Morgunblaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aðventuljósin í Grafarvogskirkju voru tendruð við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Fór þar fram fyrsta aðventuhátíð vetrarins, en henni var frestað í síðustu viku vegna veðurs. Ferming- arbörn sóknarinnar fluttu helgileik og kveiktu svo á fyrstu tveimur kertunum á aðventukrans- inum; spádómskertinu og hirðakertinu, með að- stoð sr. Vigfúsar Þórs Árnasonar. Gærdagurinn var annar sunnudagur í aðventu. Kveikt á spádómskerti og hirðakerti Morgunblaðið/Kristinn Fermingarbörn tendruðu aðventuljósin í Grafarvogskirkju í gærkvöldi Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þingflokkur sjálfstæðismanna sam- þykkti að senda frumvarp um nátt- úrupassa til þinglegrar meðferðar þótt skoðanir væru skiptar um mál- ið. Þingflokksfundir verða haldnir í dag og stendur til að þingflokkur Framsóknarflokksins afgreiði málið til þinglegrar meðferðar. Þá verður ekkert því til fyrirstöðu að leggja frumvarpið fram á Alþingi. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, for- maður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði að skiptar skoðanir væru í þingflokki Sjálfstæðisflokksins um málið. En eru þær afdráttarlausar með og á móti frumvarpinu? „Þær eru kannski hvorki með né á móti. Sitt sýnist hverjum. En engu að síður þótti okkur ástæða til að málið færi frá okkur og að það yrði sent til umsagnar,“ sagði Ragnheið- ur. Hún sagði að með því móti færi málið til atvinnuveganefndar. Nefndin mundi svo fá umsagnirnar til skoðunar og vinna út frá þeim. Brynjar Níelsson, alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður, taldi að þingmenn væru ekki búnir að setja sig almennilega inn í málið, enda hefði það borið fremur brátt að. Frumvarpið hefði verið kynnt í þing- flokknum en ekki farið nákvæmlega yfir það. „Ráðherrann lagði áherslu á að þetta fengi þinglega meðferð og það er óþarfi að standa í vegi fyrir því. Svo kemur bara í ljós þegar mál- ið verður skoðað betur í nefndinni hvort eitthvert vit er meira í öðrum leiðum,“ sagði Brynjar. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa tekið afstöðu til málsins. „Mér finnst þetta mjög snjallt,“ sagði Pétur H. Blöndal, alþingismað- ur Reykjavíkurkjördæmis suður, þegar hann var inntur eftir afstöðu til frumvarpsins. Jón Gunnarsson, alþingismaður Suðvesturkjördæmis og formaður atvinnuveganefndar, sagði að ekki lægi fyrir tímaáætlun varðandi máls- meðferð frumvarpsins. Hann sagði, líkt og fleiri þingmenn Sjálfstæðis- flokks, að skiptar skoðanir væru um málið í þingflokknum, en samþykkt hefði verið að það færi til þinglegrar meðferðar og að atvinnuveganefnd yrði falið það. Aðspurður um afstöðu til málsins í þingflokknum sagði Jón að menn hefðu kastað á milli sín ýmsum atrið- um eins og því sem sneri að fyrirhug- uðu fyrirkomulagi innheimtu og eft- irlits, einnig kostnaði og umfangi vegna náttúrupassans og hvort þetta færi mögulega of mikið í sjálft sig. Hann sagði að þessi atriði þyrfti að skoða betur. „Við afgreiddum málið þannig að það gæti farið inn í þingið. Svo tekur við vinna nefndarinnar við að fá af- stöðu hagsmunaaðila og athuga hvort ekki er hægt að ná niðurstöðu sem flestir geta verið sáttir við,“ sagði Jón. Ekki á einu máli um passa  Sitt sýnist hverjum í þingflokki sjálfstæðismanna um náttúrupassafrumvarp  Það fær þinglega meðferð og fer fyrir atvinnuveganefnd sem leitar umsagna „Við afgreiddum málið þannig að það gæti farið inn í þingið.“ Jón Gunnarsson Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er reiknað með því að Harpa eins og önnur hús sem standa á fyll- ingu úti í sjó sígi og lyfti sér örlítið eftir sjávarstöðu (virkar svona eins og gormur). Harpa sjálf er mjög stíft hús og þessar hreyfingar skaða hana ekki. Það er ekki neitt sem bendir til þess að hún sé að síga umfram það sem eðlilegt er en ef svo væri ættu að sjást ummerki þess, sem við höf- um ekki orðið vör við.