Morgunblaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 14
14 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
Er kominn tími á að
smyrja bílinn þinn
Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Að smyrja bílinn
reglulega er hagkvæm og
ódýr leið til þess að tryggja betri og
lengri endingu vélarinnar.
564 5520
bilajoa.is
Nýjustu mælingar á bandaríska vinnumark-
aðinum komu fjárfestum skemmtilega á
óvart á föstudag. Urðu til 321.000 ný störf í
nóvember en samkvæmt könnunum höfðu
markaðsgreinendur að meðaltali reiknað
með um 230.000 störfum.
Þá voru mælingar fyrir september og októ-
ber endurskoðaðar og bætti það við 44.000
störfum.
Ef marka má atvinnutölurnar hefur banda-
rískt atvinnulíf verið á góðri siglingu á árinu
en síðustu tíu mánuði hafa að lágmarki bæst
við 200.000 ný störf í mánuði hverjum. Mar-
ketWatch segir slíka fjölgun starfa síðast
hafa sést árið 1994. Samtals hafa 2.,65 millj-
ónir nýrra starfa orðið til í Bandaríkjunum
það sem af er ári og mögulegt að þriggja
milljóna markinu verði náð þegar endanlegar
tölur desembermánaðar liggja fyrir.
Ekki ætti að koma óvart að hlutabréfa-
vísitölurnar vestanhafs tóku kipp við frétt-
irnar. Dow Jones vísitalan hækkaði um 0.33%
og stóð í 17.958,79 stigum við lokun markaða
á föstudag. Vantar agnarögn upp á að 18.000
stiga markinu sé náð.
S&P 500 vísitalan styrktist um 0.17% á
föstudag og mælist nú 2.075,37 stig. Nasdaq
vísitalan hækkaði um 0,24% og stendur í
4780,76 stigum.
Dollar í hæstu hæðum
Jafnframt hækkaði ICE-dollaravísitalan um
0,86%. Vísitalan mælist nú 89,36 stig og hefur
ekki verið hærri síðan 2006. Naut ICE-
vísitalan góðs af veikingu bæði evru og jap-
anska jensins.
FT greinir frá að Alþjóðagreiðslubankinn í
Basel (BIS) vari við áframhaldandi styrkingu
bandaríkjadals kunni að hafa truflandi áhrif
á nýmörkuðum þar sem fyrirtæki hafa mörg
tekið að láni stórar fjárhæðir, bundnar við
dollar. ai@mbl.is
Sterkar atvinnutölur ýta
hlutabréfum upp á við
Styrking dollars gæti bitnað á nýmörkuðum
AFP
Uppgangur Hasar á gólfinu hjá NYSE. Stóru vísitölurnar þrjár hækkuðu á föstudag.
Breski viðskiptajöfurinn
Richard Branson opnaði á
dögunum nýjustu viðbótina
við Virgin-fjölskylduna. Er
um að ræða skemmtisiglinga-
fyrirtæki, Virgin Cruises,
með höfuðstöðvar í Miami.
Businessweek greinir frá
að til standi að hanna frá
grunni og smíða tvö ný skip
sem munu hvort um sig rúma
4.200 farþega og sigla um
Karíbahafið.
Nú þegar hefur Virgin-
samsteypan gerst aðsópsmik-
il í ferðageiranum, með flug-
félagarekstri, lestarfyrirtæki
og geimferðalögum. Þá verð-
ur fyrsta Virgin-hótelið opnað
í Chicago í byrjun næsta árs.
Businessweek hefur eftir
innanbúðarmönnum hjá Virg-
in að skemmtisiglingar hafi
verið lengi á kortinu en það
hafi ekki verið fyrr en nú að
ímynd Virgin-vörumerkisins
þótti vera nægilega vel mótuð
á Bandaríkjamarkaði til að
takast á við verkefnið. Banda-
rískir ferðalangar bera nán-
ast uppi skemmtisiglingageir-
ann en af þeim 22 milljónum
farþega sem fara í siglingar
ár hvert er um helmingurinn
Bandaríkjamenn. Næstfjöl-
mennastir um borð eru Bret-
ar, þá Írar og loks Þjóðverjar.
Í dag skipta þrjú stór fyr-
irtæki á milli sín um 80% af
skemmtisiglingamarkaðinum.
Virgin Cruises hyggst
reyna að höfða til yngri hópa
skemmtisiglingafólks með
„fjörugum“ og „orkuríkum“
siglingum sem munu spanna
frá fjórum og upp í sjö daga.
ai@mbl.is
Virgin spreytir sig
á skemmtisiglingum
Lætur hanna og smíða tvö risavaxin skip
AFP
Metnaður Richard Branson rekur mikið veldi. Stutt er síðan
fyrirtæki hans varð fyrir áfalli þegar tilraunaflaug brotlenti.
Við lokun markaða vestanhafs á
föstudag mældist markaðsvirði
Wells Fargo & Co 285,5 milljarðar
dala, með 5,19 milljarða útistandandi
hluti þann 31. október.
Að sögn Bloomberg sló bankinn
með þessu fyrra met Citigroup sem
verðmætasti bankinn. Var Citigroup
hæst metið á 283,4 milljarða dala
þann 5. febrúar 2001.
Berkshire Hathaway, fjárfest-
ingafyrirtæki Warren Buffett, er
stærsti hluthafi Wells Fargo. Bank-
inn tvöfaldaði stærð sína árið 2008
með kaupum á Wachovia Corp og
sneri þar á Citigroup sem einnig
hafði áhuga á kaupunum.
Á þessu ári hefur Wells Fargo
hækkað um 21% sem er mun betri
árangur en 7,7% meðatalshækkunn
24 stærstu lánafyrirtækja Banda-
ríkjanna. ai@mbl.is
AFP
Mídas Berkshire Hathaway, fyrirtæki Warren Buffett, á mikið í Wells Fargo.
Wells Fargo slær
bandarískt met
Hæsta markaðsvirði sögunnar
Matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði á
föstudag lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins.
Lækkaði einkunnin úr BBB/A-2 niður í
BBB-/A-3 með stöðugum horfum, aðeins
einu þrepi ofar en svokallaður ruslflokkur.
Lækkunin kemur til vegna lélegs hag-
vaxtar í landinu, sem matsfyrirtækið segi
að „grafi undan sjálfbærni opinberra
skulda“.
MarketWatch segir lækkunina áfall fyrir
Matteo Renzi sem settist í forsætisráð-
herrastólinn fyrr á árinu. Renzi hefur reynt
að gera breytingar á vinnulöggjöf Ítalíu en
S&P gagnrýnir mjög rekstrarumhverfi
landsins og segir kerfið bæði hefta sam-
keppni og fæla frá erlenda fjárfestingu.
Dómskerfið sé svifaseint og launatengd
gjöld mjög há. ai@mbl.is
S&P lækkar lánshæfi Ítalíu
AFP
Ólga Ekki hafa allir brugðist vel við tilraunum
Matteo Renzi til að breyta vinnulöggjöf Ítalíu.
Frá mótmælum í Róm í síðustu viku.