Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 28
28 sk‡
Heimsóknir heimsleiðtoga
Fundur leiðtoga stórveldanna í austri
og vestri, þeirra Mikhaíls Gorbatsjovs,
aðalritara sovéska kommúnistaflokksins,
og Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta,
var haldinn í Reykjavík í október 1986.
Fundurinn, sem er einn merkasti við-
burður Íslandssögunnar, var ákveðinn
með skömmum fyrirvara. Það var 29.
september sem Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra var borin sú ósk hvort
halda mætti fundinn hér á landi. Við því
var orðið, enda þótt fyrirvarinn væri mjög
skammur.
Leiðtogafundurinn var haldinn í Höfða,
móttökuhúsi Reykjavíkurborgar, dag-
ana 11. og 12. október. „Að standa fyrir
framan tvo valdamestu menn heimsins
var sérstök tilfinning. Mér liggur við að
segja að þetta hafi verið óraunverulegt.
Lýsingin í fundaherberginu í Höfða þar sem
þeir Reagan og Gorbatsjov sátu virkaði
þannig að þar sem þeir sátu grafkyrrir and-
spænis mér voru þeir líkastir vaxmyndum.
Þetta var eins og vera í safni Madame
Tussaud´s í London,“ segir Ragnar
Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins,
sem myndaði leiðtogana tvo sem fulltrúi
allra íslensku blaðanna og raunar birt-
ust myndir RAX í fjölmörgum erlendum
blöðum.
Á þeim rúmu tuttugu árum sem liðin
eru frá því leiðtogafundurinn í Höfða var
haldinn hafa stjórnmála- og fræðimenn
deilt um hver árangurinn af honum hafi
verið. Skoðanir manna hafa verið mis-
jafnar, en í fyllingu tímans hafa þó æ fleiri
talið að umræður á fundinum hafi orðið til
að skapa það andrúmsloft að kalda stríðið
leið undir lok og kommúnisminn í Austur-
Evrópu hrundi.
Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjov – 1986
Vaxmyndir í Höfða
Fræg mynd af Reagan og Gorbatsjov í Höfða 1986.