Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 86
Fornleifafræði
og lífshlaup
Mynd 1
Dæmi um sænskar
hellaristur frá Torsbo
Kville en þær sýna
manneskjur með
áberandi getnaðarlimi,
ýkta kálfa og hendur.
innan kynjafornleifafræðinnar hefur
einskorðast að mestu við túlkun ákveðimia
félagslegra flokka eðahópa. þ.m.t. karla,
kvenna og bama. sem koma fram í fomri
list (Kampen, 1996; Koloski-Ostrow og
Lyons, 1997; Moore og Scott, 1997;
Rautman. 2000). Til dæmis hefur konum
í mið-amerískri list verið lýst eftir
ákveðnum kvenlægum lífsferlisþrepum,
sem tengir þær við stærri heimsmynd,
hlutverk kvenna við hverskonar
framleiðslu, við kvenlegar athafnir og
félagsleg samskipti (t.d. Guillén, 1993).
Hin menningarlega túlkun á sérstökum
þrepum lífsferlisins eræ sjaldnar notuð,
t.d. við greiningu klassískrar helgimynda-
gerðar en þar voru unglingsár stelpna og
stráka áður auðkennd með mismunandi
hætti (Beaumont, 2000).
Mannfræðilegar líkamsrannsóknir hafa
tengst æ meir viðhorfúm þriðju kynslóðar
femínista eftir því sem hinni kennilegu
þróun hefur fleygt fram. Einkum hafa
rannsóknir femíníska heimspekingsins
Judithar Butlers haft áhrif á félagslega
fomleifafiæði síðan um 1990 (t.d. Schmidt
og Voss, 2000), vegna tengingar líkamans
viö hið efnislega umhverfi hans. 1
skilgreiningu Butlers á hugtakinu
birtingarmynd (e. performance) felst sú
hugsun að eigin hugnn ndir um kyngervi
og kvnferði grundvallist á áhrifum frá
endurtekningum sem birtast í formi
persónulegrar samsemdar með rætur í
kynjuðum hegðunarmynstrum (Butler,
1993). Rosemaiy Jovce hefur nýtt sér
kenningar Butlers um birtingarmyndir
persónuleika við greiningar sínar á ýmis
konar líkamlegri iðju sem markar ákveðin
þrep í lífsferli aztekskra bama (Joyce,
2000). Hún komst að því aö í þjóð-
sögulegum textum var rík áhersla lögö á
líkamlegan aga aztekskra bama í þeim
tilgangi aö gera þau að „...gjaldgengum
og siðprúðum fúllorðum manneskjum...”
Líkamar barnanna voru þess vegna
skreyttir með verðmætum óunnum
steinum og fjöðrum. Hugmyndir Azteka
um ímyndir vom félagslega mótaðar og
byggðu á endurteknum birtingamiyndum
sem lagðar vom fram sem fyrirmyndir og
síendurtekið vísað til, m.ö.o. ímyndimar
byggdu á tilfinningu um hefð eöa löngun
til þess að búa yfír getu til að hegða sér
eins og forfeðumir eða þeir eldri gerðu.
Atliafnir tengdar lífsferii efldust markvisst
84