Fréttablaðið - 13.05.2015, Blaðsíða 56
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 40
BAKÞANKAR
Viktoríu
Hermannsdóttur
- Fréttablaðið
- Morgunblaðið
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
S o. siAM
VARIETY CHICAGO SUN TIMES
Sofía Vergara og
Reese Witherspoon í fyrstu
grínmynd sumarsins.
PITCH PERFECT 2 5:30, 8, 10:30
BAKK 5:50, 8, 10:10
AGE OF ADALINE 8
AVENGERS 2 3D 10:20
ÁSTRÍKUR 2D 5:50
„Ég er kominn með upplýsingar
um í kringum þúsund íslenskar
hljómsveitir og tónlistarmenn. Það
er alveg ótrúlegt hvað það hefur
verið mikið til af hljómsveitum og
gróska í gegnum tíðina,“ segir Helgi
Snorrason tónlistaráhugamaður.
Helgi stendur á bak við vefsíðuna
Music All Over the World, þar sem
finna má upplýsingar um íslenska
og erlenda tónlistarmenn og hljóm-
sveitir.
„Það eru rúm tvö ár síðan ég fór að
hugsa um þetta. Ég hef mjög gaman
af tónlist og þekkti marga tónlistar-
menn frá því í gamla daga,“ segir
Helgi um upprunann. Honum þótti
vanta vefsíðu þar sem hægt væri að
nálgast upplýsingar um íslenskar
hljómsveitir og tónlistarmenn. „Það
voru mjög fáar sjálfstæðar heima-
síður sem geyma upplýsingar um
hljómsveitir og tónlistarmenn og fór
ég því að hugsa að það væri gott að
geta farið inn á grunn og fundið þar
allt sem maður vill vita um hljóm-
sveitir og tónlistarmenn. Ef ein-
hver af okkar kynslóð gerir þetta
ekki þá týnist þetta bara og svo er
líka gaman að geta sýnt börnum og
barnabörnunum hvað menn voru að
gera í gamla daga. Það er gaman að
geta sagt við þau, ég var poppari
þegar ég var ungur,“ segir Helgi og
hlær. Hann segir mikla vinnu liggja
að baki síðunni. „Þetta er auðvi-
tað mikil vinna en ég hef líka feng-
ið aðstoð frá mörgum öðrum með
aðflutt efni og væri of langt að telja
þá eða þær allar upp sem hafa komið
að þessu með ýmsu efni. Ég hef til
dæmis fundið myndir af hljómsveit-
um en hef kannski ekki upplýsingar
um hverjir eru á myndinni og þá hef
ég fengið hjálp frá öðrum til að hafa
nöfnin rétt,“ útskýrir Helgi.
Hann sér fram á allavega 2 ára
vinnu í viðbót við það að koma inn
upplýsingum um tónlistarmenn og
hljómsveitir á síðuna sína. „Þetta
er nú bara hobbí hjá mér þannig að
þetta tekur tíma.“
Eru menn ekkert að hafa sam-
band og spyrja af hverju þeirra
hljómsveit sé ekki komin á síðuna
þína? „Menn hafa verið senda mér
efni og hafa líka spurt af hverju
er mín hljómsveit ekki á síðunni.
Sumir hafa líka varla þorað að láta
mann hafa efni, því sumar hljóm-
sveitir spiluðu kannski bara í sínu
bæjarfélagi og í kringum það og
voru ekki að fá mikla athygli á
landsvísu,“ útskýrir Helgi, „en í
mínum augum er það alveg eins
mikil verðmæti og þessar hljóm-
sveitir sem maður þekkir hérna af
suðurhorninu.“
Hann hefur þó rosalega gaman að
því að sjá hvað menn eru að senda
honum og hvað fólk verður ánægt
að sjá sína hljómsveit á síðunum og
hvetur fólk til þess að senda sér efni
og upplýsingar um hljómsveitir og
tónlistarmenn sem eru lítt þekktir
Heldur utan um upplýsingar
um íslenska tónlistarmenn
Helgi Snorrason sér um vefsíðuna Music All Over the World, en síðan hefur að geyma upplýsingar um yfi r
þúsund íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn. Honum þótti vanta vefsíðu að með slíkum upplýsingum.
