Morgunblaðið - 08.12.2014, Qupperneq 28
28 MINNINGAR Aldarminning
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 517 0150
Ýmislegt
Elsku besta
amma mín hefði orð-
ið 100 ára í dag. Mig
langar að minnast
hennar í nokkrum orðum af því
tilefni. Elsku amma, mig langar
að þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar með þér. Amma mín
var með hjarta úr gulli, kom til
dyranna eins og hún var klædd,
hreinskilin, góð og hjartahlý. Allt-
af gat ég leitað til hennar með öll
mál, hún átti ráð við öllu. Amma
kenndi mér svo margt í lífinu og
er ég ævinlega þakklát henni fyrir
það, aldrei var það neitt mál.
Amma dvaldi svo oft hjá mér þeg-
ar ég fór að búa sjálf og áttum við
yndislegar stundir saman með
Bjarnveig
Jakobsdóttir
✝ Bjarnveig Jak-obsdóttir fædd-
ist í Unaðsdal á
Snæfjallaströnd 8.
desember 1914.
Hún lést í Sunnu-
hlíð í Kópavogi 6.
mars 1999.
börnunum mínum
og eiginmanni og
gátum hlegið að öllu
og engu. Við gátum
líka rifist en það stóð
aldrei lengi yfir.
Elsku besta
amma mín, ég hugsa
til þín á hverjum
degi og sakna þín
óendanlega mikið.
Takk, elsku amma
mín, fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig í gegnum árin
og takk fyrir að vera frábær
amma. Ég vona að þú hafir það
gott þar sem þú ert, elsku amma,
og til hamingju með 100 ára af-
mælið þitt.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Ég elska þig, amma mín.
Þín,
Ragnheiður.
✝ ValgerðurGísladóttir
fæddist á Helga-
stöðum 6. júní
1929. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Grund í
Reykjavík 1. des-
ember 2014.
Foreldrar
hennar voru hjón-
in Gísli Jónsson, f.
4. september
1889, d. 14. ágúst 1978 og
Sólborg Sigmundsdóttir, f.
26. ágúst 1895, d. 16. maí
1982. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Helgastöðum í
Mýrasýslu. Systkini Val-
gerðar eru Friðjón, f. 24.
mars 1928 d. 5. september
2014 og Eyrún, f. 12. júní
1933. Valgerður giftist 27.
febrúar 1954 Bjarna Björns-
syni, f. 15. ágúst 1925, d. 19.
janúar 2009. Foreldrar hans
voru Sigríður Jónsdóttir, f.
29. mars 1892, d. 29. nóv.
1972 og Björn Ingvar Jós-
efsson, f. 11. sept. 1896, d. 4.
ágúst 1971. Þau voru bændur
1960, börn þeirra eru a) Elí-
as Fannar, f. 1984, sambýlis-
kona Hugrún Ýr Magn-
úsdóttir, f. 1991 b) Birgir
Snær, f. 1992 og c) Eiður
Logi, f. 1996. 4) Sigríður, f.
1964, maki Jón Orri Magn-
ússon, f. 1964, börn þeirra
eru a) Aron, f. 1991, sam-
býliskona Andrea Kristjáns-
dóttir, f. 1989 og b) Bjarki,
f. 1994. Valgerður ólst upp á
Helgastöðum í Mýrasýslu en
fór ung að árum til Reykja-
víkur. Framanaf var hún
húsmóðir en starfaði síðan á
Landspítalanum við Hring-
braut til 65. ára aldurs. Val-
gerður var ásamt eig-
inmanni sínum virk í kvæða-
og kvöldvökufélaginu Ljóð
og Saga. Þau byggðu sum-
arbústað í landi Neðri Háls í
Kjós og dvöldu þar löngum
stundum. Hún hafði gaman
af ferðalögum og ferðuðust
þau hjónin með vinafólki
jafnt innanlands sem utan.
Valgerður var mikil handa-
vinnukona og eru mörg fal-
leg verk til eftir hana. Síð-
ustu þrjú æviárin var
Valgerður á hjúkrunarheim-
ilinu Grund í Reykjavík.
