Ský - 01.10.2006, Page 51

Ský - 01.10.2006, Page 51
 ský 51 Fólk Háhýsaborgir og Borgarfjörður eystri Magni steig í hvert sinn á svið með fádæma yfirvegun og skilaði sínu á hreint magn- aðan hátt þar sem hann þandi oft á tíðum raddböndin til hins ýtrasta og hreif jafnt áhorfendur í salnum með sér, sem og þá sem heima sátu. Þegar á leið þáttinn og aðeins tvær vikur voru í að Lukas Rossi hneppti hnossið mátti sjá á slóð inni á heimasíðu þáttarins, www.rockstar.msn. com, grínaktuga uppsetningu með myndum af uppvaxtarstöðum þeirra fimm sem eftir voru. Toby er frá stórborginni Melbourne í Ástralíu, Dilana ólst upp í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, Lukas er frá milljónaborginni Toronto í Kanada og Storm frá háhýsa- borginni Portland í Oregonfylki í Banda- ríkjunum. Magni rak hins vegar lestina á myndalistanum þar sem samlíking á hans heimaslóðum á Borgarfirði eystri, og hinna keppendanna þótti í meira lagi fyndin og óréttmæt. Grínast var með það að aðeins um 20 hús væru á Borgarfirði eystri fyrir utan kirkjuna og bankann. Það hefur sannast að stærðin skiptir ekki máli því Magni lenti í fjórða sæti af þeim 15 sem valdir voru til þátttöku í þættinum. Kannski er það einmitt dulúðin og fámennið á Borgarfirði eystri sem hefur þau áhrif að margir hæfileikaríkir Íslendingar hafa alið þar manninn líkt og Magni, meistari Kjarval og Steinn Ármann Magnússon leikari svo fáir séu nefndir. Álfaborgir og vættasögur Á vetrum hafa samgöngur frá Borgarfirði eystri oft verið erfiðar vegna veðurs og á árum áður má segja að íbúar þar hafi á stundum einangrast frá umheiminum þegar veðráttan var hvað stormasömust. Helstu atvinnuvegir er sauðfjárbúskapur, smábáta- útgerð og fiskvinnsla. Undanfarinn áratug hefur fólksfækkun orðið töluverð á staðnum og þá sérstaklega meðal yngra fólks. Sauð- fjárbúskapur foreldra Magna hefur ekki verið nóg til að halda í drenginn á heima- slóðum því frá barnsaldri hefur tónlist átt hug hans allan og stefndi Magni fljótt hátt þegar kom að tónlistarsköpun. Jóhannes Kjarval, einn mesti málari landsins. Það sem einkennir Borgarfjörð eystri fyrir utan náttúrufegurðina er þessi sterka álfatrú sem gengur mann fram af manni og kynslóð fram af kynslóð. Hún á engan sinn líka og hafa skemmtilegar og oft á tíðum óraunverulegar álfa- og vættasögur tengst staðnum svo lengi sem elstu menn muna. Þaðan eru margar frægar sögur sprottnar en til dæmis átti hin kunna þjóðsaga Móðir mín í kví kví að eiga sér stað í Loðmundarfirði. Ekki er ofsögum sagt að það sé ein þekktasta þjóð- eða jafnvel draugasaga hérlendis. Í útjaðri þorpsins er sérstæð hamraborg sem nefnist Álfaborg en þar er talið að álfadrottn- ing Íslands búi og er borgin friðlýst. Ár hvert um verslunarmannahelgi er álfatrúnni svo ríku- lega haldið við þegar þorpsbúar og aðkomumenn gleðjast saman á hátíðinni Álfaborgarséns. SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 51 28.9.2006 10:58:07

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.