Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 50
50 sk‡
Kommúnistinn
sem njósnaði
fyrir Bandamenn
M
örgum kann því að þykja það skrítið að íslenskur
maður var um árabil í þjónustu Breta og Banda-
ríkjamanna á Íslandi og veitti þeim stoltur upp-
lýsingar sem komu þeim að notum. Það sem enn
undarlegra var að þessi maður var einn af stofn-
endum Kommúnistaflokks Íslands, hafði setið fundi með Lenín og
bróðir hans hafði verið á skóla fyrir unga kommúnista í Moskvu.
Faðir hans var fyrsti formaður Alþýðusambands Íslands og þar með
Alþýðuflokksins. Þessi hjálparhella og upplýsingagjafi var Hendrik
Ottósson. Hendrik leyndi því ekki að hann hefði gefið hernum
mikilvægar upplýsingar heldur ritaði bók um reynslu sína, Vegamót
og vopnagný, en hún kom út árið 1951. Hann er eini íslenski mað-
urinn sem vitað er með vissu að hafi verið heimildarmaður Breta um
íslenska nasista.
Drengskaparmaður, kommúnisti og uppljóstrari
Hendrik Ottósson var lengi fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Áður
hafði hann séð fyrir sér með kennslu og þýðingum, auk þess sem
hann stundaði ritstörf. Hann skrifaði meðal annars skemmtilegar
drengjabækur frá æskuárum sínum í vesturbænum, um Gvend Jóns
og félaga. Hendrik var fæddur árið 1897. Hann giftist þýskri konu
af gyðingaættum, Henny Goldberg, sem hér var landflótta. Með því
bjargaði hann henni og Pétri syni hennar frá því að vera vísað úr
landi skömmu fyrir heimsstyrjöldina. En úr þessu drengskaparbragði
varð ástríkt hjónaband sem entist meðan bæði lifðu. Hendrik var að
mörgu leyti sérstæður maður. Í niðurlagsorðum að áðurnefndri bók
sinni segist hann hafa verið mikill gæfumaður og eitt af því sem hann
þakkar fyrir er fótabæklun sem hann fæddist með, en hún varð til
þess að hann hafði afar sérstætt göngulag.
Haustið 1939 voru kommúnistar settir í erfiða aðstöðu. Fram að
því höfðu Hitler og fasistar verið helstu andstæðingar þeirra. Þegar
Stalín og Hitler gerðu með sér griðasáttmálann var veröldinni snúið
á hvolf. Sovétmenn réðust á Pólverja og Finna meðan Bretar og
Frakkar lýstu yfir stríði við Þjóðverja. Hérlendis lýstu margir fyrir-
litningu sinni á íslenskum kommúnistum sem ekki vildu gagnrýna
Sovétmenn fyrir árásina á Finnland. Hendrik var alla tíð sjálfstæður
í skoðunum þó að hann væri sanntrúaður kommúnisti. Hann var
Ásakanir um njósnir á kaldastríðsárunum
hafa gengið á báða bóga undanfarna mán-
uði. Annars vegar hafa fundist skjöl sem sýna
náin tengsl íslenskra sósíalista við Sovétmenn
og peningagreiðslur til þeirra. Hins vegar
hefur leynd verið létt af dómsúrskurðum þar
sem heimilaðar voru hleranir á símum nokk-
urra forystumanna Sósíalistaflokksins og síðar
Alþýðubandalagsins. Þung orð falla á báða
bóga, en fáir vilja nú láta bendla sig eða nána
ættingja sína við þjónkun við erlent vald.
Njósnarar
Texti: Benedikt Jóhannesson • Ljósmyndir: Ýmsir
Quill majór (t.v.) var yfirmaður njósnadeildar breska her-
námsliðsins.