Útför Valgerðar fer fram
frá Bústaðakirkju 8. des.
2014 og hefst athöfnin
klukkan 13.
að Hrappstöðum í
Víðidal á árunum
1918 til 1947. Val-
gerður og Bjarni
eignuðust fjögur
börn: 1) Sólborg,
f. 1953, maki Sig-
urður Júlíus
Kristinsson, f.
1953, börn þeirra
eru a) Ásgeir
Kristinn, f. 1980,
sambýliskona
Þórdís Friðsteinsdóttir, f.
1981, börn þeirra eru Bjarni
Freyr f. 2009 og Kristinn Örn
f. 2013 b) Hildur, f. 1982 og
c) Valgerður, f. 1982, dóttir
hennar er Sólborg, f. 2008. 2)
Dagbjört, f. 1955, maki Páll
Högnason, f. 1953, börn
þeirra eru a) Sigurður Valur,
f. 1975, maki Jónína Guðrún
Þorvaldsdóttir, f. 1975, börn
þeirra eru Reynir Páll, f.
2000, Valdís María, f. 2004 og
Jón Valur, f. 2011 b) Anna
Kristín, f. 1987, sambýlis-
maður Hlynur Einarsson, f.
1985. 3) Hjalti, f. 1958, maki
Kristín Kristjánsdóttir, f.
Það eru hlýjar og notalegar
minningar sem fylla hugann
þegar ég hugsa til ömmu og
afa í Álfalandinu. Amma að
baka kleinur, kveikt á Gufunni
og allt með rólegasta móti.
Hjá þeim var svo sannarlega
notalegt að gleyma stað og
stund. Það gat komið sér vel
að eiga þetta athvarf frá
hraða, interneti og stressi nú-
tímans ekki síst þegar kom að
prófatíð. Próflestur hjá ömmu
gekk alltaf sérstaklega vel fyr-
ir sig. Notalegt andrúmsloft
og amma passaði að námsmað-
urinn hefði nóg að maula.
Henni leiddist ekki að baka og
það var ósjaldan bökunarilmur
sem fyllti vitin í Álftalandinu.
Þegar annríkið hjá barna-
barninu var mikið var svo
hægt að treysta á heimsendar
nýbakaðar kleinur beint úr
eldhúsinu hennar ömmu og
auðvitað heimboð í grjónavell-
ing.
Amma var mikil handverks-
kona og lagði sitt af mörkum
til að kenna okkur barnabörn-
unum eitthvað af réttu hand-
tökunum. Það gekk upp og of-
an þó ekki hafi vantað upp á
þolinmæði hennar ömmu.
Lopavettlingar, sokkar og
peysur í bílförmum hafa
streymt frá Álfalandinu til
ættingja og vina í gegnum árin
svo ekki sé minnst á handverk
og útsaum. Framleiðslan var
með ólíkindum og mikið sem
ég þakka fyrir að eiga sýn-
ishorn af þessum fallegu mun-
um.
Í síðasta skipti sem ég hitti
ömmu var hún hress, grínaðist
eins og hún átti til og var
ánægð með tilveruna á Grund.
Þessa minningu mun ég alltaf
eiga og mér hlýnar að hugsa
til þessarar stundar. Takk fyr-
ir allt, elsku amma mín, ég
mun ávallt minnast þín með
hlýju og söknuði.
Anna Kristín Pálsdóttir.
Valgerður
Gísladóttir
Smáauglýsingar 569 1100
Það fyrsta sem
ég man eftir Krist-
jáni frænda mínum
var að hann og
Hrólfur, bróðir
hans, voru að stækka túnið með
Ræktunarsambandsýtunni og
Kristján söng mikið og hafði
auðsjáanlega mikið gaman af
þessu verki.
