Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Síða 47

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Síða 47
Kynleg kuml Hrafnkell Brimar Hallmundsson og Lísa Rut Björnsdóttir Hugmyndin að þessari grein kviknaði á sama stað og opinber söguskoðun íslensku þjóðarinnar er hvað áþreifanlegust og sýnilegust; á grunnsýningu Þjóðminjasafns Islands. Höfundar virtu fyrir sér sýninguna í tengslum við námskeið í kynjafomleifafræði við Háskóla íslands. Tilgangurinn var meðal annars að komast að því hvemig kynin birtast á sýningunni en þar virtist við fyrstu sýn vera nokkuð svart/hvít skipting á milli þeirra gripa sem kynin vom sýnd með. Forvitni vaknaði í framhaldi af því um það hversu einhlít skiptingin væri í raun og vem. Þegar komið var inn í fyrsta hluta gmnnsýningar Þjóðminjasafns íslands, þ.e. tímabilið 800 - 1000, létu kynin strax á sér kræla. Svo virtist sem gripunum væri skipt á þá leið að vopn og .Jíarlmannlegir" gripir voru hægra megin, en skart og „kvenlegir" gripir vinstra megin. í einum af sýningarbásunum er gestum boðiö aö eiga símtal við landnámsfólk frá víkingaöld. Hægt er aö hlýða á rödd Ástríðar Ketilsdóttur landnámskonu og sonar hennar. Athygli vekur kynbundin orðanotkun í þessu sambandi. Velta má fyrir sér hvort kynferöið sé ekki það augljóst út frá nafninu, röddinni og textanum að hæglega hefði mátt nota orðið „landnámsmaður" í stað „landnámskonu" þar sem konur em jú líka menn. I enska textanum er talað um ,,female settler", þegar „a settler" hefði vafalaust nægt. en í sömu setningu er sagt „her grandson". Þama er greinilega verið að leitast við að gera konuna sriulega en hugsanlega er of langt gengið með því að leggja áherslu á kvn hennar sérstaklega. Flestir hefðu að líkindum tekið eftir því ef þama stæði „landnámskarl" Er hugsanlegt að orðið landnámsmaður sé orðiö svo samgróið karlmennsku í hugum okkar að þörf sé á nýju orði þegar átt er við konu? Remdar kemur orðið „landnámskarl" fyrir í margmiðlunarefni um erfðir og uppmna Islendinga á sýningiuini. Þar er orðið notað til aðgreiningar á landnámskörlum og -konum. I sýningartextanum má lesa ýmsan fróðleik um hlutverk kv njanna. Til dæmis kemur þar fram að konur hafí borið skart og karlar vopn, án þess að markvissar rannsóknir hafi fariö fram um slíka skiptingu hérlendis. Þar sem ekki em til samtímaheimildir um víkingaöld á íslandi má draga þá ályktun að upplýsingamar hafi fengist úr jörðinni. Skoða má nánar í jx'ssu tilliti kumlin þrjú sem vom til sýnis á sýningunni, þ.e. kuml karls, konu og bams.1 Karlinn ersýndurmeð skjaldar- bólu, hesti og beislisméli. sverði, spjóti, öxi, hníf, tveimur metum og tveimur smásteinum. Konan var aftur á móti sýnd með þríblaða nælu. hringprjóni, kambi, þremur kúskeljum, sérkennilegum steinum, hníf og ógreinilegum jámmolum. I bamskumlinu var ekkert haugfé en það var staðsett við hliðina á konunni.2 Ekki þarf að efast um að þessi tilteknu kuml fundust eins og þau em sett fram á sýningunni en spumingin er hvort þau 45
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.