með ákveðinn spurninga- lista til hliðsjónar. Okkar ástkæra sambýliskona og dóttir, SIGNÝ GUNNLAUGSDÓTTIR Balaskarði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi mánudaginn 4. maí. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju laugardaginn 16. maí kl. 14. Jarðsett verður í Höskuldsstaðakirkjugarði. Magnús Jóhann Björnsson Geirlaug Ingvarsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SNÆBJÖRNS PÁLSSONAR fyrrverandi slökkviliðsmanns á Reykjavíkurflugvelli, sem lést á Landspítalanum þann 18. mars síðastliðinn. Magnús Snæbjörnsson Ingibjörg Sigurðardóttir Páll Snæbjörnsson Guðrún Dóra Gísladóttir Sigrún Birna Magnúsdóttir Hörður Jóhann Halldórsson Daði Snær Pálsson Arna Pálsdóttir Halldór Máni Harðarson, Magnús Ingi Harðarson og Jóhann Darri Harðarson Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, VILBORG GUÐJÓNSDÓTTIR frá Oddsstöðum, Vestmannaeyjum, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 8. maí sl. Útförin verður auglýst síðar. Jón Viðar Jónsson Guðjón Jónsson Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Sigríður Sía Jónsdóttir Birgir Karl Knútsson og ömmubörn. Faðir minn, afi okkar og bróðir, HÖRÐUR SVERRISSON Þingvallastræti 36, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. maí kl. 13.30. Sonur, afabörn og systkini hins látna. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR HJALTASON rennismiður, Víðilundi 20, Akureyri, lést föstudaginn 8. maí síðastliðinn. Jarðarför auglýst síðar. Kristín Gunnarsdóttir Svava H. Guðmundsdóttir Hreggviður Norðdahl Gunnar H. Guðmundsson Elín Konráðsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, SIGURGEIR BJÖRGVINSSON hljóðfæraleikari, Grandavegi 47, Reykjavík, lést á Landakoti fimmtudaginn 7. maí. Útför verður frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á öldrunardeild Landspítalans. Jóna H. Pétursdóttir Guðrún Sigurgeirsdóttir Eggert Lárusson Gísli Sigurgeirsson Sólveig Steinsson Björgvin Jóhannsson Agnes Gísladóttir Þórður Ingi Guðmundsson og systur hins látna. Öryggi sjúklinga í sjálfsvígshættu tryggt Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttökunni gerðu nýjan verkferil fyrir sjúklinga í sjálfsvígs- hættu eða eft ir sjálfsvígstilraun. Verkefnið er kynnt á Viku hjúkrunar sem nú er í gangi. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á BRÁÐAMÓTTÖKU Hulda Hrönn Björgúlfsdóttir, Kristín Rósa Ármannsdóttir og Hrönn Stefánsdóttir bjuggu til nýjan verkferil til að bæta móttöku og öryggi sjúklinga með andlega vanlíðan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þennan dag, 13. maí árið 1981 reyndi Tyrkinn Mehmet Ali Agca að myrða Jóhannes Pál páfa II. á Péturstorginu í Vatíkaninu. Agca skaut páfa, sem særðist illa. Hann sat á torginu, beið eftir páfa og hóf skothríð þegar hann nálgaðist. Páfi særðist en nunnur og aðrir nær- staddir gripu Agca áður en hann náði að ljúka verkinu. Agca var handtekinn og sakfelldur fyrir glæp sinn í júlí árið 1981. Hann var fluttur til heimalands síns eftir að hafa afplánað tuttugu ára dóm á Ítalíu. Agca, sem hafði áður verið í slagtogi við tyrknesku fasistahreyfinguna Gráu úlfana, sagðist hafa skipulagt morðið á páfa ásamt landa sínum og tveimur Belgum. Fjölmiðlar birtu þó fréttir þess efnis að Agca hefði gert þetta fyrir Gráu úlfana, sem fengu þrjár milljónir marka fyrir. Páfi bað fólk um að „fyrirgefa bróður mínum, sem ég hef svo sannarlega gert“. Árið 1983 hittust þeir og prýddu forsíðu tímaritsins Time. Páfi var líka í ágætu sambandi við fjölskyldu Agca og hitti móður hans árið 1987. Agca var fluttur til Tyrklands eftir að hann hafði afplánað dóm sinn. Þar var hann fangelsaður á ný fyrir morð á vinstrisinnuðum ritstjóra sem var framið meira en tuttugu árum áður. ÞETTA GERÐIST 13. MAÍ 1981 Morðtilræði framið gegn páfa 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 9 -5 0 F C 1 6 3 9 -4 F C 0 1 6 3 9 -4 E 8 4 1 6 3 9 -4 D 4 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 6 4 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.