Fréttablaðið - 13.05.2015, Page 30
| 6 13. maí 2015 | miðvikudagur
ÚTTEKT
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Það má þykja nokkuð ljóst að það
verður ekki hagfræðinga að taka
ákvörðun um það hvernig afnámi
fjármagnshafta verður háttað. Þeir
horfa of ólíkum augum á málin.
Þess vegna mun þurfa sterka póli-
tíska forystu í verkefnið. Þetta var í
það minnsta það sem gestir á fundi
Samtaka atvinnulífsins fengu á til-
finninguna í gærmorgun. Fund-
urinn bar yfirskriftina Rjúfum
Íslandsmúrinn.
Þrjár hindranir
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka
atvinnulífsins, var ein fjögurra
hagfræðinga sem héldu fram-
sögu á fundinum. Hún sagði að það
væru þrjár hindranir við afnám
hafta fram undan. Það væru þrota-
búin, afl andskrónur og innlendir
aðilar. Samtals nema þær eignir
sem hugsanlega myndu leita út við
afnám hafta um 1.000 milljörðum
króna.
Ásdís vísaði í mat Seðlabanka
Íslands sem telur að innlendar
eignir sem koma í hlut erlendra
kröfuhafa nemi um 507 milljörð-
um króna. Ef þessi upphæð myndi
streyma í gegnum gjaldeyrismark-
aðinn við losun hafta þá myndi það
ógna gengisstöðugleikanum.
Annar vandinn eru afl andskrón-
ur. „Það eru kvikar krónueign-
ir erlendra aðila. Við höfum jafn-
framt oft kallað þetta gömlu
snjóhengjuna. Og þetta er í raun sú
snjóhengja sem við höfum verið að
vinna á frá því að við settum fjár-
magnshöft í gegnum gjaldeyrisút-
boð Seðlabankans. Þessi snjóhengja
hefur helmingast frá árinu 2008
og stendur í dag í 300 milljörðum
króna. Vænt útfl æði þessara aðila
mun velta á tiltrú þeirra á afnáms-
ferlinu og íslensku efnahagslífi .
Við vitum í raun ekki hversu mikið
útfl æði mun eiga sér stað fyrr en
við losum höftin. En það er alveg
ljóst að það skiptir verulegu máli að
þessir aðilar hafi tiltrú á íslensku
efnahagslífi og afnámsferlinu,“
sagði Ásdís.
Í þriðja lagi eru það innlend-
ir aðilar, en þar er einkum átt við
lífeyrissjóði. „Frá því að við sett-
um fjármagnshöft þá
hafa lífeyrissjóðirnir
einungis getað fjárfest
á innanlandsmarkaði.
Þetta hefur leitt til þess
að erlendar eignir þeirra
hafa minnkað sem hlut-
fall af heildareignum.
Áhættudreifing þeirra
hefur minnkað. Ef við
gefum okkur það að
lífeyrissjóðir vilji, að
minnsta kosti, fara með
hlutdeild sína upp í 30
prósent af heildareign-
um, þá getum við gert
ráð fyrir að útfl æði frá
lífeyrissjóðum fari upp
í 170 milljarða,“ sagði
Ásdís. Hún sagði þó, rétt
eins og með eigendur
afl andskróna, að á end-
anum muni útfl æði inn-
lendra aðila velta á trú
þeirra á íslensku efna-
hagslífi og afnámsferlinu.
Ásdís segir að það verði aldrei
mögulegt að vita nákvæmlega
fyrirfram hvert útfl æðið verður
þegar höftunum léttir. Umfang-
ið velti á ýmsum þáttum, til að
mynda á trú innlendra og erlendra
aðila á afnámsferlinu og aðgengi
innlendra aðila að erlendum lána-
mörkuðum. Því til viðbótar verði að
gera ráð fyrir því að það verði eitt-
hvað innfl æði gjaldeyris við afnám
hafta.
Slitabúin fari í þrot
Heiðar Már Guðjónsson, eigandi
Úrsusar fjárfestingafélags, telur
að alþjóðlegar aðstæður séu um
þessar mundir einstaklega ákjósan-
legar og góðar gagnvart Íslandi.
„Við erum með ótrúlega lága vexti í
sögulegu samhengi alþjóðlega. Þar
við bætist að við erum með verð-
hjöðnun. Þannig að innfl utnings-
verð til okkar er alltaf að lækka,“
sagði Heiðar, en verð þeirra vara
sem við framleiðum lækki ekki
verulega. „Þannig að allar þessar
ytri aðstæður, það sem
er fyrir utan múrinn,
þær eru í lagi og gefa
bjartsýni til að vona
að nú sé lag til þess að
afnema höftin,“ sagði
Heiðar Már.
Þrátt fyrir þetta seg-
ist Heiðar Már efast
um að nú sé rétti tím-
inn. „Vegna þess að
eins og ytri aðstæður
eru í góðu lagi að þá
eru innri þættir hér
sem enn þá á eftir að
laga,“ sagði Heiðar
Már. Það væru einkum
tveir þættir sem þyrfti
að laga.
Annar þátturinn
væri peningastefn-
an. Ef vel á að takast
til við afnám hafta þá
þurfi menn að vita hvað
tekur við á eftir höft-
um. Hitt málið, að mati Heiðars
Más, er uppgjör slitabúanna. Hann
segir að það hvernig afnám haft-
anna mun heppnast muni standa
og falla með því hvernig gengur að
gera þau upp. Heiðar Már leggur
áherslu á að slitabúin fari í gjald-
þrotameðferð. Með þeirri aðferð
verði hægt að afl étta höftum á alla
í einu í stað þess að einn hópur fái
forgang umfram aðra.
