Ský - 01.10.2006, Page 29
ský 29
Golfið er vinsælasta almenningsíþróttin á Íslandi og hefur mikla yfirburði hvað það snertir. Golfk-lúbbar eru yfirfullir og langir biðlistar í alla
golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Golf er skemmtileg
keppnisíþrótt þar sem allir eru jafnir. Það er forgjafar-
kerfið sem sér til þess að svo er. 36 er hæsta forgjöf sem
gefin er og sá sem er kominn á skrið og jafnvel kominn
með forgjöf 28 getur leikið við kylfing sem er með 2 í
forgjöf á jafnréttisgrund velli.
Í golfi hittast allar þjóðfélagsstéttir, en sumar starfs-
stéttir eru meira áberandi og fjölmennari en aðrar.
Lögfræðingar eru þar í fremstu röð, en fjöld inn allur
af þeim stundar golf, meðal annars tveir hæstaréttar-
dómarar, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur
Þorvaldsson, sem báðir eru félagar í Golfklúbbi Reykj-
avíkur. Þeir leika oft golf saman og ég óskaði eftir því
fyrir hönd Skýja að fá að leika með þeim einn hring,
ljósmyndari fylgdi okkur eftir og ég fjallaði um golfið
og var það sjálfsagt mál.
GOLF MEÐ TVEIMUR HÆSTA RÉTTARDÓMURUM
OG SEXFÖLDUM ÍSLANDS MEISTARA
Texti: Hilmar Karlsson Myndir: Geir Ólafsson
FJÓRÐI
MAÐURINN
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 29 28.9.2006 10:55:07