Ský - 01.10.2006, Page 59

Ský - 01.10.2006, Page 59
 ský 59 Tónlist erum við strax búnir að ganga í gegnum þær margar.“Hvernig mynduð þið lýsa tón- list Jakobínarínu? „Rokk með smápönki og gleði. Sumt lög sem allir geta hlustað á og sumt lög sem fáir geta hlustað á því þau eru kannski of hörð, sérstaklega fyrir lengra komna í lífinu.“ Hvað hefur verið það skemmti- legasta á ferlinum enn sem komið er? Heimir: „Það er að fara út að spila. Ég hef aldrei áður farið til útlanda, það eina sem ég hef farið er eitthvað með hljómsveitinni og mér finnst það bara það skemmtilegasta. Og ég held að strákarnir séu mér bara alveg sammála!“ Ágúst: „Sumir tónleikar finnst mér standa upp úr öllu þessu og gleymast aldrei! Sem dæmi má nefna þá dansaði ég svo mikið á einum tónleikum að buxurnar mínar rifnuðu frá klofi til táar! Svo spilaði Hallberg einu sinni svo fast á strengina að gítarinn var allur í blóði!“ Eru með sama upptökustjóra og Sigur Rós Hvað er eftir? Þið eruð í upptökum fyrir plötu, var mér sagt? Gunnar: „Já, við erum búnir að vera að taka upp á fullu, en erum í upptök- upásu núna, eigum eftir að fínpússa lögin betur. Ken Thomas tekur okkur upp, en hann tekur allt upp með Sigur Rós. Hann á líka fjöl- skyldu í London og við tökum tillit til þess.“ Hvers konar lög eru á þeirri plötu? Sigurður: „Það eru bara frekar stutt og laggóð lög, með miklum pælingum. Einnig munum við fá kór til að syngja inn á þetta og eins strengjaleikara.“ Hvert sækið þið fyrirmyndir ykkar; bæði í tónlist og í einkalífi?- Björgvin: „Við eigum okkur engar sérstakar fyrirmyndir.“ „Ein og ein stjarna öðru hverju en eitthvað sem tollir ekki lengi, cool-ið stoppar svo stutt.“ Ágúst: „Gillzenegger er cool!“ Heimir: „Ég elska alla sem voru í The Unicorns og núna hlusta ég mest á Islands.“ Þið hituðuð upp fyrir White Stripes. Það hlýtur að teljast mikillheiður og viðurkenning fyrir tiltölulega nýja hljómsveit? Heimir: „Já, það var gaman að fá að spila á svona stórum stað. Fyrir tónleikana vorum við bara í búningsherberginu að chilla og borða snakk og nammi, fengum líka kók og Magic, svo fóru sumir í sturtu, en White Stripes mættu bara akkúrat þegar þeir áttu að spila, við sáum þá í raun aldrei nema á sviðinu. Svo var eitt reyndar sem mér fannst svolítið asna- legt; það þurfti að slökkva öll ljósin þegar White Stripes voru að fara að koma, veit ekki af hverju. Virkar á mig eins og stjörnustælar …“ .Hverjir eru eftirlætistónlistarmenn og/eða hljómsveitir ykkar? Heimir: „Eftirlætistónlistarmaðurinn minn þessa stundina er hann Jeff Lynne (ELO), og auðvitað The Unicorns.“ Hallberg: „My bloody valent- ine“ .Sigurður: „Uppáhaldstónlistarmaður er Lilly Allen, uppáhaldshljómsveitin þessa stundina er Klaxoons.“ Björgvin: „Tapes n Tapes er mitt band.“ Gunnar: „The New Pornographers hefur lengi verið uppáhalds- hljómsveitin mín.“ Ágúst: „Uppáhaldshljóm- sveitin mín er Sigur Rós.“ Hvað langar ykkur til að starfa við ef þið komið ekki til með að starfaí tónlist í framtíðinni? Heimir: „Ég væri til í að starfa við að hljóð- setja teiknimyndir.“ Björgvin: „Ég væri alveg til í að vera rafvirki eins og pabbi minn.“ Ágúst:„Bara vinna á leikskóla …“ Hallberg: „Humm ... Ég væri bara til í að vinna á einhverjum bar niðrí bæ.“ Sigurður: „Ég myndi helst vilja verða lögmaður.“ Hafa vinir og fjölskylda stutt við bakið á ykkur? „Já, svo sannarlega og eiga þau þakkir skildar fyrir það! Svo eigum við líka góða vini sem hlaupa stundum í skarðið hjá okkur þegar einhver kemst ekki að spila á tónleikum.Einu sinni þurfti hann Ágúst að skríða upp á fjall með afa sínum, svo vinur minn spilaði bara með okkur í Ópinu.“ Þegar viðtalið er tekið eru hljómsveitarmeðlimir á leið til Bret- lands til tónleikahalds.Hvað ætlið þið að gera í Bretlandi? Hvernig kom það til? „Það á eiginlega allt rætur til Airwaves að rekja. Þar sáu margir „big shots“ okkur frá mörgum stöðum í heiminum, en aðallega í Bretlandi. Til dæmis umboðsfyrirtækið okkar sem starfar einnig fyrir Sigur Rós, svo að við verðum í smá radio-session (upp- tökum) þarna og spilum út um allt Bretland með hljómsveitinni Love is all. Þetta er eitthvað sem umbarnir eru búnir að redda. Við verðum úti í mánuð og á fullu allan tíman. Eins og staðan er í dag kemur diskurinn út í ársbyrjun 2007.“ sky, SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 59 28.9.2006 10:59:02

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.