Ský - 01.10.2006, Síða 18

Ský - 01.10.2006, Síða 18
 18 ský Viðtal oft leiðinlegt og skildum ekki tilganginn með því sem væri verið að setja á svið. Frekar en að væla sífellt yfir því fannst okkur við þurfa að þróa okkar eigin hluti. Svo var það einhvern daginn þegar við Björn Hlynur vorum að labba niður Vesturgötuna að við sáum rafmagnsskúr til leigu í porti og við tókum hann á leigu á staðnum! Þarna var komið þetta fína húsnæði til að gera allt mögulegt. Við gerðum okkur samt fljótt grein fyrir því að það þyrfti fleiri til að reka þetta, enda enn á námslánum, svo við leituðum til þeirra sem við vissum að myndu hafa áhuga á að eiga eigið leikhús í góðum félagsskap. Það endaði með því að við vorum þrettán manns í hópnum. Það var aldrei krafa um neitt, nema mánaðarlegar greiðslur og þar með aðstaða til að gera hvað sem er með hverjum sem er. Þarna var haldið fullt af sýningum og tónleikum og það var aldrei skortur á fólki til að taka þátt í vinnunni því allir hjálpuðust að. Við erum hætt að reka starfsemi í rafmagnsskúrnum og það mætti segja að hópurinn hafi farið í nokkrar áttir. Fólk kemur og fer og starfar saman eins og hugurinn innblæs því, en grunnurinn að Vest- urporti er samt alltaf sama fólkið og það liggja fyrir mörg verkefni á Íslandi sem og víðs vegar um heiminn í komandi framtíð. Bæði í leikhúsi og kvikmyndum. Við styðjum ótrúlega vel við bakið á hvort öðru og ég efast um að ég væri ennþá í faginu án þessa bakhjarls. Þar fæ ég olnbogarými til þess að gera það sem mér sýnist, þar liggur inn- blásturinn minn, þar fæ ég mína hörðustu gagnrýni. Þar á ég heima. Fimleikar og ferðalög Gísli var fastráðinn í Borgarleikhúsinu eftir að hann útskrifaðist. Hann samdi við Guðjón Pedersen leikhússtjóra um að fá lánað svið til að setja upp Rómeó og Júlíu í eigin frístundum. „Mig langaði alltaf til að setja upp verk þar sem fimleikagrunnurinn nýttist mér og þannig varð þessi sýning í Borgarleikhúsinu til,“ segir Gísli Örn. „Þetta er ævintýraleg sýning, mjög líkamleg og mikil sirkus- stemmning í gangi. Við vorum í hálft ár að æfa þetta og fórum meðal annars í tæknilega þjálfun hjá Sirkus Cirkör í Svíþjóð áður en sýningin fór á fjalirnar. Sýningin í Borgarleikhúsinu var lengi að komast í gang, en svo tóku Rómeó og Júlía flugið og eftir það gat ekkert stoppað þau. Gottskálk Dagur fékk þá hugmynd að fara með sýninguna til London og við buðum David Lan frá Young Vic leikhúsinu hingað til lands til að sjá hana og þar með var stefnan sett á útlönd. „Ég er ekki úr leiklistarfjölskyldu þótt mamma hafi gaman af leiklist. Ég var að æfa fimleika og fylgdist ekkert með því sem var að gerast í leikhúsum. Ekki neitt,“ „Ég er ekki úr leiklistarfjölskyldu þótt a a hafi ga an af leiklist. Ég var að fa fi leika og fylgdist ekkert eð því se var að gerast í leikhúsu . Ekki neitt.“ SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 18 28.9.2006 10:54:39

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.