Eins minnist ég þess að
pabbi fór með lömbin í slát-
urhúsið á Þórshöfn og kom
heim mjög ánægður og sagði að
dóttir Kristjáns hefði komið
heim til sín og sagt: „Hvaða
karl er það sem er alveg eins
Kristján
Ragnarsson
✝ Kristján Ragn-arsson fæddist
27. júní 1930. Hann
lést 24. nóvember
2014. Útför Krist-
jáns fór fram 1.
desember 2014.
og pabbi?“ Pabbi
taldi mikla upphefð
í því að líkjast
Kristjáni frænda
sínum.
Þegar við héld-
um ættarmót af-
komenda afa og
ömmu í Grasgeira
voru tveir menn
sem virtust hafa
nógan tíma til að
gera það sem
þurfti að gera. Það voru Krist-
ján og Þorbergur Guðmunds-
son. Þegar við vorum að skipta
með okkur verkum tók Kristján
að sér það verk sem flestir
höfðu ekki mikinn áhuga á; það
voru salernis- og hreinlætis-
málin. Þetta voru þau mál sem
best voru leyst af hendi á ætt-
armótinu.
Eftir að ég komst á bílpróf-
saldurinn og fór að reka bílaút-
gerð þurfti ekki annað en tala
við Kristján ef eitthvert ólag
var á bílunum, hann gat alltaf
sagt hvað ég ætti að gera svo
að bíllinn kæmist í lag.
Úlfur Ragnarsson læknir
taldi Kristján ekki minni lækni
en sig því hann væri bílalækn-
irinn á Þórshöfn. Nú er Ás-
berg, dóttursonur Kristjáns,
tekinn við því.
Ég vil þakka Kristjáni fyrir
alla aðstoðina um dagana og
sendi eiginkonu hans og afkom-
endum samúðarkveðjur.
Eiríkur Kristjánsson.
Ég bið þig, sendu nú vagninn þinn
að sækja mig.
Já, herra, sendu nú gullvagninn að
sækja mig.
Gættu mín, geymdu mig, gefðu mér
friðinn.
Langt hef ég farið og mig langar
heim.
(Jónas Friðrik Guðnason.)
Elsku frændi minn. Það er
komið að leiðarlokum, lífskertið
þitt brunnið og kveikurinn
slökktur. Það dimmir í hjörtum
margra. Já, margra sem fengu
að njóta logans, sem skein svo
skært af lífs kerti þínu á meðan
það var og veitti óspara birtu,
hlýju og gerðir götuna greiðar
fyrir okkur sem fengum notið.
Söknuðurinn sár sem ávallt,
þegar fara frá okkur miklir
góðir menn. Minningarnar um
þig eru yndislegar, brosandi
glaður, alltaf traustur og góður.
Einstakur. Já alltaf! Ég fékk
þeirrar gæfu að njóta að fá að
dvelja löngum stundum á þínu
heimili, bæði sem barn og svo
eldri, og alltaf var sami kær-
leikurinn og elskan. Já, Krist-
ján, það er mannbætandi að
hafa fengið að una í ykkar hlýja
skjóli. Ykkur á ég mjög margt
að þakka.
Elsku Edda mín, Áshildur,
Ragnar og Freyr, mínar inni-
legustu samúðarkveðjur. Elsku
frændi minn, takk fyrir allt og
allt. Ég efast ekki um að það er
gott land og góðir endurfundir
sem bíða þín á æðri stigum. Og
fallegur gljáandi gullvagninn er
þinn!
Þín frænka,
Ásrún.
Ég kynntist Sig-
urði Baldurssyni
ungur að árum en ég
og yngsti sonur hans,
Ingvar, höfum verið
bestu vinir síðan leiðir okkur lágu
saman fyrir allt of mörgum árum.
Siggi, eins og hann var jafnan
kallaður, var einkar duglegur að
gera eitthvað með strákunum sín-
um, þeim Baldri og Ingvari. Veiði-
mennska hefur löngum verið stórt
áhugamál hjá þeim feðgum og þeir
voru duglegir að láta að sér kveða í
bæði stangveiði og skotveiði. Oftar
en ekki var mér boðið með í þessa
veiðitúra þeirra feðga og hafði ég
mikið gaman af.
