Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 44
Frístandandi baðker eru ekki mjög algeng á Íslandi. Þau hafa þó ýmsa kosti, sér í lagi þegar kemur að fagurfræðinni. Hér eru nokkrir jákvæðir punktar: Sveigjanleiki Innbyggðum baðkerum verður að koma fyrir upp við veggi meðan frístandandi baðker geta staðið hvar sem er. Ef baðherbergið er nógu stórt mætti jafnvel koma því fyrir í miðju þess. Einkennandi stíll Frístandandi baðkar vekur athygli enda fágætt að sjá slíkt í baðherbergjum í dag. Margir möguleikar Frístandandi baðker er hægt að fá í mjög ólíkum útgáfum, í mismunandi litum og úr mismunandi efnum og fjölbreyttri hönnun. Því ætti alltaf að vera hægt að finna eitthvað sem hentar. Til dæmis er hægt að velja að láta karið sitja á gólfinu eða velja kar með fótum. Fortíðarþrá Frístandandi baðker geta verið nútímaleg en mörg hver eru einnig fullkomin til að fylla baðherbergið af fortíðartilfinningu. Rýmið virðist stærra Þó frístandandi baðkar taki meira pláss en innbyggt baðkar virðist baðherbergið þó ekki minna. Í raun gefur frístandandi baðkar á fótum tilfinningu fyrir að rýmið sé meira en það er í raun. Frístandandi og flott Flúraðir fætur á frístandandi baðkari leiða í ljós vissa fortíðarþrá. NordIcphoTos/GETTy Frístandandi baðker geta einnig verið nútímaleg. Slökun Fátt er betra en að láta líkam­ ann líða ofan í heitt og nota­ legt bað að loknum anna­ sömum degi. Þar hvílist bæði hugur og líkami sem sýnt hefur verið fram á með vísindaleg­ um hætti. Í tímaritinu comple­ mentary Therapies in Medi­ cine var sagt frá rannsókn sem sýndi fram á að daglegt bað í átta vikur hafði meiri kvíðastill­ andi áhrif en kvíðastillandi lyf. Bað getur líka dregið úr streitu. sumir mæla með því að bæta út í ilmkjarnaolíum á borð við júkal­ yptus eða lofnarblóm. Mildandi áhrif á sóríasis Þeir sem þjást af sóríasis gætu hagnast af rétt blönduðu baði. Talið er að með því að blanda nokkrum matskeiðum af ólívuolíu eða kókosolíu út í baðvatnið sé hægt að minnka kláða. olían á að virka sem rakagjafi og geti hjápað til að losa um húðflygsur. Þó er ekki mælt með að dvelja lengur í baðinu en tíu mínútur því annars getur vatnið leitt til húðþurrks. Eftir baðið á þó að bera á sig þau krem sem læknar hafa mælt með. Haframjölsbað húðin verður oft þurr á veturna vegna kulda og trekks. Til eru ýmis ráð til að hressa upp á hana. Eitt af því er að nota haframjöl en það hefur verið notað í þeim tilgangi í langan tíma. Það var þó aðeins nýlega sem rannsakendur fundu út að það er efnið avenanthramides í höfrunum sem dregur úr ein­ kennum bólgu og kláða í húð. haframjölsbaðið er útbúið þannig að haframjöl er sett í hreinan þurran sokk. Lokað er fyrir opið með teygju. síðan er sokkurinn látinn út í bað­ vatnið. Mælt er með að baða sig upp úr baðvatninu í 15 til 20 mínútur. Bætir nætursvefninn Þegar skriðið er upp í rúm undir svöl sængurfötin lækk­ ar líkamshitinn örlítið. Það sendir boð til líkamans um að framleiða melatonin sem ýtir undir svefn. Því þykir gott að fara í heitt bað fyrir svefninn því það hækkar líkamshitann tímabundið. Þegar komið er upp úr baðinu lækkar hitinn á ný og líkaminn framleiðir melatonin. Örvar heilann sumir vilja meina að i lm­ kjarnaolíur geti haft marg­ v ísleg áhrif t i l dæmis ef þeim er bætt út í baðvatn­ ið. Þannig á salvía að skerpa minni, bergamot á að draga úr streitu. Gæði góðra baðferða Margir þeir sem hafa komist á bragðið með að nota baðkarið sitt myndu aldrei skipta því út. Enda hefur verið sýnt fram á ýmis góð áhrif sem reglulegar baðferðir hafa á heilsu og ekki síður geðsmuni. Fáir staðir bjóða upp á jafn góða slökun og baðkarið. NordIcphoTos/GETTy Opið virka daga frá 8-18 laugardaga frá 10-15 www.tengi.is tengi@tengi.is • TENGI Smiðjuvegi 76 • Kópavogi Sími 414 1000 • TENGI Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 Unidrain Gólfniðurföll Falleg baðherbergi – með niðurfalli frá Unidrain Unidrain hefur hannað nýja og glæsilega lausn. Með því að færa niðurfallið upp að vegg er vandamál vegna vatnshalla úr sögunni. Einnig gerir það baðherbergið fallegt og auðveldar flísalögnina. Ef þig dreymir um nýjar hugmyndir á baðið, þá erum við hjá Tengi með lausnina. Nútímaleg og falleg hönnun frá Unidrain. Komið í verslanir okkar og fáið upplýsingar um Unidrain niðurföllin, í hugum flestra er Unidrain einfaldlega betri lausn. Kynning − auglýsing 5. október 2015 MÁNUDAGUr6 Baðherbergi 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -2 8 1 0 1 6 C 3 -2 6 D 4 1 6 C 3 -2 5 9 8 1 6 C 3 -2 4 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.