Fréttablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 32
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
MISSIR EKKI AF
NEINU Margrét Gunn-
arsdóttir, bókasafns- og
upplýsingafræðingur,
skipuleggur sig vel á
ferðalögum svo hún
missi ekki af neinu. Hún
eyddi tveimur mánuðum
í stórborgunum París og
London í íbúðaskiptum
sem hún segir góða leið
til að tengjast áfanga-
staðnum.
MYND/MARGRÉT
GUNNARSDÓTTIR
SKEMMTILEG STEMMING Margréti fannst sá siður Frakka að
kæla fæturna í tjörn í garði fyrir aftan Louvre-safnið meðan þeir
borðuðu nesti eða lásu bók skemmtilegur. NORDIC PHOTOS/GETTY
ÆVINTÝRALEGUR GARÐUR Margrét heinmsótti meðal ann-
ars Père Lachaise-kirkjugarðinn í París en þar eru margir þekktir
einstaklingar grafnir, svo sem Édith Piaf.
IÐANDI MANNLÍF Á MARKAÐI Portobello-markaðurinn í
London dregur jafnan til sín ferðalanga og heimsótti Margrét
markaðinn og Notting Hill-hverfið í ferðinni.
Ég hafði íbúðaskipti eitt haustið í tvo mán-uði. Það ætla ég svo sannarlega að gera aftur þegar ég hef tök á. Þetta fyrirkomulag sparar
óhemju upphæðir sem annars færu í gistingu og
eins fær maður andrúmsloftið beint í æð, maður
er ekki bara gestur. Sonur minn er nýbúinn að hafa
skipti á íbúð í Kaupmannahöfn og er „húkkt“ á
þessu,“ segir Margrét Gunnarsdóttir, ferðalangur
með meiru.
VEL SKIPULAGT
Margrét fór til Parísar og London í þessari haust-
ferð og notaði tímann bæði til vinnu og til að
slappa af. Hún skipulagði tímann út í ystu æsar.
„Ég skipulegg öll mín ferðalög mjög vel, kannski
fylgir það því að vera bókasafns- og upplýsinga-
fræðingur,“ segir hún sposk. „Ég þræddi báðar
borgirnar rækilega og tók þær fyrir lið fyrir lið.
Var dugleg að lesa mér til og planaði daglega allar
ferðir út frá því. Þann tíma sem ég var í London
fór ég um hverja helgi dagsferðir til nærliggjandi
bæja,“ segir Margrét og bætir við að gott skipulag
skili henni betri upplifun af hverjum stað.
„Mér finnst skipta mjög miklu máli að vera undir-
búin og missa þannig ekki af einhverju stórkost-
legu, sem var kannski handan við hornið en maður
vissi ekki af því. Auðvitað fá margir heilmikið út úr
því að halda út í bláinn og láta hlutina koma sér á
óvart. Ég er ekkert í því,“ segir hún sposk.
Í FRÆGUM KIRKJUGARÐI
„Í París heimsótti ég meðal annars kirkjugarðinn
Père Lachaise, fór þangað hálfgerða pílagrímsför
en þar eru margir þekktir einstaklingar grafnir,
meðal annars Édith Piaf. Það er upplifun að ganga
um garðinn. Einnig fannst mér gaman að sjá þann
skemmtilega sið heimamanna að sitja í kringum
tjörn í garðinum fyrir aftan Louvre-safnið, og dýfa
tánum í vatnið meðan þeir borða nestið sitt eða
glugga í bók. Í London kynntist ég hverfi sem ekki
allir þekkja, Docklands. Það var óhrjálegt hverfi en
nú er búið að byggja það mikið og bæta og gaman
að heimsækja. Svo er gaman að rölta á Portobello-
markaðinn og í hverfinu Notting Hill.“
Margrét er áhugamanneskja um ferðalög og
heldur úti Facebook-síðunni Ferðalangur þar sem
hún safnar saman ferðatengdum upplýsingum sem
geta nýst fólki. „Ég starfaði við fararstjórn í tíu ár
og þvældist um Evrópu með Íslendinga í rútum og
fékk þá mikið af hugmyndum sem mig langaði til að
koma á framfæri.“
Ertu búin að skipuleggja næstu ferð?
„Ég fer vonandi til Berlínar í sumar,“ segir Mar-
grét og viðurkennir að hún ferðist lítið innanlands.
„Alltof lítið, það er svo dýrt og varla fyrir venjulegt
fólk. En reyndar væri margt vitlausara en að hafa
bara íbúðaskipti innanlands.“
LÆTUR EKKI KOMA
SÉR Á ÓVART
FERÐALÖG Margrét Gunnarsdóttir skipuleggur tímann út í ystu æsar þegar
hún leggur land undir fót og er lítið fyrir að láta koma sér á óvart. Hún segir
íbúðaskipti sniðuga leið til að tengjast hverjum áfangastað.
Plokkfiskur
**Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma.*60 mín. og 60 SMS fylgja hverri áskrift.
4 GSM áskriftir
60 mín. og 60 SMS*
Internet
20 GB
Heimasími
100 mín.**
365.is
Sími 1817
Þú færð GSM áskrift, internet og heimasíma fyrir
0 krónur með völdum sjónvarpspökkum 365.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
7
-9
4
9
C
1
6
3
7
-9
3
6
0
1
6
3
7
-9
2
2
4
1
6
3
7
-9
0
E
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K