Í menntaskóla fékk Ingvar þá
flugu í hausinn að hann vildi byrja í
hestamennsku. Siggi sagði yngsta
barninu að fara hægt í sakirnar.
Hann hringdi í mig og bað mig vin-
samlegast um að sýna Ingvari allar
leiðinlegustu hliðar hestamennsk-
unnar. Ég lét Ingvar fá skóflu um
leið og við mættum upp í hesthús
og hann sá um að moka flórinn
þennan daginn. Allt kom fyrir ekki
Sigurður
Baldursson
✝ Sigurður Bald-ursson fæddist
30. september
1952. Hann lést 20.
október 2014. Útför
Sigurðar fór fram
7. nóvember 2014.
og fjórum vikum síð-
ar voru þeir feðgar
búnir að fjárfesta í
myndarlegu, tuttugu
hesta stóði.
Við strákarnir
brölluðum ýmislegt á
okkar yngri árum,
misgáfulegt að sjálf-
sögðu. Við áttum það
til að gjörsamlega of-
bjóða foreldrum okk-
ar með allskyns vit-
leysu sem var oft á tíðum rædd á
leiðinni í hesta- eða veiðiferðir um
helgar. Siggi var þá jafnan í bílnum
með okkar og hló manna hæst að
vitleysunni í okkur.
Fullorðið fólk gleymir því oft að
leyfa börnunum sínum að vera
bara unglingar. Ég verð Sigurði
ævinlega þakklátur fyrir það að
hafa leyft okkur strákunum að vera
bara vitlausir unglingar í blóma
lífsins, í staðinn fyrir að segja okk-
ur að hætta þessum fíflalátum og
reyna að fullorðnast.
Siggi var góður maður, góður
faðir og einstaklega virkur þátttak-
andi í lífi þeirra sem stóðu honum
næst. Ég mun sakna hans og ég
votta þeim Hönnu, Jóhönnu Maríu,
Ernu, Baldri og Ingvari mína
dýpstu samúð og bið góðan guð að
styrkja þau á þessum erfiðu tím-
um.
Bjarni Helgason.
Elsku langamma okkar, það
er sárt að missa eins flotta og
góða langömmu og þig. Það er
ekki hægt að segja að komið
hafi verið að tómum kofum hjá
þér hvort sem um var að ræða
bakkelsi eða sögusagnir. Kærar
þakkir fyrir allar þær stundir
sem við áttum með þér, hlát-
urinn og vináttuna, knúsaðu
langafa frá okkur.
Ingveldur
Jónasdóttir
✝ Ingveldur Jón-asdóttir fædd-
ist í Garðhúsum á
Eyrarbakka 29.10.
1917. Hún lést í
Seljahlíð, heimili
aldraðra, 23. októ-
ber 2014.
Útför Ingveldar
fór fram frá Foss-
vogskirkju 31.
október 2014.
Þá vill Axel
Gerðar þakka fyrir
þolinmæðina og
móttökurnar þegar
hann og þá aðallega
Sigrún vinkona
hans komu í heim-
sókn til þín en
stundum voru það
aðrir vinir líka.
„Hún amma mín sagði
mér sögur
er skráðust í huga
minn inn,
sumar um erfiðu árin,
aðrar um afa minn.
Og þá var sem sól hefði snöggvast
svift af sér skýjahjúp
því andlitið varð svo unglegt
og augun svo mild og djúp.“
(Rafnar Þorbergsson)
Hvíl í friði, elsku langamma
okkar.
Harpa Lind og Axel Gerðar.
Elsku Kittý og fjölskylda. Við
vottum ykkur dýpstu samúð og
biðjum góðan Guð að styrkja
ykkur og blessa á þessum erfiðu
tímum.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
Helgi Hemmert
Sigurjónsson
✝ Helgi Hemmert Sig-urjónsson fæddist 29. ágúst
1951. Hann lést 5. nóvember
2014.
Helgi var jarðsunginn 13.
nóvember 2014.
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Haraldur og Guðný.