SAFNAR UPPLÝSINGUM Helgi Snorrason ætlar sér að eiga upplýsingar um allar íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn á
vefsíðunni sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í UPPÁHALDI
Platan Lifun
með Trúbroti
er ein af eftir-
lætisplötum
Helga.
EFTIRLÆTI Hljómar úr Keflavík eru ein af þeim hljómsveitum sem Helga þykir einna vænst um.
Mig langar
mikið til þess að fá
gamlar upptökur frá
hljómsveitum sem
hafa aldrei verið
gefnar út. Ég veit að
það er til svo mikið
af upptökum sem
hafa aldrei litið
dagsins ljós.
og eru mögulega ekki á síðunni.
Spurður út í sínar uppáhalds-
hljómsveitir segist Helgi halda
mest upp á gömlu sveitirnar á borð
við Hljóma, Trúbrot og Flowers.
„Ég hefði viljað sjá meira útgef-
ið efni frá þessum hljómsveitum,“
segir Helgi og bætir við: „Mig lang-
ar mikið til þess að fá gamlar upp-
tökur frá hljómsveitum sem hafa
aldrei verið gefnar út. Ég veit að
það er til svo mikið af upptökum
sem hafa aldrei litið dagsins ljós.
Og hættan er að þessum
verðmætum verði hent
því fólk veit oft ekki hvað
á að gera við þetta.“
Ásamt því að hafa upp-
lýsingar um tónlistarmenn
og hljómsveitir, þá er hann
einnig með mikið tengla-
safn á síðunni þar sem
hægt er að nálgast ýmsar
upplýsingar tengdar tónlist-
arheiminum.
gunnarleo@frettabladid.is
FJÖLMARGAR rannsóknir hafa
sýnt fram á það að gæludýr eru félags-
legur stuðningur fyrir eigendur sína.
Þau geta hjálpað við að draga úr þung-
lyndi, álagi, eflt sjálfstraust og aukið
gleði fólks svo eitthvað sé nefnt.
ÞAÐ var erfitt að fylgjast með frétt-
um um daginn þar sem talað var við
gæludýraeigendur sem búa í íbúðum
á vegum Öryrkjabandalags Íslands.
Íbúunum hefur verið gert að losa
sig við dýr sín þar sem dýrahald
er bannað í íbúðunum. Það séu
reglur sem hafi verið lengi í
gildi en verið sé að framfylgja
af alvöru fyrst núna.
KATTAREIGANDI lýsti á átak-
anlegan hátt í viðtali við frétta-
mann RÚV að henni hefði liðið
hræðilega og grátið í tvo daga þegar
barst tilkynning um að hún þyrfti að
láta frá sér köttinn sinn eða að öðrum
kosti missa íbúð sína.
ÖNNUR kona, mikið líkamlega fötl-
uð, lýsti því að stundum kæmist hún
ekki fram úr rúminu og yrði að bíða
eftir hjálp en þá kæmi kötturinn henn-
ar og biði hjá henni. Sem sagt einstakt
samband þeirra á milli enda segist
hún ekki getað lifað án kattarins síns.
ÞAÐ er óskiljanleg mannvonska
sem fylgir því að ætla að taka frá
þessu fólki dýrin sem skipta það svo
miklu máli og létta því lífið á erfiðum
stundum.
ÉG var í Þýskalandi á dögunum þar
sem mun meira frjálsræði ríkir um
dýrahald heldur en hér á landi. Hér
eru dýr bönnuð víða en þar í landi fær
besti vinur mannsins að fylgja honum
hvert sem er. Hvort sem það er í
almenningssamgöngum eða á barinn.
Ég varð heldur ekki vör við að nokkur
kippti sér upp við það.
ÉG get heldur ekki skilið hvernig það
truflar aðra íbúa í fjölbýlishúsum að
einhverjir íbúar séu með gæludýrin
sín inni í íbúðum sínum. Varla eru þau
æðandi um gangana.
VÆRI ekki nær lagi að endurskoða
þessi lög og leyfa fólki, sem í sumum
tilvikum er einangrað vegna fötlunar
sinnar, að njóta þess að hafa gæludýr
hjá sér sem veita því félagsskap og
gleði? Það held ég nú. Leyfið því að
hafa dýrin hjá sér.
Leyfi ð þeim að hafa dýrin hjá sér
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
9
-1
A
A
C
1
6
3
9
-1
9
7
0
1
6
3
9
-1
8
3
4
1
6
3
9
-1
6
F
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K