Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 35

Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 35
Stjórnmál Kóranes verður Bókhlöðustígur Ef húsin í bænum mættu mæla kynni sitthvað forvitnilegt að fréttast. Gamla bárujárnsklædda húsið að Bókhlöðustíg 5 í Reykjavík á merka sögu að baki, því upphaflega stóð það á Kóranesi. Þegar verslun þar lagðist af, var húsið tekið ofan og flutt til suður, hvar það stendur enn. Því má segja að fæðingarstaður Ásgeirs Ásgeirssonar hafi verið fluttur í heilu lagi til Reykjavíkur. Ásgeir Ásgeirsson fluttist ungur til Reykjavíkur með foreldrum sínum. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1912 og varð cand. theol. í guðfræði frá Háskóla Íslands 1915. Næsta ár þar á eftir var Ásgeir ritari biskups Íslands, Þórhalls Bjarnasonar. Þar og þannig sköruðust leiðir Ásgeirs og Dóru dóttur Þórhalls biskups og Valgerðar Jónsdóttur konu hans og gengu þau í heilagt hjónaband í októ- ber 1917. Eftir framhaldsnám í Svíþjóð og Danmörku gerðist Ásgeir kennari við Kennaraskóla Íslands og varð seinna fræðslumálastjóri með hléum til 1938. „Margur kom á fræðslumálaskrifstof- una til Ásgeirs í þungum þönkum, bæði kennarar, skólanefndir, nem- endur eða aðstandendur þeirra og fóru frá honum léttari á svip og sáttari við sinn hlut. Menn sögðu við mig að það væri einkennilegt hvernig Ásgeir gerði þeim ljóst að tvær hliðar væri á flestum málum og gerði viðmælendum auðvelt að sætta sig við önnur málalok en þeir ætluðu þegar þeir gengu inn til hans,“ segir Helgi Elíasson fræðslumálastjóri í minningarorðum um Ásgeir. Snjall í sókn sem vörn Fyrir kosningar haustið 1923 leituðu framsóknarmenn í Vestur-Ísa- fjarðarsýslu að fulltrúa sem væri verðugur fulltrúi þeirra á þingi, en sýslan var þá einmenningskjördæmi. Þeim flaug nafn Ásgeirs í hug, sem gaf kost á sér eftir nokkra umhugsun. Vestra reyndist hann „... með afbrigðum snjall og laginn jafnt í sókn sem vörn ... Hann var sérlega hnyttinn, og ekki var ótítt, að andstæðingur ylti sjálfur um þau kefli, sem áttu að verða honum að falli,“ skrifar Guðmundur G. Hagalín um Ásgeir sem vann glæsilegan sigur. Fékk 620 atkvæði en meðan 341 greiddu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins atkvæði sitt. Tímabilið í kringum 1930 er róstusamt skeið í íslenskum stjórn- málum. Kreppan mikla markaði aðstæður þjóðarinnar og sömuleiðis voru mikil átök milli flokka – og er óhætt að segja að dómsmála- ráðherrann Jónas frá Hriflu hafi verið möndull þeirra ýfinga. Þegar Íslandsbanki varð gjaldþrota árið 1930 var Ásgeir í lykilhlutverki í því að Útvegsbankinn var reistur á rústum hans. Ríkisstjórn Fram- sóknarflokksins undir forsæti Tryggva Þórhallssonar naut stuðnings Alþýðuflokksins, en þegar kom fram á árið 1932 var stuðningur við stjórnina brostinn. Stjórnin náði ekki að koma fjárlögum í gegn og Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur vildu gera breytingar á kjör- dæmaskipan. Tryggvi fól því Ásgeiri mági sínum, sem tekið hafði við embætti fjármálaráðherra árið áður, „... að reyna að mynda stjórn, en erfiðleikarnir voru miklir,“ segir Magnús Magnússon í bókinni Ráð- herrar Íslands og ráðuneyti. „Hann hafði þá lofað andstæðingunum vissum breytingum á kjördæmaskipuninni, en þeir lofað að afgreiða fjárlög.“ Ásgeir er einnig talinn hafa verið í hópi þeirra Framsóknarmanna sem vildu stemma stigu við ofríki Hriflu-Jónasar. Þar var hann skrefi á undan mörgum flokksbræðrum sínum. Forsætisráðherra í kreppunni Ríkisstjórn Ásgeirs Ásgeirssonar, sem Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur stóðu að, tók við keflinu í júní 1932. Utan breytingar á kjördæmaskipan var erfiðasta verkefni Ásgeirs sem for- sætisráðherra væntanlega þó að sigla þjóðarskútunni milli skers og báru í öldusjó kreppuára. Tókst sú sigling með ágætum og farið var að rofa til þegar ríkisstjórnin fór frá sumarið 1934. Væringar innan Framsóknarflokksins á þessum tíma urðu þess valdandi að Ásgeir, sem var formaður flokksins 1932 til 1933, yfirgaf skútuna. Hann bauð sig fram utan flokka og í kosningum 1934 ljáðu 491 kjósendur í Vestur-Ísafjarðarsýslu honum atkvæði sitt, eða ríflega helmingur sem kosningaréttar neyttu. Þessi tryggð hélst þó Ásgeir gengi seinna í raðir Alþýðuflokksins, og almennt er hún til marks um hið mikla persónufylgi sem Ásgeir hafði alla tíð. Sem fulltrúi Alþýðuflokksins var Ásgeir skipaður bankastjóri Útvegsbankans árið 1938, jafnframt því sem hann sat á þingi, eins og alsiða var á þeim tíma. Í bankanum var hann ráðdeildarmaður og á Alþingi var hann „... eigi ólíkur erni í klettum, sem lá í loftinu að brátt myndi hefja sig til flugs og fljúga ofar skýjum, sem líkt varð fljótlega og gaf á að líta,“ segir sr. Emil Björnsson, síðar fréttastjóri, sem var þingskrifari á fimmta áratugnum. Þannig var strax á fyrstu árum lýðveldisins litið til Ásgeirs sem forsetaefnis því fæstir bjuggust við að Sveinn Björnsson gegndi embættinu lengi sakir vanheilsu. Þegar Sveinn féll svo frá snemma árs 1952 var Ásgeir strax nefndur til leiks og í fyrstu virtist sem breið samstaða ætlaði að myndast um framboð hans. En brátt tók að krauma í pottum. Ásgeir er talinn hafa verið í hópi þeirra Framsóknarmanna sem vildu stemma stigu við ofríki Hriflu-Jónasar. Þar var hann skrefi á undan mörgum flokksbræðrum sínum. ský 35 SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 35 28.9.2006 10:55:46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.