Ský - 01.10.2006, Qupperneq 54
54 ský
Fólk
Ágústa Eva Erlendsdóttir leikkona
„Ég kem nú frekar köld inn í Borgarfjörð eystri því ég hef bara komið einu
sinni þangað. Það var í fyrrasumar þegar ég fór á ættarmót þar. Föðuramma
mín, Laufey Jakobsdóttir, ólst upp á Snotrunesi og þannig er mín tenging
við staðinn. Mér fannst mjög gaman að koma þangað og staðurinn er mjög
fallegur. Það var sérstök stemning á Borgarfirði og fólkið hefur trú á álfum
og jurtalækningum og ýmsu svo mér fannst svolítill hippaandi í loftinu.“
Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnumaður
„Ég er ættaður frá Borgarfirði í móðurætt en bræður mínir, þeir Andrés og
Ólafur, eru báðir fæddir á Snotrunesi en ég í Vestmannaeyjum. Ég á nokkrar
góðar minningar þaðan úr bernsku en eftir að ég varð fullorðinn reyni ég
að fara austur að minnsta kosti einu sinni á ári til að hitta frændfólkið mitt
og til að afstressa mig í svolítinn tíma. Ég held að fegurðin á Borgarfirði til
sjávar og fjalla eigi sér engan líka á Íslandi ef undanskildar eru Vestmanna-
eyjar.“
Ásgrímur Ingi Arngrímsson, fréttamaður RÚV á Austurlandi og náfrændi
Magna, er fæddur og uppalinn á Borgarfirði eystri og er til að mynda for-
maður Ungmennafélags Borgarfjarðar.
„Foreldrar mínir og þrjú systkini og fjölskyldur þeirra búa á Borgarfirði.
Ég á auk þess margt frændfólk þar og fjölmarga vini. Lögheimili mitt er
á Borgarfirði þótt ég vinni á Egilsstöðum og ég er alltaf þar á sumrin eins
mikið og ég get. Það var mjög gott að alast upp þar. Það var ekki mikil
mötun á afþreyingu og þess vegna vöndust flestir krakkar því að þurfa að
finna upp á einhverju sjálf. Ég sé það á mjög mörgum sem ég ólst upp með
að þetta hefur kennt þeim ákveðið frumkvæði og þetta fólk er óhrætt við að
ráðast í stór verkefni,“ segir Ásgrímur Ingi og bætir við:
„Það sem gerir staðinn svo sérstakan
er sambland af þessari fallegu náttúru og
svo mannlífinu. Borgfirðingar eru sérstakur
þjóðflokkur. Þeir hafa flestir húmor fyrir
sjálfum sér og öðrum. Það er til dæmis
vinsæl íþrótt að herma eftir Borgfirðingum,
ekki aðeins meðal heimamanna heldur þekki
ég fólk um allt land sem gerir það.“
Af þessari samantekt má draga þá ályktun
að sú orka og sá mikilfengleiki sem nátt-
úran gefur af sér eigi þó nokkurn þátt í að
hafa mótað þá fjölmörgu hæfileikaríku og
þekktu Íslendinga sem Borgarfjörður eystri
hefur getið af sér. Ekki er heldur ólíklegt að
ljóminn, hugmyndaflugið og hið dulræna
sem fylgir álfatrúnni og -sögunum hafi lagt
sitt af mörkum til að veita fólki innblástur til
skapandi verka. Ljóst er einnig að velgengni
Borgfirðinga heima jafnt sem að heiman
mun sífellt vekja meiri áhuga á staðnum og
laða til sín fólk hvaðanæva.
Silvía Nótt varð alræmd. Kannski verður Ágústa Eva heimsfræg.
Ásgeir Sigurvinsson er einn besti knattspyrnumaður
landsins fyrr og síðar.
sky
,
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 54 28.9.2006 10:58:36