Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Síða 82

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Síða 82
Fornleifafræði og lífshlaup muníindi tímakvaröa. þ.e. ,,... að tengja vígslur einstaklingsins við tímaskeiö fjölskyldunnar og sögunnar." (Arber og Evandrou, 1993, bls. 11). Kosturinn við lífshlaupshugtakið er jafnframt sá að það tengir kyngervi við aðra þætti sem eru ofarlega á baugi innan félagslegrar fomleifafræði, s.s. tíma, r\'mi, félagslegt minni og ímyndir. Rites of passages: fæðing nýrrar fræðigreinar Mannfræðingar hófu snemma á síðustu öld að skoða fjölbrevtni í menningar- bundnum siðvenjum tengdum aldri. I rannsóknum á fvrri hluta aldarinnar var mikið fjallaö um tilkomumiklar almenn- ingsathafnir, sem tengdust líkamlegum umbreytingum og skilgreindar vom sem vígslur (e. rites of passages). Þessar menningarbundnu vígslur mörkuðu skil á milli þrepa í lífsferli manneskjunnar og vom lengi vel taldar fela í sér hin þrjú klassísku þrep: aðskilnað (e. separation), útlegð (e. marginalitý) og endurholdgun (e. reincorporation) (Van Gennep, 1960 [1908];Tumer, 1969). Fomleifaffæðingar hafa dregið þá ályktun út frá þessu þrískipta módeli að ákveðin r\'mi hljóti að hafa leikið mikilvæg hlutveik í vígslum til foma, þó sér i lagi við leynilegar vígslur ungra karlmanna. Góö dæmi um slíkar vígslur frá steinöld í Evrópu má greina í náttúmlegum hellum, sem gjaman vom skre\1tir með fótspomm og handafömm manneskjunnar, (Owens og Hayden, 1997). Mannfræðirannsóknir beindust í fyrstu einkum að opinberum helgi- athöfnum sem tengdust gelgjuskeiði drengja og karlmanna en hafa nú færst vfir á rannsóknir á óopinberum athöfnum stúlkna og kvenna, auk víðtækari rannsókna á maigskonar lífsferlisvígslum almennt (Roscoe, 1995), s.s. fæðingu, skím. kynþroska, innsetningu, giftingu, ekkjulífi og dauða. Samhliða þessu hefúr verið vakin athygli á því að hin klassíska gerð af vígslu er menningarlega hlaðin athöfn og að ekki er hægt að nota hana í hvaða samhengi sem er, einkum vegna skorts á greiningum á aldri í tengslum við þær, en hann er oft mikilvægari en hin opinbera mynd vígslnanna. Mannfræð- ingar hafa síðan á níunda áratug síðustu aldar lagt álierslu á að bera kennsl á reynslu sem tengist aldursskeiði manneskjunnar í menningarbundnu og félagslegu samhengi, samhliða því að greina hvaö það er sem hefur áhrif á einstaklings- bundna reynslu við öldmn (Keith, 1980; 1990. bls. 91). A sama tíma hefur femínisminn haft umtalsverð áhrif á félagslegar rannsóknir. Á sjöunda og áttunda áratugum síðustu aldar beindu fræðimenn af annarri kynslóð femínista2 sjónum sínum aðallega að opinberu og persónulegu ójafnrétti, og sameinuðust í rannsóknum á feðraveldinu: valdastrúktiimn sem viðhéldu undirokun kvenna í gegnum fastheldnar stofnanir samfélagsins eins og fjölskylduna, eða aðra þætti þjóðlífsins, s.s. nám, trú og stjómarfar. Femínískir mannfræðingar vom jafnframt uppteknir við rannsóknir á uppruna. menningarbundinni flokkun og táknfræði, sem áttu hugsanlega þátt í að viðhalda undirokun kvenna (Rosaldo og Lamphere, 1974). Stuðst var við algildar reglur um kyngervi og aldur, eins og t.d. þá að staða konunnar myndi vaxa með hærri aldri. Litið var svo á að tíða- hvörf leystu konur undan hlutskipti sínu sem framleiðsluvélar og að þær öðluðust þar með virðingarmeiri og heldri 80
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.