Ský - 01.10.2006, Qupperneq 44

Ský - 01.10.2006, Qupperneq 44
Í nýju hverfi í landi Leirvogstungu Í Mosfellsbæ mun rísa 400 íbúða byggð á næstu fjórum árum og þegar eru hafnar framkvæmdir við fyrsta áfanga sem er næstur miðkjarna Mosfellsbæjar. Í þessum áfanga verða 15 einnar hæðar og 30 tveggja hæða einbýlishús, 33 íbúðir í tveggja hæða raðhúsum og 24 íbúðir í tveggja hæða keðjuhúsum. Flestar lóðir í fyrsta áfanga eru seldar en í vetur verða boðnar út lóðir í öðrum áfanga framkvæmdanna. Reiknað er með að fyrstu íbúarnir flytji í hús sín síðla næsta sumar eða næsta haust. Það er arkitektinn Gylfi Guðjónsson og félagar hans sem hafa skipu- lagt Leirvogstunguna en byggingasvæðið er á milli Köldukvíslar og Leirvogsár. Einbýlishúsalóðirnar eru að jafnaði 850 til 1200 fermetrar og eru seldar á 9,5-13,5 milljónir króna. Flest húsin munu standa í nokkrum halla þannig að útsýni verður úr þeim út á sjóinn. Bjarni Sveinbjörn Guðmundsson í Leirvogstungu: Fólk á að eiga val og geta búið í gisinni byggð „Mín sýn í skipulagsmálum er að menn eigi að geta haft val um það hvar þeir vilji búa og ekki eigi að steypa alla byggð í sama mótið,“ segir Bjarni Sveinbjörn Guðmundsson í Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Bjarni Sveinbjörn er fimmti ættliður ábúenda í Leirvogstungu en þar settist ættfaðir hans að árið 1870. Þegar Bjarni Sveinbjörn sá að menn voru farnir að líta Leirvogstungu- landið hýru auga í þeim tilgangi að reisa þar þétta íbúðabyggð ákvað hann að verða fyrri til, keypti landið ásamt eiginkonu sinni, Katrínu Sif Ragnarsdóttur og nú hefur fyrirtæki þeirra, Leirvogstunga ehf. látið skipuleggja 44,2 hektara íbúðasvæði undir 400 íbúðir. „Okkur féll ekki stefnan sem tekin hefur verið í byggingarmálum nágrannasveitarfélaganna, þar sem öll hverfi eru eins. Hér ætlum við okkur að reisa byggð sem verður gisnari en gengur og gerist. Hér verða til dæmis aðeins níu íbúðir á hektara, samanborið við 30 íbúðir á hektara í Úlfarsfellslandinu og viðmið Reykjavíkur sem er 27 íbúðir á hektara. Áður hafði Vegagerðin gert vegaáætlun sem miðaðist við að hér yrði ríflega 3200 manna byggð en við gerum aðeins ráð fyrir 1300 manna byggð.“ Bjarni Sveinbjörn er þeirrar skoðunar að fólk eigi að hafa val um það hvar og hvernig það býr. Þeir sem vilji búa í þéttri miðborg eigi að geta gert það en aðrir geti kosið sér hverfi sem gefi þeim tæki- færi til að njóta útivistar og tómstunda á borð við hestamennsku og golf, en það verður einmitt mjög auðvelt í Leirvogstunguhverfinu. Bjarni Sveinbjörn Guðmundsson er fimmti ættliðurinn í Leirvogstungu. Hér er horft yfir væntanlegt byggingarland og út á voginn. Afi Bjarna, einn fimm ættliða í Leirvogstungu, á hestinum Krapa. Fyrstu íbúarnir í Leirvogs - tunguhverfi flytja inn að ári SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 44 28.9.2006 10:57:35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.