Ský - 01.10.2006, Qupperneq 48
48 ský
Kvikmyndahátíð
Það er heldur betur bjart framundan hjá áhugamönnum um kvikmyndir því
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hófst
28. september nk. og stendur í ellefu daga. Á
dagskránni eru hátt í 80 myndir alls staðar að
úr heiminum. Við vekjum sérstaka athygli á
því að myndirnar eru bara sýndar tvisvar eða
þrisvar sinnum áður en þær halda áfram för
sinni um heiminn og því um að gera að grípa
gæsina meðan hún gefst. Fæstar myndanna
verða fáanlegar á myndbandi, svo hér er í
raun um að ræða einstakan viðburð.
Hátíðin hefst með miklum bravúr – en
á opnunarkvöldinu 28. september verða
öll götuljós á höfuðborgarsvæðinu slökkt.
Þegar ljósin slokkna koma stjörnurnar í ljós,
en fjöldi borgarbúa fer á mis við sjónarspil
himinsins sökum ljósmengunar. Með því
að slökkva ljósin og bjóða Reykvíkingum
að horfa til himins vonast aðstandendur
hátíðarinnar til að við uppgötvum fegurðina
sem býr fyrir ofan okkur. Til að vel takist
upp hvetjum við alla til að slökkva ljósin
heima fyrir. Þorsteinn Sæmundsson stjörnu-
fræðingur mun síðan lýsa stjörnuhimninum
í beinni útsendingu á Rás 2.
Aðaláherslan er þó á ljósgeislana sem skera
myrkur kvikmyndasalarins. Dagskrá hátíð-
arinnar er gríðarlega þétt og að sama skapi
vönduð og því fer valkvíðinn að gera vart við
sig! Þess vegna höfum við fínkembt dagskrána
og valið nokkra áhugaverða titla úr.
Skjaldbökurnar fljúga á ný
Kvikmyndin Skjaldbökur geta flogið (Turtles
Can Fly) var sýnd á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í fyrra. Myndin var ein sú vinsælasta
á hátíðinni og þótti svo góð að leikstjórinn
Bahman Ghobadi er einn þriggja leikstjóra
í flokknum Þrisvar þrír í ár. Þar eru sýndar
„Red Road“ eftir Andreu Arnold.
þrjár kvikmyndir eftir unga og efnilega leikstjóra. Auk Skjaldbökur geta flogið verða myndirnar
Tími drukknu hestanna (A Time for Drunken Horses) og nýjasta mynd leikstjórans Hálft tungl
(Half Moon) sýndar, en sú síðarnefnda var frumsýnd um miðjan september á kvikmyndahá-
tíðinni í Toronto. Ghobadi er Kúrdi, en Kúrdar eru líklega stærsta landlausa þjóð í heimi.
Þeir búa á landamærum Íran og Írak og hafa oftar en ekki verið kúgaðir af valdhöfum hverju
sinni. Ghobadi hefur lýst því yfir að markmið sitt sé að skapa kúrdíska kvikmyndahefð.
Fyrir námsþyrsta
Til landsins kemur fjöldi gesta í tilefni af hátíðinni. Margir þeirra munu standa að svo-
nefndum „masterklössum“ þar sem þeir ræða um aðferðir sínar og listsköpun. Heiðursgestur
hátíðarinnar, Aleksandr Sokurov, mun t.a.m. fjalla um stafræna myndmiðla í hátíðarsal
Háskólans 7. október, auk þess að veita sérstökum heiðursverðlaunum viðtöku. Nýjasta
mynd Sokurovs, Sorgarljóð lífsins (Elegy and Life) er enn í framleiðslu, en Íslendingum gefst
tækifæri til að sjá grófklippta útgáfu af myndinni. Þá verður myndin Rússneska örkin m.a.
sýnd á hátíðinni, en hún samanstendur af einu rúmlega 90 mínútna óklipptu skoti. Atom
Egoyan, Goran Paskaljevic og Amnon Buchbinder munu einnig halda „masterklass,“ – sá
síðastnefndi mun fjalla sérstaklega um handritagerð.
Benni Hemm Hemm semur við Fjalla-Eyvind
Hljómsveitin Benni Hemm Hemm hefur heldur betur verið að gera það gott upp á síð-
kastið. Sveitin var valin „bjartasta vonin“ á íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra og frum-
burður sveitarinnar hefur síðan komið út í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum. Önnur plata
Benna Hemm Hemm er væntanleg fyrir jólin. Á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík
mun Benni flytja frumsamda tónlist við kvikmyndina Fjalla-Eyvindur (Berg-Ejvind och hans
hustru). Myndin er eftir „föður sænskrar kvikmyndagerðar“ - Victor Sjöström - og er byggð á
frægu leikriti Jóhanns Sigurjónssonar. Í myndinni, eins og leikritinu, er fjallað um forboðnar
ástir Fjalla-Eyvindar og Höllu. Tónleikarnir verða tvennir og fara fram í Tjarnarbíói 4. og
5. október.
Alþjóðlegur vinkill
Ofangreindir viðburðir og kvikmyndir eru ekki nema brot af þeirri gríðarlega metnaðarfullu
dagskrá sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur fyrir. Hátíðin ætlar sér ekkert
minna en að verða stærsta og virtasta kvikmyndahátíð á Norðurlöndunum. Lofsamlegar
umsagnir birtust í erlendum fjölmiðlum eftir hátíð síðastliðins árs og í ár er von á fjölmiðlum
frá fjölda fag- og lífstílstímarita og dagblaða. Þá er von á fjölda erlendra ferðamanna til lands-
ins í leit að frábærum kvikmyndum í bland við íslenska náttúru.
Kvikmyndahátíðin festi nýverið kaup á sýningarvél sem verður komið fyrir í Tjarnarbíói.
Húsið verður tekið í gegn á næsta ári og í framhaldinu verður komið á fót aðstöðu til óháðra
kvikmyndasýninga til framtíðar. Vinsældir Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík
hafa sýnt að hér á landi er markaður fyrir „öðruvísi“ myndir og vonandi munu Íslendingar
njóta þess að kynnast alþjóðlegri kvikmyndagerð á heimsmælikvarða. Tækifærin verða í það
minnsta næg í lok mánaðarins! sky,
ELLEFU
DAGA
ALSÆLA
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 48 28.9.2006 10:57:54