“ Þetta kemur m.a. fram í svari Halldórs Guðmundssonar, forstjóra Hörpu, við fyrirspurn Morgunblaðs- ins um hvort tónlistarhúsið sé eitt- hvað farið að síga, eins og blaðið fékk ábendingar um. Halldór hefur það eftir verkfræð- ingi hússins að fyllingin undir Hörpu hafi staðist öll tilskilin próf. Austur- og vesturhús Hörpu eru samkvæmt svari Halldórs misþung og á þau verka mismunandi upp- lyftikraftar frá sjónum á flóði og fjöru. Af þeim sökum eru húsin m.a. aðskilin með lóðréttri þenslufúgu sem liggur þvert í gegnum bygg- inguna. „Fræðilega séð, segja mér verk- fræðingar, getur orðið þar tíma- bundin mismunafærsla upp á ein- hverja millimetra eða jafnvel sentimetra við sérstakar aðstæður en við höfum ekki orðið vör við neina varanlega og merkjanlega færslu,“ segir Halldór í svarinu til Morg- unblaðsins. Getur sigið og risið eftir sjávarstöðu Morgunblaðið/Júlíus Við höfnina Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa stendur á uppfyllingu við Reykjavíkurhöfn og er hannað til að geta staðist áhrif af sjávarstöðu.  Fyllingin undir Hörpu stóðst öll próf  Engin ummerki um varanlegt sig Nokkuð er um að fólk falsi strætó- miða til að láta á það reyna að komast ferða sinna frítt. Hafa vagnstjórar orðið varir við þetta, meðal annars þegar miði sem settur er í bauk- inn er aðeins merktur á annarri hliðinni. „Þetta eru fyrst og fremst krakk- ar að svindla sér í strætó,“ segir Ást- ríður Þórðardóttir, sitjandi fram- kvæmdastjóri Strætó bs. Hún segir þetta ekki mikið vandamál, en vissu- lega komi þetta upp annað slagið. „Það eru einhverjir miðar í um- ferð en það virðist óverulegt sam- kvæmt okkar talningum. Þetta hefur ekki haft stór áhrif á söluna,“ segir hún. Ástríður segir vagnstjóra fyrst og fremst verða vara við þetta, en einn- ig komi öðru hverju falsaðir miðar til baka úr baukunum. Þá sé yfirleitt haft samband við lögreglu þegar slíkt svindl kemst upp, en eins og stendur eru tvö mál á borði lögreglu af þessu tagi. „Það er í rútínu hjá okkur að stoppa svona þegar það kemur upp en við lítum ekki á þetta sem stórfellt svindl,“ segir Ástríður. Þá segir hún að með tilkomu hinnar nýju tækni, sem gerir fólki kleift að borga í strætó með símanum sínum, séu möguleikarnir á fölsunum afar takmarkaðir. if@mbl.is Reyna að svindla sér í strætó Strætó Sumir reyna að svindla.  Tvö mál hjá lög- reglu um falsaða miða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk seint á laugardagskvöld til- kynningu um slagsmál í Breiðholti og lék strax grunur á að eggvopnum hefði verið beitt. Óskaði lögreglan því eftir aðstoð frá sérsveit ríkislög- reglustjóra. Alls voru fjórir karlmenn hand- teknir og var einn þeirra fluttur í fangageymslur lögreglu en flytja þurfti hina þrjá á slysadeild til að- hlynningar. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu er málið nú í rannsókn. Þá voru tilkynntar tvær líkamsárásir í gær; önnur í Breið- holti en hin í Vesturbæ. Sérsveitin í Breiðholtið Veðurstofan hef- ur varað við suð- austan stormi eða roki, 20-28 metrum á sek- úndu, sem geng- ur yfir landið í kvöld og nótt. Fyrst suðvestan- og vestanlands með snjókomu eða slyddu. Snýst síðan í mun hægari suðvestanátt með éljum, fyrst suðvestantil í nótt en norðaustantil í fyrramálið. Búast má við miklum vindhviðum við fjöll, 40-45 metrum á sekúndu. Þessu fylgir talsverð úrkoma sunnan- og vestanlands og jafnvel mikil suð- austanlands. Vegagerðin varaði í gær við hálku á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka eða snjóþekja var víða á Suð- urlandi. Nokkur hálka var á stofn- brautum á höfuðborgarsvæðinu, á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum. Varað við stormi í kvöld og nótt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.