„Ef við ætlum að fara í það að
afl étta höftunum skref fyrir skref
þá er það alltaf þannig að menn
eru misjafnlega framarlega í röð-
inni. Við eigum alls ekki að láta
það líðast að okkar hagsmun-
ir séu aftastir í röðinni. Að það
séu til dæmis lífeyrissjóðir sem
megi fjárfesta síðast alþjóðlega,
eða einhverjir einstaklingar eða
íslensk fyrirtæki. Og að einhverj-
ir erlendir aðilar fái að fara út á
undan okkur,“ sagði Heiðar. Hann
lagði áherslu á að þegar búið væri
að fi nna lausn á framtíðarstefnu í
peningamálum og búið að vinna að
lausninni á meðferð slitabúanna þá
væri hægt að afl étta höftum.
Hættuleg þægindi
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, segir að höft-
in gæði krónuna öryggi stórgjald-
miðils þannig að venjulegt fólk geti
sinnt sínum málum án þess að vera
ofurselt gengisáhættu. Íslendingar
verði líka að horfast í augu við það
að með lítinn frjálsan gjaldmiðil er
ekki hægt að lofa stöðugleika. Svo
sem eins og öruggum kaupmætti,
lágri verðbólgu, stöðugri greiðslu-
byrði. Aftur á móti sé helsta hættan
nú að nýtt Ísland byggist upp á þeim
falska stöðugleika og öryggi sem
fjármagnshöftin gefa.
„Höftin leyfðu okkur að setja inn-
lend markmið í fyrsta sæti. Ef við
hefðum ekki sett á höft þá hefðum
við þurft að hækka vexti, draga úr
ríkisútgjöldum til þess að rétta gjald-
eyrismarkaðinn af. Eins og Skand-
ínavíuþjóðirnar gerðu og eins og
Asíuþjóðirnar gerðu. En af því að við
settum á höftin þá gátum við gert alls
konar hluti, gátum aukið ríkisútgjöld
árið 2009, gátum mætt samdrættin-
um. Við gátum lagt áherslu á lækk-
un vaxta og annað fl eira. Við gátum
skapað þægindi og þessi þægindi eru
hættuleg. Það er ákveðin hætta á því
að nýtt Ísland byggist upp á þeim
falska stöðugleika og öryggi sem
fjármagnshöftin gefa. Vegna þess
að þau eru þægileg,“ segir Ásgeir.
Það þurfi þverpólitíska sátt stjórn-
málanna, aðila á vinnumarkaði og
annarra hagsmunaaðila til þess að
afnema höft. „Annars þýðir þetta
ekkert,“ sagði Ásgeir.
Höftin verði afnumin hið fyrsta
Jón Daníelsson hagfræðing-
ur sagði aftur á móti að höftin
væru mestu mistök sem hefðu
verið gerð í kjölfar hrunsins.
Það að hafa ekki tekið þau af
hafi verið mestu mistök þeirra
ríkisstjórna sem hafi setið við
völd. „Þetta er miklu minna mál
heldur en menn halda,“ sagði
Jón.
Jón sagði að alþjóðleg reynsla
af höftum sýndi einkum tvennt.
Annars vegar að efnahagsleg-
ar sveifl ur verði meiri en ella.
Hins vegar að langtímahagvöxt-
ur verður minni. „Hvor tveggja
þessi rök að mínu mati eru mjög
sterk fyrir því að taka höftin af
eins fl jótt og mögulegt er.“
Jón sagði að kostnaðurinn við
höftin ykist eftir því sem þau
væru lengur á. En kostnaðurinn
við að afnema þau myndi líka
aukast ár frá ári. „Vandamálið
er það, sérstaklega ef þú ert
með áhættufælna ráðamenn,
að skammtímakostnaðurinn
við það að taka höftin af er oft
hærri en skammtímakostnað-
urinn við það að hafa höftin á.
Sem þýðir að ef þú ert bara að
horfa á daginn í dag, eða að þú
sért ráðherra sem ert bara að
horfa fram á næstu kosningar,
þá viltu ekki gera þetta,“ sagði
Jón. Hann segir að það sé allt-
af rétti tíminn til þess að taka
höftin af. „Maður á aldrei að
bíða eftir réttum skilyrðum,“
sagði hann.
Jón telur ekki svo miklar
líkur á því að gjaldeyrir muni
streyma út og krónan veikjast.
Það sé jafnvel líklegra að krón-
an muni styrkjast því að óþolin-
móðustu krónueigendurnir séu
þegar farnir. Og ef það muni
streyma inn gjaldeyrir sem
mun verða til þess að krónan
styrkist þá eigi Seðlabankinn
stjórntæki til þess að takast á
við það.
Þúsund milljarðar gætu leitað út
Hagfræðingar eru ósammála um það hvenær rétt sé að afnema fjármagnshöftin, sem nú þegar hafa staðið í
næstum sjö ár. Hátt í 1.000 milljarðar gætu leitað út. Innlendar eignir slitabúanna er mest aðsteðjandi ógnin.
HÆTTULEG ÞÆGINDI Ásgeir Jónsson hagfræðingur segir að höftin hafi leyft okkur að setja innlend markmið í fyrsta sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skamm-
tímakostn-
aðurinn við
það að taka
höftin af er
oft hærri
en skamm-
tímakostn-
aðurinn við
það að hafa
höftin á.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
8
-2
3
C
C
1
6
3
8
-2
2
9
0
1
6
3
8
-2
1
5
4
1
6
3
8
-2
0
1
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K