Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 7
Arion banki hyggst selja 18-21% í Símanum hf. Stærð útboðsins nemur 1.737.000.000 hlutum eða 18% hlut í félaginu og nemur söluandvirði þeirra að lágmarki 4.689,9 milljónum króna. Seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 2.026.500.000 hluti (21%) og er söluandvirði þeirra að lágmarki 5.471,55 milljónir króna. Markmið seljanda er annars vegar að útboðið geri félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði og hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Tekið verður við áskriftum rafrænt á vef Arion banka, arionbanki.is Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur eru í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Almennt útboð á hlutabréfum í Símanum Tilboðsbók A > Hver áskrift 100.000 – 10.000.000 kr. > Verðbil 2,7-3,1 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B Tilboðsbók B > Hver áskrift yfir 10.000.000 kr. > Lágmarksverð 2,7 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 8. október. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 13. október og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 15. október. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu sem félagið hefur birt og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna ásamt viðauka má nálgast á vef félagsins, siminn.is/siminn/fjarfestar, á vef Arion banka, arionbanki.is, hjá Símanum að Ármúla 25 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19, Reykjavík. Nánari upplýsingar Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur einnig ásamt Arctica Finance hf. umsjón með skráningu félagsins. Nánari upplýsingar og aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá söluaðilum þess, fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka (arionbanki.is) ásamt Arctica Finance (arctica.is), eða hjá verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444-7000 og tölvupóstfangi siminn-utbod@arionbanki.is. Hefst í dag kl. 10.00 og lýkur miðvikudaginn 7. október kl. 16.00 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -6 8 4 0 1 6 C 3 -6 7 0 4 1 6 C 3 -6 5 C 8 1 6 C 3 -6 4 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.